19. júní


19. júní - 19.06.2010, Blaðsíða 8

19. júní - 19.06.2010, Blaðsíða 8
staðna í túninu heima og valdi Frakkland vegna áhuga á listum og bókmenntum,“ segir Vigdís sem hefur alla tíð ýtt undir styrk kvenna og viljað vinna að bættum kjörum þeirra. Ekki síst með því að glæða áhuga þeirra á menntun. Enginn helgur steinn Þegar Vigdís varð áttatíu ára 15. apríl sl. var haldin vegleg hátíð í Háskólabíói fyrir fullu húsi. Þá var hún sæmd heiðurs- doktorsnafnbót við Háskóla Íslands og gerð að heiðursborgara Reykjavíkur. Það er tæpast hægt að sjá að Vigdís sé komin á þen- nan aldur. Hún hefur meira en nóg að gera og er eftirsóttur fyrir- lesari víða um heim. „Ég er fegin að hafa svona mikið að gera,“ greinir hún frá. „Það heldur gráu sellunum gangandi. Ég passa reyndar líka vel upp á heilsuna.“ Vigdís hefur starfað mikið fyrir UNESCO hin síðari ár. „Nýlega tók nýr forstjóri við þar, fyrsta konan í því embætti. Hún hefur sett mig í átján manna ráð sem á að skilgreina hvernig menningarsvæði geta nálgast til að auka friðarlíkur. Þá er ég velgjörðarsendiherra í tungumálum og fer á ráðstefnur þar sem rætt er um varðveislu tungumála og mikilvægi þeirra,“ segir Vigdís. „Það er alltaf verið að spyrja mig hvort ég ætli ekki að fara að setjast í helgan stein en ég hef ekki fundið hann hingað til,“ segir Vigdís og trúlega eru margir fegnir að svo sé ekki. Enn eru mörg brýn verkefni fyrir hana bæði hér og erlendis. Vigdís þarf að ferðast mikið vegna starfa sinna, mest til annarra Norðurlanda, Frakklands og Madridar, þar sem hún situr í stjórn lýðræðissamtakanna Club de Madrid. Á árinu 2001 var miðstöð erlendra tungumála við Háskóla Íslands kennd við Vigdísi Finnbogadóttur en þaðan er stýrt kennslu í 14 tungumálum. Auk þess stendur til að opna Vigdísarstofu, alþjóðlega fræðslumiðstöð í tungumálum, á háskólasvæðinu. Konur og friðarmál Vigdís er einnig í alþjóðlegri dómnefnd á vegum UNESCO um friðarverðlaun sem Henry Kissinger bauð henni að eiga sæti í. „Þar hef ég heldur betur haft hlutverki að gegna,“ útskýrir hún. „Ég er fyrsta konan sem sit þar með sex prýðilega íhaldssömum körlum. Þessi nefnd, sem árlega á að finna verðugan aðila fyrir mikilvæg friðarverðlaun, hefur starfað í næstum tvo áratugi. Hún hefur aðeins tvisvar valið konu, hin fyrri var Sadako Ogata (1995) sem þá hafði stýrt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og deildi hún verðlaununum með þeirri stofnun. Hin konan var Mary Robinson (2000) þegar hún veitti forstöðu Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna. Mitt hlutverk í þessari friðarverðlaunanefnd hefur verið að benda á að það sé aðkallandi fyrir heimsbyggðina alla að því sé veitt athygli hverju konur fá áorkað í friðarmálum, og að konur fái þessi verðlaun til jafns við karla. Kissinger var mjög sammála mér en nú hefur hann afsalað sér formennsku og er hættur að koma á fundi. Ég hef eytt miklum tíma undanfarið í að afla mér gagna um konur sem ég ætla að nefna til sögu á næsta fundi okkar nú um miðjan júní. Ég hætti ekki fyrr en ég hef komið að konu til hljóta verðlaunin,“ segir Vigdís