Són - 01.01.2006, Qupperneq 117
„... EN EYGIR HVERGI FJALLIÐ SJÁLFT“ 117
og goðsagna ekki sundur skilin heldur er hvort sín hlið á sama pen-
ingnum og verður án hvorugs verið ef skilja á ljóðið fullnægjandi
skilningi. Vissulega er ljóðið ekki einvörðungu bundið ákveðnum
stað og stund. Það tjáir einnig huglægan veruleik, skáldheim, en hann ligg-
ur ekki allur á yfirborðinu fremur en heimur náttúrunnar í ljóðinu.
Stefán Hörður Grímsson (1919–2002) ólst upp, að miklu leyti, hjá
móðurfólki sínu í Selkoti undir Eyjafjöllum.6 Á árunum 1950–70 átti
Stefán Hörður nokkrar ferðir á æskustöðvar sínar undir Eyjafjöllum.
Oftast mun hann hafa komið með rútunni frá Reykjavík og dvalið
fáeina daga í Selkoti. Tíma sínum varði hann meðal annars til göngu-
ferða um nágrennið.7
Bærinn í Selkoti stendur suðvestan undir háu fjalli, 7–800 metra
háu sunnan til, sem gengur til suðurs frá meginfjalli Eyjafjalla, um
fimm og hálfan kílómetra frá Guðnanípu við brún Eyjafjallajökuls.
Fjallið er tvínefnt og heitir því jafnt Rauðafell og Raufarfell. Bæir
samnefndir fjallinu standa sunnan undir því – Rauðafell austar en
Raufarfell utar – og var margbýlt á báðum jörðum til skamms tíma.
Selkot á sameiginlegt óskipt land með Raufarfellsbæjum í Raufarfells-
heiði en háegg fjallsins ræður merkjum milli Raufarfells og Rauðafells
í fjalllendi allt til jökuls. Í örnefnaskrá Raufarfells og Selkots er þessi
háegg fjallsins nefnd Raufarfellseggjar en í örnefnaskrám Rauðafells er
hún nefnd Eggjar og Eggjarnar. Í fyrstnefndu skránni er þess jafnframt
getið að Kálfaskálaeggjar nái frá Bæjarskálum, skálinni miklu ofan
bæjanna, og allt inn til jökuls. Allt eru þetta einar og sömu eggjarnar.
Dalur gengur inn milli Lambafells og Raufarfells og eru um þrír
kílómetrar frá mynni dalsins, við Lambafell sunnanvert, og inn í dal-
botninn við gömlu Seljavallalaug sem margir þekkja. Í miðjum dal
stendur bærinn á Seljavöllum undir Lambafellsheiði og tilheyrir heiðin
jörðinni allt til jökuls. Laugará kemur úr jökli og rennur hún í merkjum
milli Seljavalla og Raufarfells í heiðinni. Vestan Laugarár, innst í Lamba-
fellsheiði, heita Mörleysur, í 530 til 980 metra hæð yfir sjó þar sem bratt-
ast er með Laugará og jökultungunni sem Laugará fellur undan. Vestar
í Mörleysum er hæðarmismunur og bratti minni. Þar var áður allvinsæl
en ótrygg gönguleið á Eyjafjallajökul, upp frá Seljavöllum.
Í austanverðu dalsmynninu stendur bærinn í Selkoti. Að bænum á
Seljavöllum undanskildum er Selkot sá bær sem næst stendur hátindi
Eyjafjalla. Útsýn af bæjarhlaðinu í Selkoti til jökulsins, sem rís í 1666
6 Þórður Tómasson (viðtal).
7 Kolbeinn Gissurarson (viðtal).