Öldrun - 01.11.2008, Síða 18
1
www.oldrun.net ÖLDRUN – 27. árg. 2. tbl. 2008
Hjúkrunarsambýli
Í sambýlinu er rými fyrir ellefu skjólstæðinga, þar af
er eitt skammtímapláss, ætlað til dvalar í 3–4 vikur í
senn. Til að fá vistun þarf viðkomandi að eiga gilt vist-
unarmat í hjúkrunarrými og vera með væga- til meðal
alvarlega heilabilun og nokkuð góða líkamlega færni.
Þeir sem þarfnast flókinnar og stöðugrar hjúkrunar
t.d. við lífslok geta ekki dvalið í Roðasölum. Einnig er
vandkvæðum bundið að sinna einstaklingum með hegð-
unartruflanir og geðræn einkenni á háu stigi sem ekki
láta undan sérhæfðri hjúkrun og lyfjameðferð. Lyf eru
keypt tiltekin í skammtapokum. Deildarstjóri sambýlis er
Guðrún S. Viggósdóttir, sjúkraliði með viðbótarmenntun
og aðrir starfsmenn eru sjúkraliðar, almennir starfsmenn
í aðhlynningu og matreiðslumaður sem eldar allan mat
fyrir sambýlið. Áhersla er lögð á heimilislegt umhverfi,
að viðhalda reisn og færni skjólstæðinga. Leikfimi og
gönguferðir eru dagleg verkefni og mikið er sungið. Ýmis
samvera er sameiginleg fyrir dagþjálfun og sambýlið, s.s.
þorramatur, sumarferðir og haustfagnaður. Aðstandendur
eru hvattir til að koma sem oftast og heimsækja ættingja
sína.
Hugmyndafræði hjúkrunar
Hugmyndafræði hjúkrunar í Roðasölum byggir á kenn-
ingu Donnu Algase og félaga um samspil bakgrunnsþátta
og breytilegra þátta sem hafa áhrif á líðan og hegðun
heilabilaðra. Bakgrunnsþættir eru tiltölulega stöðugir
þættir eins og heilbrigðisástand, merki um elliglöp,
lýðfræðilegir þættir og sálfélagslegir þættir. Breytilegir
þættir eru mannlegar líkamlegar þarfir, sálfélagslegar
þarfir, umhverfisþættir á deild og félagslegt umhverfi.
Samspil bakgrunnsþátta og breytilegra þátta eru ráðandi
fyrir hvort og þá hvernig hegðunartruflanir og geðræn
einkenni koma fram. Bakgrunnsþættir eru oft óbreyt-
anlegir, en breytilegir þættir og uppfylling þarfa skjól-
stæðinga eru á ábyrgð og valdi starfsmanna að sinna.
Gott eftirlit, mat á líðan skjólstæðinga með viðurkenndum
mælitækjum og uppfylling mannlegra þarfa eru því lykil-
atriði hjúkrunar.
Læknisþjónusta
Samningur um læknisþjónustu er við öldrunarsvið Land-
spítalans á Landakoti. Frá upphafi hefur Jón Snædal öldr-
unarlæknir verið læknir Roðasala. Bakvaktarþjónusta
lækna við Roðasali er allan sólarhringinn.
Teymisfundir og samstarf
Teymisfundir eru haldnir vikulega, en hann sitja forstöðu-
maður, læknir og deildarstjórar. Á fundunum er farið yfir
líðan allra skjólstæðinga ásamt öðrum málum er teng-
jast skjólstæðingum. Fjölskyldufundir eru haldnir með
aðstandendum og skjólstæðingum eftir þörfum, að jafnaði
einu sinni á ári. Eftir atvikum er fulltrúa heimahjúkrunar
boðið á fjölskyldufundi þeirra sem eru í dagþjálfun, en
mikil samvinna er við heimahjúkrun.
Kvarðar til að meta færni, ástand og þjónustuþörf
PFQ (Present Functioning Questionnaire) já eða nei spurn-
ingar sem meta starfsgetu aldraðra í daglegu lífi varðandi
persónuleika, verkefni daglegs lífs, hæfni til munnlegrar
tjáningar, minni og minnisstarfsemi og sjálfshjálp.
FRS (Functional Rating Scale) fimm punkta Likkert
kvarði sem metur upplýsingar um aldraða á átta sviðum
þ.e.a.s. minni, samskipti/samfélag og atvinnu, heimili og
áhugamál, persónulega umhirðu, málfarslega færni, lausn
vandamála og röksemdarfærslu, tilfinningar og áttun.
NPI-D eða NPI-NH (Neuropsychiatric Inventory with
Caregiver Distress eða Nursing Home) sem mæla eftirfar-
andi hegðunartruflanir og geðræn einkenni hjá heilabil-
uðum: ranghugmyndir, ofskynjanir, uppnám/árásargirni,
þunglyndi/dapurleika, kvíða, kæti/sæluvímu, tómlæti/
sinnuleysi, hömluleysi, önuglyndi/hverflyndi, afbrigðilega
líkamlega hegðun, svefnvanda og matarlyst/matarvenjur
og borðsiði. NPI-NH er hjúkrunarheimilis útgáfa af NPI-D.
Báðir NPI kvarðarnir meta tíðni, alvarleika og álag eða
truflun á aðra í umhverfinu sem þessi einkenni valda.
Aðrir sérhæfðari kvarðar eru notaðir eftir þörfum m.a.
GDS (Geriatric Depression Scale), MMSE (Mini Mental
State Examination), CMAI-C-Relative Form (Cohen-Mans-
field Agitation Inventory – Community) og Ráfkvarði
Algase (The Algase Wandering Scale- Version 2).
Lokaorð
Frá því að Roðasalir hófu starfsemi hafa margir hópar og
einstaklingar komið í heimsókn til að skoða og fá upplýs-
ingar um starfsemi og aðbúnað. Stöðugleiki hefur verið
mikill í starfsmannahaldi og góður andi ríkir meðal starfs-
manna sem allir leggjast á eitt til að veita framúrskarandi
þjónustu.