Öldrun - 01.11.2008, Síða 8
www.oldrun.net ÖLDRUN – 27. árg. 2. tbl. 2008
síðan sendar til heimilislæknis viðkomandi eða til annars
sérgreinalæknis allt eftir óskum hins mælda. Hinsvegar
þurfa yngri einstaklingar tilvísun til beinþéttnimælingar
þar sem fram kemur ábendingin fyrir rannsókninni sem
og aðrir heilsufarsþættir sem geta haft áhrif á beinumsetn-
ingu og beinbrot, sem auðveldar sérhæfða ráðgjöf með
tilliti til forvarna og lyfjameðferðar.
Algengi beinþynningarbrota
Samkvæmt skilgreiningu WHO um beinþynningu, þ.e.
T-gildi lægra en –2,5, má ætla að við fimmtugsaldur
sé um 10% kvenna með beinþynningu og allt að þriðj-
ungur við 65 ára aldur. Um helmingur allra 75-ára kvenna
uppfylla þessi greiningarskilmerki hér á landi. Hinsvegar
verður að geta þess að þessi skilmerki WHO voru fyrst
sett fram sem faraldsfræðilegt tæki til að kanna stöðu
beinheilsu ólíkra þjóðfélaga – þ.e. þessi skilmerki voru
upphaflega ekki framsett sem sjúkdómsskilmerki, en með
tilkomu virkra lyfja gegn beinþynningu og umfangsmik-
illa meðferðarannsókna þar sem stuðst var við þessa skil-
greiningu WHO hefur skapast hefð fyrir því að skilgreina
beinþynningu út frá T-gildinu.
Alþjóðlegu beinverndarsamtökin – International
Osteoporosis Foundation (IOF), áætla að þriðja hver kona
og áttundi hver karl brotni af völdum beinþynningar
einhvern tíma á ævinni. Þetta er í samræmi við íslenska
faraldsfræðilega rannsókn úr Eyjafirði, sem sýndi að
önnur hver fimmtug kona og þriðji hver fimmtugur karl
geti búist við beinbroti síðar á lífsleiðinni (Jón Torfi Hall-
dórsson 2003).
Á Íslandi er talið að um 1200–1400 beinbrot megi árlega
rekja til beinþynningar. Algengust eru framhandleggs-
brot, en alvarlegust eru mjaðmabrot sem eru rúmlega 200
ár hvert, eða nærri eitt hvern virkan dag ársins. Samfalls-
brot í hrygg hafa hinsvegar fengið minni athygli. Þau
eru til og með vangreind, en erlendar rannsóknir sýna
að allt að þriðja hvert og jafnvel annað hvert samfallsbrot
í hrygg er ekki staðfest með röntgenmyndatöku og því
ógreint. Íslensk rannsókn, sem vikið verður að hér síðar,
sem kannaði lífsgæði 300 íslenskra kvenna með tilliti til
samfallsbrota í hrygg af völdum beinþynningar sýndi að
þriðja hver kona sem reyndist hafa samfallsbrot í hrygg
var óvitandi um að samfallsbrot væri að finna í hrygg
hennar (Kolbrún Albertsdóttir 2007). Þeir sem hafa hlotið
eitt samfallsbrot vegna beinþynningar – óháð því hvort
það sé staðfest eða dulið, eru í allt að tvöfaldri áhættu á
að fá önnur beinþynningarbrot (Mynd 4). Mikilvægt er
því að staðfesta öll beinbrot af völdum beinþynningar svo
unnt sé að koma við virkri forvörn eða sérhæfðri lyfja-
meðferð í völdum tilfellum, svo fækka megi beinbrotum
af völdum beinþynningar síðar á lífsleiðinni.
Lífsgæði
Lífsgæðahugtakið hefur orðið algengara allt eftir því sem
langlífi hefur aukist og ljóst er að margir sjúkdómar eru
ekki læknanlegir en fólk lærir að lifa með sjúkdómum
og skertri líkamlegri og/eða andlegri getu. Lífsgæði hafa
því orðið eins konar mælikvarði í heilbrigðisvísindum og
viðbót við aðrar hefðbundnar mælistikur eins og dánar-
tíðni og sjúkleika, ásamt því að athuga áhættuþætti fyrir
sjúkdóma og vera verkfæri við ákvarðanatöku, gæðaþróun
og árangursstjórnun innan heilbrigðiskerfisins. Líðan og
lífsfylling eru persónuleg upplifun og mælikvarði einstakl-
ingsins sjálfs og huglægt mat hans á lífsgæðum sínum.
Lífsgæði og öldrun
Mikið hefur verið rætt og ritað um lífsgæði aldraðra og
er þessum greinarpistli ekki ætlað að gera því efni skil
hér heldur einblína meira á áhrif beinþynningar á lífs-
gæði aldraðra. Lífsgæði er flókið hugtak sem erfitt hefur
verið að skilgreina. Tómas Helgason skrifar um heilsu-
tengd lífsgæði aldraðra í Tímaritinu Öldrun árið 2005
og segir þar m.a. að „lífsgæði séu bæði persónubundin
og efnisleg. Þau síðarnefndu sem tengist lífsgæðakapp-
hlaupinu er hægt að meta hlutlægt þó deila megi um á
hvaða kvarða eigi að mæla þau og hvað teljist viðunandi
hverju sinni. Það eru hins vegar persónubundin lífsgæði
sem erfiðara er að mæla nema af einstaklingnum sjálfum.
Þess vegna hafa verið hönnuð mælitæki með stöðluðum