Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2007, Page 36
36 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007
Sport
BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON
bladamaður skrifar: bennl@dv.is
Mesta spennan fyrir leiki helgarinnar
er í B-riðli. Heimsmeistarar Itala eru
þar í þriðja sæti á eftir Skotum og
Frökkum. ftalir fara til Skotlands og
etja kappi við heimamenn á Hampd-
en Park-vellinum, sem hefur verið
þekktur fyrir að vera hálfgert virki.
Tartan-herinn styður skoska liðið
fram í rauðan dauðann og þegar
íslendingar léku þar fyrir nokkrum
árum var stemninginn ólýsanleg.
ítalir hafa aldrei farið til Skotlands og
unnið leik, aðeins skorað eitt mark í
þremur leikjum. Þeir þurfa að grafa
djúpt í reynslubankann sinn til að
ná þeim úrslitum sem þeir þurfa. Ef
Skotar vinna eru þeir komnir á EM, ef
þeir tapa eru þeir úr leik. Jafntefli gæti
dugað ef Úkraína vinnur Frakkland
í lokaleik riðilsins á miðvikudag.
Ólíklegt er að Færeyjar vinni ftalíu en
allt gettn gerst í fótbolta.
Fyrirliði ftala, Fabio Cannavaro,
óttast að ungir leikmenn ítala muni
brotna undan álaginu og stemning-
unni á vellinum. Líklega verða átta
heimsmeistarar í byrjunarliði ítala.
„Ég þekki þessa stemningu og hún
verður ekki á okkar bandi. Hún gæti
haft áhrif á unga leikmenn okkar.
Þetta verður erfiður leikur fyrir okk-
ur. Skotar þurfa líka að vinna, gleym-
um því ekki, og við þurfum að spila
vel og ná þeim úrslitum sem við vilj-
um. Við vitum að við getum það. Við
erum ímynd ítalskrar knattspyrnu og
að nálgast leikinn í öllum þessum erf-
iðleikum sem nú steðja að fótboltan-
um heima fyrir þéttír okkur."
James McFadden segir að leikurinn
á laugardag sé sá stærsti sem hann
muni spila á ferlinum. McFadden var
hetja Skota þegar þeir unnu Frakka í
París ekki alls fyrir löngu. Skotar hafa
ekki komist á stórmót í knattspymu í
10 ár. „Ég mun ekki finna fyrir pressu,
ég ætla að njóta þess að spila því þetta
verður einn stærstí leikur ef ekki sá
stærstí á mínum ferli." Fyrirfram var
ekki búist við miklu af Skotum þar
sem B-riðillinn var talinn einn sá
sterkasti. ftalía, Frakkland og Úkraína
öll í riðlinum og McFadden var einn
þeirra sem bjuggust ekki við miklu.
„Ég hugsaði með mér þegar ég sá
dráttínn, ég er 22 ára, það kemur
önnur keppni eftir þessa. Þetta var
ómögulegt verkefni og ekki í okkar
villtustu draumum hefðum við getað
ímyndað okkur að keppa um laust
sætí þegar svona skammt er eftír."
Alex McLeish, stjóri Skotlands, er
ekki búinn að ákveða byijunarliðið.
É
U
K.
tá
A'--.
J
Gríðarleg spenna er í B-riðli í undankeppni EM.
Heimsmeistarar ítala verða að vinna Skota á
laugardag til að halda í vonina annars eru þeir
dottnir úr leik. Englendingar verða að treysta á
ísraelsmenn sem leika gegn Rússum í E-riðli.
Vinni Rússar komast þeir einu stigi fyrir ofan
England og eiga leik við Andorra í lokaleiknum.
Sex liö eru örugg í lokakeppnina.
■ KmM Hpm «L
í&Sp B m rJS K sa-SB
DADMID
KAKiilK
VERÐAAÐVINNA
„Allir eru heilir og verðskulda að vera
inni á vellinum. Eg veit að við getum
unnið þá en það verður erfitt að velja
í liðið. Hvern á ég að skilja eftír og svo
framvegis. Ef við komumst ekki á EM
verður það að vera svo. Við höfum
hins vegar spilað vel og safnað stigum
sem enginn áttí von á.“
Ekki í höndum Englands
Vonir Englands um að komast í
lokakeppnina næsta sumar eru ekki
lengur í höndum landsliðsins. Eina
von þess er að lenda fyrir ofan Rússa
og lenda í öðru sætí E-riðils. Rússland
TÆKIFÆRUNUM FÆKKAR AÐ KOMAST A EM 2008
Sautján lið berjast um tíu laus sæti á EM í Austurríki og Sviss sem fram fer næsta sumar.
