Öldrun - 01.11.2008, Page 28

Öldrun - 01.11.2008, Page 28
2 www.oldrun.net ÖLDRUN – 27. árg. 2. tbl. 2008 margfaldað árangurinn af íslenskunámi nemenda á þeim sjö mánuðum sem liðnir eru. Af reynslu Mímis-símennt- unar að kenna íslensku hafa kennarar þar fullyrt að svo almennar framfarir eiga sér sjaldan stað í vinnustaða- hópum þar sem íslenskukennsla er eingöngu á dagskrá. Í september var gerð könnun meðal samstarfsmanna Öldubrjótsnemenda, þar kom í ljós almenn ánægja með nemendur úr öldubrjótnum. Umsagnir samstarfsmanna voru mjög jákvæðar og þeir sögðu meðal annars að nemendurnir væru áhugasamir, góðir starfsmenn, sem sýndu mikinn vilja til að læra íslensku. Framhald? Þegar þessi grein er rituð hefur ástandið á vinnumarkaði á Íslandi breyst gífurlega og nú er búið að fullmanna á Hrafnistuheimilunum. Því verður ekki að sinni framhald á þessu verkefni en við eigum það fullvaxið og tilbúið til notkunar hvenær sem er. Nemendurnir hjálpuðu okkur á erfiðum tímum og reyndust góðir starfsmenn og eru því framtíðarstarfsmenn Hrafnistu ætli þeir sér að vera hér á landi áfram. Því miður hefur efnahagsástandið haft þær afleiðingar að tveir nemendur sjá sér ekki fært að vera lengur en yfirgefa Hrafnistu með trega í huga og þeirra bíða störf hjá okkur ef þeir kjósa að koma aftur. Alma Birgisdóttir Hjúkrunarforstjóri Hrafnistu Hrönn Ljótsdóttir Félagsráðgjafi Hrafnistu Lovísa A. Jónsdóttir Forstöðumaður Hrafnistu Hafnarfriði Land Aldur Búið á íslandi Íslenskupróf jan Íslenskupróf ágúst Búlgaría 25 ára 3 mán Byrjandi 2-3 stig Pólland 23 ára 5 mán Byrjandi 2 stig Tansamía 33 ára 1½ ár 2 stig 3 stig Filippseyjar 41 árs 2 ár 2-3 stig 3 stig Rússland 34 ára 9 mán Byrjandi 2-3 stig Pólland 51 árs 3 mán Byrjandi 3 stig Pólland 26 ára 1 mán Byrjandi 3 stig Pólland 22 ára 6 mán Byrjandi 2-3 stig Poland 48 ára 1 mán Byrjandi 2-3 stig Namibia 49 ára 1 mán Byrjandi 2 stig Filippseyjar 23 ára 5 mán Byrjandi 3-4 stig Kenía 27 ára 3 ár 2 stig 3 stig Þýskaland 46 ára 3 mán 2-3 stig 3-4 stig Tafla 2. Árangur á íslenskuprófi

x

Öldrun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.