19. júní


19. júní - 19.06.2010, Blaðsíða 26

19. júní - 19.06.2010, Blaðsíða 26
sagt það áður og segi enn, að samstaða kvenna er beittasti búrhnífurinn. Við mættum því vel bera meira traust hver til annarrar, vera duglegri að hampa hver annarri og vitna hver í aðra. Upphefð einnar okkar sáldrast nefnilega yfir okkur hinar.“ Skrifar söngleik fyrir alla fjölskylduna Gerður er gift Kristjáni B. Jónassyni, bókaútgefanda og formanni Félags íslenskra bókaútgefenda. Þau eiga tvo syni, Hjalta, 2 ára og Skírni, 5 ára. Verkaskiptingin á heimilinu hefur aldrei verið til neinnar sérstakrar umræðu, heldur bara komið af sjálfu sér. „Kristján er betri kokkur en ég og aldrei hef ég búið í svo víðfeðmum salarkynnum að það hafi vafist fyrir mér að þrífa í kringum mig. Eftir að börnin komu til sögunnar hafa kvöldfundir Kristjáns stundum orðið mikilvægari mínum en á móti kemur að á hverju ári fer ég ein míns liðs til útlanda eða út á land til að skrifa. Þá hugsar Kristján vitaskuld um heimilið og synina. Annars forgangsraða ég hlutum eftir mínu höfði og það truflar mig ekki þótt leikföng barnanna liggi á stofugólfinu. Það þarf ekki allt að vera fullkomið heima hjá okkur. Það má alveg sjást að á heimilinu býr fólk sem leikur sér og nýtur lífsins saman. Og hvað með það þótt það sjáist á stofusófanum að yngri sonur minn skuli hafa fundið sig tilknúinn að bera á hann maskara?“ Gerður er afkastamikill rithöfundur. Hún er um þessar mundir að skrifa söngleik að beiðni Þjóðleikhússins. Hann er unninn upp úr Ballinu á Bessastöðum og Prinsessunni á Bessastöðum og er ætlaður allri fjölskyldunni. Auk þess er hún að skrifa ljóðabók sem kemur út í haust. Hún nýtur þess að skrifa og telur það forréttindi að fá að vinna heima. Leikskólinn er stutt frá heimilinu og Gerður vinnur meðan drengirnir eru þar. „Einmitt svona vil ég hafa lífið. Ég réri að því öllum árum að geta einn daginn hætt að vinna sem ritstjóri og helgað mig skáldskapnum. Ég gætti mín því á að greiða niður námslánin á meðan ég var á sæmilegum launum og koma mér ekki í neinar skuldir.” Þéttum raðirnar Þótt nóg sé að gera hjá Gerði við skriftir og barnauppeldi gefur hún sér tíma til að lesa góðar bækur. Hún var að ljúka við bókina Veröld sem var, sjálfsævisögu austurríska gyðingsins Stefans Zweig. „Það er margt hægt að læra af þessari bók. Þar stendur til dæmis þetta: „Við töldum okkur ekki skylt að taka þátt í neinni vitleysu, þó að veröldin hagaði sér fáránlega“. Þessu er gott að fara eftir,“ segir Gerður. Hún er ákveðin í því að taka þátt í kvennafrídeginum næsta haust og hlakkar til hans. „Við konur þurfum að halda áfram að þétta raðirnar. Samstaða karla er dásamleg og við megum margt af henni læra. Það á ekki síst við þegar illa gengur. Við verðum að láta konurnar sem við komum til valda finna að við stöndum líka við bakið á þeim þótt á móti blási og hvetja þær áfram. Herópið „Áfram stelpur!” á enn fjarska vel við.” a 26 24-27 Upphefð Gerður Kristnypil4 4 6/2/10 11:19:12 AM

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.