Són - 01.01.2006, Síða 133

Són - 01.01.2006, Síða 133
GÖMUL PRÓSALJÓÐ OG FRÍLJÓÐ 133 hæddist að rímáráttu Íslendinga á árinu 1932 en aðeins sjö árum síðar hamaðist hann gegn „ljóðum í óbundnu máli“.27 Smám saman vann þetta ljóðform svo á og varð ríkjandi í ljóðabókum um 1970.28 Þorsteinn leiðir allt þetta þegjandi hjá sér og heldur dauðahaldi í þá gömlu kreddu að ljóðbyltingin hafi orðið upp úr seinni heims- styrjöld. En ekki nóg með það. Einnig fyrr var ljóðmál miklu rót- tækari nýjung, nefnilega í ljóðum Halldórs Laxness um miðjan þriðja áratuginn. Einkum er þá vitnað til þess að hann hafi misst af skáldastyrk vegna birtingar kvæðis hans Unglingurinn í skóginum, 192529, en mun róttækari að ljóðmáli eru þó fáein ljóð sem hann birti 1927. Ég tel þau dæmi surrealísk vegna þess að þar er ósamrýman- legum orðum skipað saman í orðasambönd sem verða því óskiljan- leg röklega. Fyrir koma kunnugleg atriði, auðmýkt hins lægsta jarð- argróðurs, og sál er líkt við fugl: „Sál mín er auðmjúk eins og lítið gras, / ástrík og trúuð líkt og heimskur fugl“. En hitt er undarlegra að líkja sálinni við tiltekna mannveru: „Önd mín er frjáls eins og útlendur prestur“ (Vorkvæði 2,3), eða hluta hennar við nýtækni [þá] í samgöngum: „samviskulaus eins og bifreiðaumferð í aprílmánuði“ (Nótt 6,2). Einnig er sömu árstíð líkt við dýr: „Apríllinn fnæsir sem fælinn hestur / falinn í kálgörðum Hörpu“ (Vorkvæði 2, 1–2). Stórt er sett á miklu smærra og persónugert í mótsögn: „á sælum vörum sorg- arinnar, / sofa turnar borgarinnar“ (Nótt 1, 11–12). Hjá Halldóri eru aðrar líkingar enn óskiljanlegri: „Heimur vor er ljóðdjásn frá lung- unum til nefsins / Lofgerð vor er úthverfa grískra sjúkdómsnafna.“ (Nótt 1, 3–4). Enn lengra gengur þessi tvinnaða líking: „þú græddir upp ljóðastraums gullmörk / með göllum á freraslóð“ (Borodin 1–2). Eins og ég hef rakið áður virðist röklegur skilningur kerfisbundið útilokaður.30 Ekki sé ég jafn róttækt ljóðmál á íslensku síðan fyrr en Tíminn og vatnið eftir Stein Steinarr birtist á seinni hluta 5. áratugsins31 27 Örn Ólafsson. Rauðu pennarnir (1990:126–127). 28 Sjá Ólafur Jósson. Skírnir (1981:107). 29 Þá skýringu gaf Halldór sjálfur í formála Kvæðakvers síns. Ég hélt því fram í Skírni 1985, að Halldór hefði misst styrkinn vegna almenns niðurskurðar á fjárlögum, ekki væri að marka þessa skýringu hans. Hannes Hólmsteinn hefur hinsvegar í bók sinni Halldór, bls. 306 o.áfr. leitt rök og vitnisburði fyrir því að ólíkt því sem ég taldi, þá hafi raunveruleg andúð gegn þessu ljóði Halldórs orðið með öðru til þess að Alþingi veitti honum ekki skáldastyrk 1925. Hallbjörn Halldórsson gat þess til í grein um Halldór, 1929 (bls. 393–4) að hér hefði einkum ráðið ótti þing- manna við íhaldssemi kjósenda. 30 Kóralforspil hafsins (58 og áfram). 31 Sjá nánar um Örn Ólafsson (2005).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Són

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.