Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2007, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007
Helgarblaö DV
Þegar séra Jóna Hrönn Bolladóttir,
prestur í Garðaprestakalli, var mið-
borgarprestur, varði hún mörgum helg-
um á lítilli kaffistofu í Austurstræti.
Ungmenni sem voru að skemmta sér í
miðborginni sóttu mikið í staðinn, enda
fannst þeim dýrmætt að finna þar
innandyra fullorðið fólk sem gaf sér
tíma til að hlusta á þau af áhuga. Þegar
vangaveltur um sjálfsvíg komu upp
brást fullorðna fólkið rétt við.
5"
* " '
Jóna Hrönn Bolladóttir
„Mildlvægt að allar
stofnanirvinni saman,
eins og kirkjan, skólar,
lögreglan, heilsugæslan
og félagsþjónustan."
LUSTUN MIKILVÆGUST
Einn stærsti þátturinn í starfi margra
presta er sálgæsla.. Séra Jóna Hrönn
Bolladóttir, prestur í Garðabæ þekk-
ir vel til samfélagsins og til hennar
kemur fólk sem langar ekki að lifa.
Þegar við erum sestar inn á skrif-
stofu hennar í kirkjunni byrjar hún
á að segja mér af predikun sem hún
flutti á sunnudaginn var.
„Þar rifjaði ég upp endurminn-
ingar séra Friðriks Friðrikssonar,
sem var einhver dáðasti maður fs-
lands á 20. öld og sá sem hafði gríð-
arlega jákvæð áhrif á líf ungs fólks.
Hann segir frá því í æviminning-
um sínum að þegar hann var ungur
maður hafi hann orðið fyrir ástar-
sorg og gengið með sjálfsvígshugs-
anir. Glíma hans var þessi: Hann
vildi ekki að stúlkan sem gat ekki
svarað ást hans gæti tengt það því
að hann svipti sig lífi og bæri þær
byrðar alla ævi. Svo átti hann móð-
ur sem bar óhemju umhyggju fyrir
honum og hafði reynst honum svo
mikill stuðningur að hann gat ekki
lagt það á hana að svipta sig lífi.
Hann tók þá ákvörðun að fara um
borð í skip á leið til Kaupmanna-
hafnar og sviðsetja slys svo enginn
tengdi það við sjálfsvíg. Hann lýsir
því svo vel í bókinni hvernig hann
kvaddi alla vinina með bros á vör,
þóttist vera örlítið drukkinn, en var
bláedrú, og hvernig hann barðist
við grátinn með andlitið hlæjandi,
sem sagt settí upp grímu. Þetta er
svo sterk lýsing, þetta gerði hann til
að vekja engar grunsemdir um ætl-
unarverk sitt. Maður heyrir oft fólk
segja um þann sem hefur svipt sig
lífi: „Hann var einmitt svo glaður.
Ég hélt að hann væri að koma upp
úr þessum dimma dal. Og þá gerði
hann þetta." Stundum getum við til
dæmis aldrei vitað hvort sum slys
eru slys eða sviðsett af þeim sem
deyr til að lina þjáningar aðstand-
enda."
Lengra en til Vestmannaeyja,
styttra en til Færeyja
Eins og margir aðrir sem ákveð-
ið hafa að svipta sig líf! virtist Friðrik
vilja gefa góðum vini tækifæri á að
þekkja líðan hans. En viðkomandi
skynjaði ekki alvöru málsins:
„Á leiðinni í skipið hitti hann
skólabróður sinn úr Latínuskólan-
um sem Friðrik leit mjög upp til.
Skólafélaginn spurði: „Hvert ertu að
fara Friðrik?" Þá svaraði Friðrik: „Ég
er að fara lengra en til Vestmanna-
eyja en styttra en til Færeyja." Hann
var með öðrum orðum að segja
þessum skólabróður að hann ætl-
aði að fremja sjálfsvíg. Skólabróð-
irinn tók þessu sem glensi, hló og
kvaddi. Þetta kennir okkur að vera
virkir hlustendur, sérstaklega í sam-
skiptum við fólk sem hefur átt erflða
daga og glímt við þunglyndi. í þessu
tilfelli var ekki erfitt að lesa milli lín-
anna, en sumum tekst vel að leyna
h'ðan sinni. Hvað lestu úr þessu:
Lengra en til Vestmannaeyja, styttra
en til Færeyja? Um borð hittí Frið-
rik ógæfumann, sem gerði hann að
trúnaðarmanni sínum og allt í einu
var Friðrik kominn í stöðu sálu-
sorgara. Hann fer að hugga þenn-
an mann og svara angist hans og
þar með sinni eigin angist. Þessi frá-
sögn segir okkur tíl dæmis það hvað
tilgangsleysið er mikill örlagavaldur.
