19. júní


19. júní - 19.06.2010, Blaðsíða 48

19. júní - 19.06.2010, Blaðsíða 48
Starfið Starf KRFÍ á starfsárinu 2009-2010 var fjölbreytt að vanda. Að aðalfundi loknum í mars 2009 var boðið til súpufundar í apríl um konur og umhverfismál undir yfirskriftinni: Lykilstaða kvenna í umhverfismálum. Þar fluttu erindi Guðrún G. Bergmann, rithöfundur og umhverfissinni, Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona og Margrét K. Sverrisdóttir, formaður KRFÍ sem þá var nýkomin af ráðstefnu í Kaupmannahöfn um kyn og loftslagsbreytingar. Félaginu berast jafnan margar umsóknir um styrki frá félagasamtökum og einstaklingum. Ein slík styrkbeiðni barst frá aðstandendum sýningarinnar Orbis Terræ Ora sem sett var upp í Þjóðmenningarhúsinu í maí 2009. Höfundar og aðrir aðstandendur sýningarinnar voru konur og fjallaði sýningin m.a. um mikilvægi þess að gæta mannréttinda allra, líka kvenna. Var ákveðið að styrkja sýninguna með þeim hætti að félagið greiddi aðgang stjórnarinnar að sýningunni og gerði stjórn KRFÍ sér því glaðan dag í leiðinni. Var það skoðun stjórnar að nauðsynlegt væri að eiga slíkar stundir milli stríða því stjórnarkonur vinna ólaunað og óeigingjarnt starf fyrir félagið sem vex sífellt að umfangi. Einna mest hefur samstarfsverkefnum hverskonar fjölgað, bæði við innlenda og erlenda aðila. Á afmæli kosningaréttar kvenna, 19. júní, buðu félögin þrjú á Hallveigarstöðum, þ.e. KRFÍ, Kvenfélagasamband Íslands og Bandalag kvenna í Reykjavík, til veglegra hátíðarhalda því mörgu var að fagna í kvenréttindabaráttunni; þá um vorið hafði ríkisstjórnin, í fyrsta sinn undir forystu konu, og skipuð jafn mörgun konum og körlum, samþykkt aðgerðaáætlun vegna mansals á Íslandi auk þess sem að ný lög voru samþykkt á Alþingi sem gerðu kaup á vændi refsivert athæfi. Á mælendaskrá á hátíðardagskránni voru Margrét K. Sverrisdóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, Margrét Steinarsdóttir, þáverandi framkvæmdastjóri Alþjóðahúss og sérfræðingur í mansalsmálum og Lára Ómarsdóttir sem ritstýrði 19. júní það árið. Einnig kynnti Sabine Leskopf, formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna, nýjan bækling samtakanna og úthlutað var úr Menningar- og minningarsjóði kvenna við sama tækifæri. Styrkþegar sjóðsins voru óvenjumargir það árið: 3 aðalstyrkir voru veittir konum sem nýlega höfðu misst atvinnu sína og hugðust nota tíma atvinnuleysis í frekara nám, og 5 minni styrkjum var úthlutað til kvenna sem allar stunduðu nám í starfsendurhæfingu hjá Kvennasmiðjunni, sem er endurhæfingarúrræði fyrir einstæðar mæður sem eiga það sameiginlegt að hafa átt erfitt með að fóta sig á vinnumarkaði og í námi af ýmsum ástæðum. Á árinu 2009 voru Íslendingar í forsvari fyrir Norðurlandasamstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar. Kvenréttindasamtök Norðurlandanna í NOKS-samstarfinu halda fundi í því landi sem fer með formennsku hverju sinni auk þess sem norræn ráðstefna um jafnréttismál er haldin við sama tækifæri. KRFÍ sá því um að skipuleggja fund fyrir þau félög sem starfað hafa innan NOKS (Nordiske kvinder i samarbejde) ásamt því að halda ráðstefnu. Einnig var Grænlendingum boðið til fundarins og ráðstefnunnar og kom þaðan starfsmaður frá Jafnréttisráði Grænlands. Tími viðburðinna var valinn í kringum fæðingardag Bríetar Bjarnhéðinsdóttur 27. september, en sú hefð hefur skapast innan starfs félagsins að