Gerðir kirkjuþings - 1987, Side 140
137
2. gr.
Við bætist ný grein er verði 26. gr. a svohljóðandi:
Rikissjóður skal skila 15. hvers mánaðar, af óskiptum
tekjuskatti, fjárhæð er rennur til kirkjugarða landsins.
Fjárhæð þessi reiknast þannig að fyrir hvern einstakling,
sem er 16 ára og eldri i lok næstliðins árs á undan
gjaldári, greiðist ákveðin upphæð, sem ákvarðast þannig:
1. Á árinu 1988 skal gjaldið vera kr. 69.50 á
einstakling á mánuði, að viðbættri fjárhæð er
samsvarar þeirri hækkun er verður á
meðaltekjuskattsstofni einstaklinga á öllu landinu
milli tekjuáranna 1986 og 1987. Rikissjóður skilar
þessu gjaldi i fyrsta skipti 15. febrúar 1988.
2. Á árinu 1989 ákvarðast gjaldið á hvern einstakling á
mánuði i samræmi við endanlega ákvörðun gjaldsins frá
fyrra ári, að viðbættri hækkun er samsvarar þeirri
hækkun, er kann að verða á meðaltekjuskattsstofni
einstaklinga á öllu landinu milli tekjuáranna 1987 og
1988, þegar tekjuskattsstofn tekjuársins 1987 hefur
verið reiknaður eftir sömu reglum og munu gilda við
útreikning tekjuskattsstofns tekjuársins 1988.
3. Á árinu 1990 og siðar ákvarðast gjaldið af endanlegri
ákvörðun gjaldsins frá fyrra ári, að viðbættri
hækkun, er kann að verða á meðaltekjuskattsstofni
einstaklinga á öllu landinu eins og hann breytist
milli næstliðinna tekjuára á undan gjaldári.
Hækkun á gjaldi samkvæmt þessari grein skal ákvarðast af
kirkjumálaráðherra i samræmi við upplýsingar frá
ríkisskattstjóra og Þjóðhagsstofnun eigi síðar en 1. ágúst
ár hvert. Þar til ákvörðun þessi liggur fyrir skal
ráðherra ákveða uppigreiðslu gjaldsins fyrir mánuðina
janúar til júli ár hvert, á grundvelli spár um tekjuþróun
tveggja næstliðinna ára.
Hver kirkjugarður á rétt á gjaldi skv. 1. mgr. fyrir hvern
þann sem er 16 ára og eldri i lok næstliðins gjaldárs og
býr á þvi svæði er rétt á til kirkjugarðsins, miðað við 1.
desember næst á undan gjaldári. Rikisbókhald annast
skiptingu gjaldsins.
Gjald vegna manna sem eru óstaðsettir á landinu skv.
þjóðskrá greiðist til kirkjugarðasjóðs, sbr. 27. gr.
3. gr.
27. gr. laganna orðist svo:
Stofna skal sjóð, er nefnist kirkjugarðasjóður. Tekjur
sjóðsins eru 8% af kirkjugarðsgjöldum.