Allt í einu fékk Friðrik hlutverk og
skipsferðin fékk allt annan tilgang,
þann að mæta ógæfumanni í djúpri
örvæntingu. Þessi frásögn kennir
okkur það hversu mikilvægt það er
að hlusta á hvert annað. Þess vegna
er sálgæslan svo mikilvæg þjón-
usta innan kirkjunnar því sálgæsla
er ekkert annað en virk hlustun og
samleið. Þetta getum við öll gert í
daglegu hfi."
Stöðugt áreiti
„Ég held að við upplifum í sam-
félagi okkar mikið áreití og þeir eru
fáir staðirnir þar sem þú getur vitað
að á þig sé hlustað. Til dæmis er sú
nýjung komin í skólana og á marga
vinnustaði að hafa opin rými sem ég
held að geti haft neikvæð áhrif á sum
börn, allavega gæti ég ekki unnið í
slficum aðstæðum. Geta börn í skól-
um dregið sig í hlé og fengið óskipta
athygli fullorðins einstaklings þegar
dagarnir verða þungir? Ég held að
það sé sjaldgæft miðað við bekkja-
stærðir og það álag sem er á starfs-
fólki skólanna. Það var við þessu
áreití og álagi sem við hér í Garða-
prestakalli vorum að mæta með
verkefni sem fékk nafnið Vinaleið.
Það voru prestur og djákni sem fóru
inn í skólana til að vera til staðar og
hlusta. Það er staðreynd að þung-
lyndi eykst hjá börnum og börn-
in verða yngri þegar depurð getur
lagst yfir þau. Ég er alveg sannfærð
um að í þeim óróleika og áreití sem
við lifum við í dag verðum við að
finna hvíldarstaði, úrvinnslustaði
og kyrrðarstaði innan skólanna fyr-
ir börnin og unglingana, fyrir oklóir
miðaldra fólkið sem erum að kafha
í hlutverkum okkar og skyldum
og svo félagslega einangraða fólk-
ið sem þarf virka hlustun og kær-
leiksríkt samfélag sem ógnar því
ekki eða gerir of miklar kröfur. Ég er
sannfærð um að þarna á kirkjan að
vera tíl staðar. f Vinaleiðinni var sú
hugsun að börnin gætu átt trúnað-
armann innan skólans. Við þekkj-
um mikilvægi þess, tíl dæmis innan
AA-hreyfingarinnar. Virk hlustun er
það sem gildir. AA-hreyfingin er ein
snilldarlegasta aðferðaffæðin að
bata fólks. Fólk fer einfaldlega ekki
inn í sína tílfinningalegu úrvinnslu
„Ég hefofthugsað afhverju heilbrigðisstarf-
semin sem snýr að geðrænum sjúkdómum er
ekki skilvirkari og afhverju er takmarkað rými
þegar það er auking á fólki sem þarfumönnun
á sviði geðrænna erfiðleika. Svo þyrftum við að
virkja þetta Innlit-útlit fólk til að taka geðdeild-
irnarí gegn og fegra umhverfi þeirra"
ur eru svo vanmáttugir. Það þyrfti
líka að hafa meiri umgjörð og hugs-
un í því hvernig aðstandendum er
mætt. Þarna eigum við að vanda
okkur og setja ekki bara meira fé,
heldur umhugsun í starfsemi geð-
deildanna og slíkt er í mínum huga
mikið forvarnastarf gegn sjálfsvíg-
um. Það þarf að halda af einstakri
fagmennsku og kærleika utan um
þá sem glíma við geðræna sjúk-
dóma og fólkið þeirra. Ég held að
það þyrfti að kalla til miklu breið-
ari hóp til að vinna á þessu sviði,
en auðvitað er aðalatriðið að það
sé tryggt að fólk komist að á geð-
deildunum og ekki síst þegar það er
í bráðri lífshættu."
öðruvísi en geta borið sig upp við
einhvern. Arásir örfárra einstakl-
inga á Vinaleið hafa komið veru-
lega á óvart og orðið okkur mörgum
mikið sorgarefni."
Jána Hrönn segist hafa mikl-
ar áhyggjur af fjölda sjálfsvíga á Is-
landi oghún bendirá leiöirsem hún
telur aö geti veriö til úrbóta.