efna til málþings um jafnréttismál í minningu Bríetar. NOKS-fundurinn var haldinn föstudaginn 25. september og norræna ráðstefnan 26. september 2009. Kvenréttindafélag Íslands hlaut styrk frá Norrænu ráðherra- nefndinni til þess að halda ráðstefnuna. Styrkurinn gerði félaginu kleift að bjóða hingað til lands tveimur fulltrúum systurfélaganna á Norðurlöndum, auk eins erlends fyrirlesara. Yfirskrift ráðstefnunnar var Kyn og kreppa – má nýta kreppuna til aukins kynjajafnréttis? Fyrirlesarar voru: Carita Peltonen, sérfræðingur í jafnréttismálum og fyrrverandi starfsmaður Norrænu ráðherranefndarinnar, Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu, Sigríður Snævarr, annar aðstandenda Nýttu kraftinn, Gyða Margrét Pétursdóttir, félags- og kynjafræðingur og Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital. Einnig flutti menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, ávarp í upphafi ráðstefnunnar og ráðstefnuslit voru í höndum Margrétar K. Sverrisdóttur. Að loknum erindum og hádegisverði gafst ráðstefnugestum kostur á því að vinna í tveimur hópum undir stjórn Maríönnu Traustadóttur, jafnréttisfulltrúa ASÍ annars vegar og Silju Báru Ómarsdóttur, aðjúnkts við stjórnamálafræðideild Háskóla Íslands, hins vegar. Fundarstjóri var Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta. Niðurstöður ráðstefnunnar voru þær helstar að mikilvægt væri fyrir konur að vinna saman þvert á ýmsa hópa í samfélaginu líkt og stjórnmálaflokka; véfengja þyrfti ríkjandi skipan samfélagsins og þrýsta á breytingar og að fá karla með í baráttuna, en gera þeim jafnframt ljóst að þeir þyrftu að láta eftir vald til kvenna ef jafnrétti kynjanna ætti að nást. Einnig var minnt á það að konur hafa mikil völd þegar kemur að innkaupum fjölskyldunnar þannig að konur geta breytt miklu með því að beina sjónum sínum að jafnréttissinnuðum og réttlátum vöru- og þjónustufyrirtækjum. Í byrjun nóvember var haldinn súpufundur á Hallveigarstöðum um sýnileika kvenna í fjölmiðlum. Framsögu höfðu Svanhildur Skýrsla stjórnar Kvenréttindafélags Íslands, starfsárið 2009-2010 Stjórn Á aðalfundi KRFÍ, sem haldinn var 18. mars 2009, var kosið í embætti formanns. Margrét K. Sverrisdóttir, sem var kosin varaformaður árið áður, var kjörin formaður til tveggja ára. Á aðalfundi í ár, 2010, var því embætti varaformanns til kjörs, en samkvæmt lögum félagsins skal kosið um embætti formanns og varaformanns sitthvort árið. Öll sitjandi stjórn KRFÍ gaf einnig kost á sér til áframhaldandi setu. Helga Guðrún Jónasdóttir var sjálfkjörin varaformaður og stjórnin var endurkjörin með dynjandi lófaklappi. Á fyrsta framkvæmdastjórnarfundi eftir aðalfund, skipti stjórnin með sér verkum á þann hátt að Guðrún Margrét Guðmundsdóttir er ritari og Margrét Steinarsdóttir er áfram gjaldkeri. Auk þess eru meðstjórnendur Hildur Helga Gísladóttir, Ragnheiður Bóasdóttir, Ragnhildur G. Guðmundsdóttir og Sólborg A. Pétursdóttir. Í aðalstjórn KRFÍ eru nú f.h. stjórnmálaflokkanna á Alþingi: Andrés Ingi Jónsson fyrir Vinstrihreyfinguna–grænt framboð, Baldvin Björgvinsson fyrir Hreyfinguna, Guðrún Erla Geirsdóttir fyrir Samfylkinguna, Hildigunnur Lóa Högnadóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Inga Guðrún Kristjánsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn. 48 46-49 Skyrsla stjornar.indd 2 6/2/10 1:15:54 PM

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.