Öldrun - 01.11.2008, Blaðsíða 30
0
www.oldrun.net ÖLDRUN – 27. árg. 2. tbl. 2008
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hélt
tölu á fundinum um stefnu félagsmálaráðuneyt-
isins í öldrunarmálum og var henni vel tekið af
fundarmönnum.
Svipmyndir frá aðalfundi
Öldrunarfræðafélags Íslands
Fimmtudaginn 27. mars 2008 var þrítugasti og fimmti aðal-
fundur Öldrunarfræðafélags Íslands haldinn í húsnæði Fastusar
að Síðumúla 16. Fundurinn var vel sóttur og tóku starfsmenn
Fastusar vel á móti fundarmönnum. Arnar Bjarnason mark-
aðstjóri hjá Fastusi kynnti starfsemi fyrirtækisins og þær vörur
sem nýst geta öldruðum og fagfólki í geiranum
Sigrún Ingvarsdóttir formaður félagsins fór yfir ársskýrslu ÖFFÍ og færði
heiðursfélögum blóm sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf. Heiðursfélagar
Öldrunarfræðafélagsins eru Alfreð Gíslason, Ársæll Jónsson, Gísli
Sigurbjörnsson, Gunnhildur Sigurðardóttir og Þór Halldórsson. Á fund-
inum var einnig kynntur til sögunnar nýr heiðursfélagi, Jóna Eggertsdóttir.
Jóna Eggertsdóttir er fædd að Bakkakoti í Skorradal 10. janúar 1937.
Hún lauk BA prófi í félagsfræði og starfsréttindanámi í félagsráðgjöf
frá Háskóla Íslands 1982. Hún starfaði sem félagsráðgjafi á lyflækn-
ingadeild Borgarspítalans 1983-88 og síðan sem yfirfélagsráðgjafi á
vefrænum deildum Borgarspítalans. Forstöðufélagsráðgjafi á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur á sömu deildum til 1. júní 2001. Frá þeim tíma yfirfélags-
ráðgjafi öldrunarsviðs Landspítala - háskólasjúkrahúss. Jóna hefur alla
tíð unnið ötullega að málefnum eldri borgara.
Sex umsækjendur fengu styrk til rannsókna úr vísindasjóði
ÖFFÍ. Þau voru: Anna G. Hansen, Ída Atladóttir, Janus
Guðlaugsson, Magnús Jóhannsson, Sigrún Huld Þorgrímsdóttir
og Sólveig Bjarney Daníelsdóttir. Á myndina vantar Janus
Guðlaugsson og Sólveigu Bjarneyju Daníelsdóttur.