„Við þurfum að leggja einstaka
alúð við geðdeildirnar og-spara þar
hvergi. Ég hef komið inn á bráða-
móttökurnar og þar er mikill mann-
auður í starfsfólki sem er undir of
miklu álagi. Ég hef oft hugsað af
hverju heilbrigðisstarfsemin sem
snýr að geðrænum sjúkdómum er
ekki skilvirkari og af hverju er tak-
markað rými þegar það er auking á
fólki sem þarf umönnun á sviði geð-
rænna erfiðleika. Svo þyrftum við
að virkja þetta Innlit-útíit fólk tíl að
taka geðdeildirnar í gegn og fegra
umhverfi þeirra. Inni á geðdeildum
þarf að vera meiri virkni og ég held
að það væri stórkostlegt ef við gæt-
um fengið listamenn til að starfa í
slíku umhverfi. Lífið á geðdeildinni
er svo þjáningafullt og aðstandend-
Það á alltaf að taka mark á
vangaveltum um sjálfsvíg
Jóna Hrönn gegndi starfi mið-
borgarprests um sjö ára skeiö og
þekkir því margt í hugsun ung-
menna.
„Við vorum með aðsetur á efri
hæð gamla Hressingarskálans og
þangað komu margir krakkar sem
voru að skemmta sér í bænum,
bæði til forvitnast og til að fá að-
hlynningu. Fyrir mörg þeirra var
það dýrmæt reynsla að sitja við
kertaljós, súpa á heitu kakói og tala
við fullorðið fólk sem gaf sér tíma tíl
að hlusta á þau af einlægum áhuga.
Það fólst ótrúlegur styrkleiki í þvf að
hafa velviljað, edrú fólk á vettvangi
sem sýndi virka hlustun og það kom
margt mikilvægt fram í samtölun-
um. Þar sem voru sjálfsvígshugsanir
var brugðist við með eftírfylgd. Við
verðum alltaf að taka mark á slfioim
vangaveltum og bregðast við."
Þarf heilt þorp til að ala upp
eitt barn
En hvað með Vinaleiðina, erhún
ekki verkefni tilframtíðar?
„Vinaleiðin er í uppnámi," seg-
ir Jóna Hrönn. „Tveir skólar af fjór-
um hafa lagt hana niður, einn ætlar
að halda áfram og sá fjórði á eftir að
taka ákvörðun hér í Garðapresta-
kalli. Það er eins og það séu engin
mörk á því hvernig hægt er að gera
hlutí og verkefni tortryggileg í um-
hverfi okkar þrátt fyrir lítið samfé-
lag. Það er óhemju mikilvægt að
stofnanir samfélagsins standi sam-
an til að geta skapað sameiginlegan
félagsauð fýrir börnin olckar. Það er
sagt að það þurfi heilt þorp tíl að ala
upp eitt barn. Þetta verðum við að
hafa í huga í okkar íslenska samfé-
lagi til að koma í veg fyrir að mann-
eskjur týnist og einangrist félags-
lega. Þegar heilt þorp fylgist með er
hægt að koma auga á hætturnar og
koma í veg fyrir slysin. Þess vegna
er svo mikilvægt að allar stofnanir
vinni saman, eins og kirkjan, skólar,
lögreglan, heilsugæslan og félags-
þjónustan. Það er ein leiðin að þvf
að sjálfsvígum fækki og vandamálin
verði ekki óviðráðanleg."
Félagsleg einangrun hættuleg
„Hraði kemur niður á samveru
og samtalinu og þar hefur kirkjan
hlutverk sem vettvangur samtals,
kyrrðar og samfélags við fólk á öllum
aldri og í ólíkum hlutverkum. Við
verðum að tala um náungakærleika
og hjálparstarfvið bömin okkar. Við
eigum að hjálpa þeim að hafa hlut-
verk og finna tilgang. Við verðum að
hjálpa þeim að ná þeirri stöðu að
geta sett sig í spor annarra."
„Það er ótrúlega margt fólk sem
lifir við félagslega einangmn og slíkt
eykur líkur á sjálfsvígum. Við erum
skapaðar félagsverur og við þurfum
öll á vinum og fjölskyldu að halda.
Við mennirnir emm sterkastírþegar
við vinnum saman í hópum en berj-
umst eklci einir. Allir þurfa hvatn-
ingu og hlustun og við þurfum öll
að heyra að við emm óendanlega
dýrmætar og merkilegar manneskj-
ur. Við eigum að hjálpast að við að
tryggja það að fólk haldi sjálfsvirð-
ingu sinni þrátt fyrir andlegt skip-
brot og erfiðar aðstæður af því við
getum öll verið í þeim aðstæðum."
annakrlstlne@dv.ls
Framhald
á næstu opnu