Són - 01.01.2006, Page 161

Són - 01.01.2006, Page 161
LJÓÐ 2005 161 þess sem við höfum lengi kallað „bundið mál“ – þarf enginn að efast um að samhljómur orða hefur sterkari áhrif á viðtakendur en hefðbundin orðræða; þetta eru einfaldlega gömul sannindi – og til- gangurinn er jú líklega alltaf sá að hreyfa við þeim sem á móti tekur. Málþing ljóðahátíðarinnar, sem fram fór í Norræna húsinu þann 30. ágúst, skiptist í tvo hluta; sá fyrri fjallaði um framúrstefnu eða jaðar- stefnu en sá síðari, sem fór fram um kvöldið, var tileinkaður alþjóð- legri umræðu og fór fram á ensku. Á fyrri hlutanum, að minnsta kosti, var áheyrendahópurinn talsvert frábrugðinn þeim sem hafði setið ljóðaþing í háskólanum nokkru fyrr og kannaðist undirrituð í mesta lagi við tvo úr hópi áheyrenda sem höfðu sótt báða viðburðina. Tilgangur þessa málþings var að gera úttekt á samtímaljóðlist og í pall- borðsumræðum um efnið tóku eftirfarandi þátt: Benedikt Hjartarson, Davíð Stefánsson, Haukur Már Helgason, Haukur Ingvarsson, Sig- ríður Albertsdóttir og Valur Brynjar Antonsson. Valur Brynjar flutti fróðlegt erindi um vakningu á avant garde ljóðlist, eða framúrstefnuhugsun, en að því loknu snerust umræður einkum um samtímaljóðlist á Íslandi. Sigríður Albertsdóttir hélt því fram að nýtt og kraftmikið tímabil væri nú hafið með ungum skáldum á Íslandi. Hún ræddi nokkuð um helstu einkenni þessara skálda og taldi sig meðal annars greina mun á skáldskap karla og kvenna; skáld- konurnar væru leitandi eftir sjálfsímynd og karlarnir, sem vissulega væru leitandi líka, beittu frekar fyrir sig íróníu og að skáldskapur þeirra einkenndist jafnvel af sterkri sjálfsíróníu þar sem hin staðlaða karlímynd væri dregin niður í svaðið. Hún taldi þó að vá lægi undir hálfkæringnum, og jafnvel heimsendasýn. Hún sagði að fólk væri að túlka „núið“ – og að ljóðskáld fjarlægðust í auknum mæli kröfuna um að gera sífellt eitthvað nýtt enda væri sú krafa afar íþyngjandi. Haukur Már Helgason talaði einnig um reynsluheim ljóðskáldanna og taldi að skáldin væru að reyna að yrkja Netið, rappið og allan samtímann inn í ljóðið. Eflaust mætti fella ljóðabók Kristians Gutte- sen, Litbrigðamyglu, undir þessa skilgreiningu en þar er borin á borð svokölluð ljóðahrollvekja. Málþingið var líflegt og skemmtilegt og greinilegt er að gróska er í íslenskri ljóðlist þótt ef til vill sé fullsnemmt að tala um nýtt tímabil að öðru leyti en því að ný tímabil eru ávallt í uppsiglingu. Forsprakkar Nýhil-hópsins hafa og ekki legið á skoðunum sínum á öðrum vettvangi. Eiríkur Örn Norðdahl skrifaði grein um stöðu íslenskrar ljóðlistar í Tímarit Máls og menningar 3, 2004 þar sem hann sparaði ekki stóru orðin, eflaust í þeim tilgangi að vekja umræðu,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Són

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.