Öldrun - 01.11.2008, Side 3
ÖLDRUN – 27. árg. 2. tbl. 2008 www.oldrun.net
27. árg. 2. tbl. 2008
EFNISYFIRLIT:
Beinþynning og lífsgæði
mikilvægt að nýta forvarnir
og meðferðartækni
Kolbrún Albertsdóttir MSc
Dr. Björn Guðbjörnsson 5
Minnismóttaka öldrunarsviðs
LSH á Landakoti
Guðrún Karlsdóttir 13
Roðasalir í Kópavogi
Sambýli og dagþjálfun fyrir
heilabilaða
Ída Atladóttir 17
Einmanakennd aldraðra sem njóta
heimaþjónustui
Gríma Huld Blængsdóttir 19
Öldubrjótur íslensku-, samfélags,
og verkmenntaskóli Hrafnistu
Alma Birgisdóttir
Hrönn Ljótsdóttir
Lovísa A. Jonsdótir 25
•
ÚTGEFANDI:
Öldrunarfræðafélag Íslands
Pósthólf 8391, 128 Reykjavík
www.oldrun.net
ÁBYRGÐARMAÐUR:
Líney Úlfarsdóttir
PRÓFARKALESTUR:
Ritnefnd
FORSÍÐUMYND:
Roðasalir
UMSJÓN AUGLÝSINGA:
Öflun ehf. – Faxafeni 5
UMBROT OG PRENTUN:
Oddi
UPPLAG:
600 eintök
Tímaritið Öldrun kemur út tvisvar á ári
ISSN 1607-6060
STJÓRN
ÖLDRUNARFRÆÐAFÉLAGS ÍSLANDS
Pósthólf 8391 – 128 Reykjavík
Sigrún Ingvarsdóttir, formaður, formadur@oldrun.net
Ingibjörg Halla Þórisdóttir, ritari, ritari@oldrun.net
Guðlaug Þórsdóttir, gjaldkeri, gjaldkeri@oldrun.net
Auður Hafsteinsdóttir, Líney Úlfarsdóttir,
Jóhanna Marín Jónsdóttir, Sigurveig H. Sigurðardóttir
ÖLDRUN Frá ritnefnd Öldrunar:
Nú hefur annað tölublað tímaritsins Öldrunar árið 2008
litið dagsins ljós. Efni blaðsins er mjög fjölbreytt að þessu
sinni en eins og venjan er í haustblöðum er kynning á
öldrunarstofnun. Í þessu blaði eru það Roðasalir í Kópa-
vogi sem kynna starfsemi sína, en starfsemi Roðasala er
tvíþætt, annars vegar hjúkrunarsambýli fyrir heilabilaða
og hinsvegar dagþjálfun.
Ritnefnd bárust athyglisverðar greinar úr ýmsum áttum
og má sem dæmi nefna auk kynningar á Roðasölum, grein
um beinþynningu og lífsgæði þeirra sem greinst hafa með
sjúkdóminn, kynningu á Minnismóttöku á Landakoti og
íslensku- samfélags og verkmenntaskóla Hrafnistu. Síðast
en ekki síst er í blaðinu kynningu á niðurstöðum rann-
sóknar á einmanakennd þeirra sem fá heimaþjónustu.
Stjórn ÖFFÍ hefur nú þegar ákveðið efni næstu námstefnu
félagsins sem haldin verður fimmtudaginn 5. mars 2009, kl.
9:00 – 16:00 í Endurmenntun Háskóla Íslands. Þar verður
umfjöllunarefnið „Þekkingarmiðlun og þátttaka milli
kynslóða í samfélaginu“. Fjallað verður um þjóðfélags-
lega þróun íslensks samfélags og velt upp þeirri spurn-
ingu hvort bil hafi myndast milli kynslóða hvað varðar
þekkingarmiðlun og tengsl. Kynnt verður hugmyndafræði
og viðhorf við veitingu þjónustu sem efla aldraða til þátt-
töku í samfélaginu og styrkir gagnvirkni í samskiptum
kynslóðanna.
Sem fyrr vill ritnefnd hvetja lesendur til að skrifa greinar í
blaðið eða benda á áhugaverð efni sem þarfnast kynningar.
Vinna við næsta tölublað hefst strax á fyrstu vikum ársins
2009. Ritnefnd vill einnig þakka höfundum fyrir þeirra
framlag og Fanneyju Kristbjarnardóttur sérstaklega fyrir
yfirlestur og góð ráð um meðferð heimilda.
Með bestu kveðju
Líney Úlfarsdóttir, sálfræðingur
Guðlaug Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Elín Guðjónsdóttir, félagsráðgjafi
Eyjólfur Þ. Haraldsson, öldrunarlæknir
Rósa Hauksdóttir, iðjuþjálfi
ritnefnd@oldrun.net