ennfremur og bætir við: „Þegar rætt er um þessa aðkomu kvenna að friði er körlunum, samstarfsmönnum mínum, svo áfram um að friðarárangur verði að vera sýnilegur, að það þurfi að hafa verið stríð og kominn á friður. Marrti Athisaari, fyrrverandi Finnlandsforseti, fékk t.d. þessi verðlaun fyrir tveimur árum fyrir aðkomu sína að friðarumleitunum í Kosovo, en í fyrra fékk þau Lula Da Silva, forseti Brasilíu, fyrir að lægja ólgu í þjóðfélaginu. Það eru líka konur sem hafa náð þeim árangri með stakri snilld, eins og Michelle Bachelet, forseti í Chile, þar til nýlega, og Ellen Johnson Sirleaf, forseti Líberíu.“ Gildin riðluðust Það er ekki úr vegi að minnast á breytingarnar í þjóðfélaginu undanfarið en Vigdís hefur sterkar skoðanir á þeim sem fyrrverandi leiðtogi þessa lands. „Ég fæddist inn í erfiðan krepputíma rétt fyrir síðustu heimsstyrjöld. Þegar henni lauk tók við frelsið en þjóðin var enn í sárri fátækt. Það var kynslóð foreldra minna sem byggði þetta þjóðfélag upp til betri vegar. Glæpir voru fátíðir í þá daga. Síðar kom gríðarleg auðhyggja og gildin riðluðust. Þessi auðhyggja og ákaflyndi í það veraldlega hefur mér fundist fara mjög illa með þjóðina. Það var sannarlega hlaupið eftir vindi.“ En ertu vongóð um framtíðina? „Já, að sjálfsögðu er ég er það. Við þurfum að vísu að fara í mikla og djúpa sjálfskoðun. Ekki síst þurfum við að hjálpa börnunum að greina á milli verðmæta. Ég hef til dæmis tamið mér að gefa börnum helst bækur eða litadót, sem er skapandi fyrir hugann. Einnig tel ég ábyrgðarhluta ef börn ánetjast tölvu því hún er næsti bær við fíkn. Tölvan getur verið góð en hún má ekki taka yfir hið daglega líf. Sjálf byrja ég reyndar daginn alltaf á því að fara í tölvuna og skoða póstinn minn. Ég er t.d. áskrifandi að trúmálavef Þjóðkirkjunnar og fæ senda á hverjum degi fallega tilvitnun sem leiðir mig inn í daginn. Ég trúi á fegurðina og ég trúi á hið góða orð. Það er margt og mikið gott í okkur Íslendingum og nú síðast hef ég hrifist af því hvernig sjálfboðaliðar hafa flykkst austur undir Eyjafjöll til hjálpar bændum þar. Þessi hjálpsemi er svo jákvæð í okkar þjóð en það neikvæða er hvað okkur er tamt að agnúast út í náungann. Því miður kann fólk ekki að rökræða heldur velur fremur að rífast. Við eigum undir engum kringumstæðum að hengja okkur í fortíðina. Ef við temjum okkur heiðarleika, velvild, kærleika, hjálpsemi og kurteisi kemst þjóðin fyrr en við vitum úr vanda sínum og þeim erfiðleikum sem að okkur steðja nú um stundir.“a 8 Við bjóðum nákvæmlega jafn margar tegundir af debetkortum og fólk þarf. Eina. Netgreiðsluþjónusta Gjaldeyrisreikningar Sparnaðarreikningar Yfirdráttur Varfærni, einfalt þjónustuframboð og örugg vinnubrögð skipta öllu máli fyrir fólk og fyrirtæki. Þannig á banki að vera. Það er minna mál að skipta um banka en þú heldur. Hafðu samband í síma 540 3200. Debetkort Launareikningur Kreditkort Netbanki Sigríður Einarsdóttir, útibússtjóri Ármúla. Borgartúni 26 · Ármúla 13a · www.mp.is 6-8 Truir a.. Vigdis.indd 4 6/2/10 11:23:03 AM

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.