19. júní - 19.06.2010, Blaðsíða 5
5
Í ár eru fjölmörg merk tímamót í kvennabaráttunni sem konum er
bæði ljúft og skylt að minnast: Það eru 90 ár liðin frá því að allar konur
fengu kosningarétt, 80 ár liðin frá stofnun Kvenfélagasambands
Íslands, 40 ár frá stofnun Rauðsokkuhreyfingarinnar, 35 ár
frá fyrsta kvennafrídeginum, 30 ár frá forsetakjöri frú Vigdísar
Finnbogadóttur, 20 ár frá stofnun Stígamóta og 15 ár frá samþykkt
Pekingáætlunarinnar, svo það helsta sé nefnt.
Það er rík ástæða til að fagna öllum þessum tímamótum og því
hafa fjölmörg kvennasamtök tekið saman höndum til að fagna
þeim og ítreka enn einu sinni kröfuna um að konur njóti sömu
réttinda og tækifæra og karlar. Að öðrum ólöstuðum, má þakka
Guðrúnu Jónsdóttur, kvennabaráttukonu og framkvæmdastýru
Stígamóta, fyrir hennar frumkvæði varðandi þetta sameiginlega,
metnaðarfulla átak.
Þau félög sem koma að átakinu eru: Kvenréttindafélag
Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, Samtök um kvennaathvarf,
Femínistafélag Íslands, Zontasamband Íslands, Kvennaráðgjöfin,
Bríet - félag ungra feminista, Unifem, Samtök kvenna af erlendum
uppruna, Landssamband Soroptimista, RIKK, Mæðrastyrksnefnd,
Sólstafir á Vestfjörðum og Kvennasögusafnið.
Mikill einhugur hefur ríkt meðal þessara kvennasamtaka um
Kvennafrídaginn 2010 og ákveðið var að Kvennafrídagurinn yrði
að þessu sinni helgaður baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir rithöfundur kemur einnig að átakinu.
Hún er höfundur bókarinnar Á mannamáli, sem er tímamótaverk
um þá þögn sem ríkir um ofbeldið sem hundruð kvenna mega
sæta hér á landi á hverju ári. Þórdís ákvað jafnframt að láta hluta
af söluhagnaði bókarinnar renna til stuðnings Kvennafrídagsins
2010.
Kvennafrídagurinn 2010
24. október er á sunnudegi í ár, þannig að dagurinn sem slíkur
hentar vel fyrir alþjóðlegan viðburð. Þess vegna verður ekki um
að ræða einstakan kvennafrídag að þessu sinni, heldur þriggja
daga viðburð frá laugardegi til mánudags, sem nær hámarki
sínu mánudaginn 25. október með kröfugöngu og útifundi á
Arnarhóli - sem fulltrúar kvennasamtakanna hafa sín á milli kallað
Hallveigarbrekku.
Með hliðsjón af því hve breið samstaða er innan kvenna-
hreyfinganna um Kvennafrídaginn 2010 kom fljótt í ljós að lunginn
úr þeim samtökum sem koma að deginum er með norræn,
evrópsk eða alþjóðleg tengsl við systursamtök. Sú hugmynd
kom þá fram að hver samtök myndu beita sér fyrir því að bjóða
systursamtökum sínum hingað til lands helgina 23. – 24. október
með það fyrir augum að þau slægjust í hópinn með okkur í
kröfugöngu mánudaginn 25. október.
Þá var einnig ákveðið að fara í „útrás“ með íslenska
kvennafrídaginn og halda alþjóðlegan kvennafrídag þann 25.
október undir yfirskriftinni „Women strike back“.
Kvennafrídagurinn 2010 lítur því þannig út að einstök samtök
eða félög hafa laugardaginn 23. október til ráðstöfunar fyrir
fundi með fjölþjóðlegum eða alþjóðlegum systursamtökum,
sunnudaginn 24. október verður alþjóðleg ráðstefna helguð
baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og mánudaginn 25. október
verður farið í kröfugöngu í miðborginni, sem lýkur með útifundi
á Arnarhóli.
Á fyrsta kvennafrídeginum árið 1975 er talið að alls hafi
90% kvenna lagt niður störf eða nánast helmingur þjóðarinnar,
til þess að krefjast sömu réttinda og launa og karlar nutu á
vinnumarkaði.
Á 30 ára afmæli kvennafrídagsins, árið 2005, var á ný brotið
blað í baráttusögu íslenskra kvenna þegar tæplega 50 þúsund
konur söfnuðust saman í miðbæ Reykjavíkur og kröfðust jafnréttis
í reynd, því þrátt fyrir áratuga baráttu hafði lítið áunnist.
Við treystum því að konur taki kvennafrídaginn 25. október frá
og að við sýnum enn einu sinni samstöðumátt okkar í verki. a
Margrét K. Sverrisdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands
Merkisár í
kvennabaráttunni
4-5 Norræntmerkisar.indd 3 6/1/10 2:31:17 PM