Öldrun - 01.11.2008, Qupperneq 25
2
ÖLDRUN – 27. árg. 2. tbl. 2008 www.oldrun.net
Mannauður í öldrunarþjónustu
Hrafnista hefur sett sér þau markmið að vera leiðandi í
umönnun og þjónustu við aldraða, að stuðla að andlegri,
líkamlegri og félagslegri vellíðan heimilisfólks, að starfs-
fólk efli faglega þekkingu og að starfsánægja og starfs-
umhverfi sé gott. Undanfarin ár hefur verið erfitt að
uppfylla þessi markmið vegna viðvarandi manneklu.
Skerða hefur þurft þjónustu og hafa hjúkrunarrými jafn-
vel staðið auð vikum og mánuðum saman.
Á árinu 2007 var lögð mikil vinna og mikill kostnaður
í auglýsingar hjá Hrafnistuheimilunum sem aðeins hafa
skilað hluta af þeirri mönnun sem til þurfti. Það var þó
nóg af fólki sem sótti um lausar stöður, meira að segja
af mjög frambærilegu fólki, fólk með góða menntun s.s.
hjúkrunarfræði eða fólk með mikla reynslu í umönnun
aldraðra, en vegna þess að flestir þessara einstaklinga
voru erlendir og töluðu hvorki né skildu íslensku var ekki
hægt að ráða það til starfa. Hrafnista hefur sett sér það
markmið að ráða einungis starfsfólk í aðhlynningu sem
skilur og talar íslensku til að geta uppfyllt þaumarkmið
sem Hrafnista stendur fyrir.
Í janúar 2008 vantaði í um 30 stöðugildi á Hrafnistu-
heimilunum og allir sem að öldrunarmálum koma voru
sammála að þessar aðstæður væru ekki líðandi, en hvað
var til ráða? Úr þessari umræðu spratt hugmyndin að
tilraunaverkefninu „Öldubrjót – íslensku-, samfélags- og
verkmenntaskóli Hrafnistu”.
Markmið skólans voru:
• að kenna einstaklingum af erlendum uppruna
íslensku
• að kynna fyrir þeim íslenskt samfélag, gildi þess og
viðmið
• að kenna aðhlynningu, mannleg samskipti og fleira
• að rjúfa félagslega einangrun einstaklinga af
erlendum uppruna
• að nýta þann mannauð sem einstaklingar af erlendum
uppruna búa yfir
• að ráða þessa einstaklinga sem framtíðarstarfsmenn
Hrafnistu
Þessi markmið eru í samræmi við stefnu ríkisstjórnar
Íslands um aðlögun innflytjenda t.d. að fullorðnir innflytj-
endur bæði á vinnumarkaði og utan hans eigi kost á góðri
íslenskukennslu, að samfélagsfræðsla sé hluti af íslensku-
námi fyrir innflytjendur og að fram fari gæðamat og eftirlit
með íslenskukennslu.
Eftir undirbúningsvinnu sem m.a. fól í sér að kynna
þessa hugmynd fyrir þeim aðilum sem aðallega koma að
kennslu innflytjenda s.s. menntamálaráðuneytis, félags-
málaráðuneytis, Eflingu og Mími-símenntun var ákveðið
að hrinda verkefninu í framkvæmd. Verkefnið tekur hluta
af árinu 2007 vegna undirbúningsvinnu og allt árið 2008.
Tafla 1. sýnir yfirlit yfir verkefni Öldubrjóts árið 2008.
FRÆÐSLA OG SÍMENNTUN Í ÖLDRUNARGEIRANUM
Öldubrjótur íslensku-, samfélags- og
verkmenntaskóli Hrafnistu
Verkefni Jan. Feb. Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst Sept. Okt. Nóv. Des.
Auglýsingar
Viðtöl
Íslenskupróf
Skóli
Starfsfþjálfun
Starf án leiðb.
Íslenskupróf
Könnun
Tafla 1. Yfirlit yfir árið 2008