Mikil spenna er fyrir leikjum helgarinnar en siðustu leikirnir fara fram á miðvikudag.
Hér fyrir neðan má sjá hvaða lið eru kominn áfram eða hafa á því möguleika.
A RIÐILL
Pólland
Portúgal
Serbía
Finnland
Pólland-Belgía, Portúgal-Armenia,
Finnland-Azerbaijan, Serbía-Kazakhstan,
Portúgal-Finnland, Serbia-Pólland
C RHDILL STIG _
Grikkland 25
Noregur 20
Tyrkland 18
Grikkland-Malta, Noregur-Tyrkland,
Malta-Noregur, Ungverjaland-Grikkland
E RIÐILL STIG
26
23
21
B RIÐILL
Frakkland
Skotiand
ftalía
Leikirnirsem eftireru:
Úkraína-Frakkland.Skotland-ltalía,
(talía-Færeyjar
D RIÐILL
Tékkland
STIG
Ig Króatía
\ England
Rússland
Makedónía-Króatía, fsrael-Rússland
England-Króatía, Andorra-Rússland
®G RIÐILL
Rúmenía
Holland
Búlgaría
Búlgaría-Rúmenía, Holland-Lúxembúrg,
Rúmenía-Albanía, Slóvenía-Búlgaría,
Hvíta Rússland-Holland
Markahæstu menn
l David Healy N-fRLAND
Eduardo da Silva KRÓATfU
: Cristiano Ronaldo PORTÚGAL 8
IÞýskaland 23 1
Bæöi lið eru kominn
F RIÐILL STIG
Svíþjóð 23
Spánn 22
Danmörk 17'
N.frland
Spánn-Svíþjóð,
N. (rland-Denmark,
Spánn-N. (rland,
Danmörk-lsland,
Svíþjóð-Lettland
12
10
Tomasson DAN, Podolski ÞÝSK, Smolarek PÓL, Villa SPÁNN
© GRAPHIC NEWS
leikur við ísrael á laugardag og sjald-
an eða aldrei hefur enska þjóðin verið
jafnspennt fyrir knattspyrnuleik sem
er leikinn utan Englands og enska
landsliðið ekki að spila. Vinni Rúss-
ar eru þeir komnir langleiðina með
að komast á EM. Þeir eiga Andorra
í lokaleiknum sem er ekki háttskrif-
að í knattspymuheiminum og hefur
tapað 28 leikjum í röð. Ef Rússland
tapar þarf England stíg á mótí Króat-
íu á miðvikudag tíl að komast á EM.
Ef leikurinn á laugardag fer í jafntefli
verður England að vinna Króatíu. Ef
Króatía tapar gegn Makedóníu getur
England komist á EM vinni þeir Króa-
tíu með þremur mörkum. 2-0 gætí
dugað en 3-1 ekki vegna útivallar-
marka Króatíu.
Ljóst er að ef England kemst ekki
í lokakeppnina mun enskur fótboltí
fara í naflaskoðun. Takmörkun á er-
lendum leikmönnum hefur verið
mildð í umræðunni og henni verður
ekki hætt fari svo að England sitji eft-
ir.
í okkar riðli, F-riðli, mætast tvö
efstu liðin, Spánn og Svíþjóð. Jafntefli
dugar Svíum en alit annað en sigur
setur keppnina í uppnám fyrir Spán.
Þá opnast möguleiki fyrir Norður-ír-
land og Danmörku en þau lið mæt-
ast á laugardag. Vinni Norður-frland
báða sína leiki kemst það í 23 stíg,
vinni Danmörk báða sína leiki kemst
hún einnig í 23 stíg. Ef leikur liðanna
fer í jafntefii eru Spánverjar og Svíar
komnir áfram. Spánn mætír Norð-
ur-írlandi í síðasta ieiknum og Danir
leika við okkur íslendinga.
Spenna í flestum riðlum
Pólland kemst á EM vinni það
Belga í A-riðli. Tapi Pólverjar er
enn von fyrir Serbíu og Finnland.
Portúgalar eiga Armena á laugardag á
heimavelli og eiga samkvæmt öllu að
vinna þann leik. Á miðvikudag ieika
þeir við Finna einnig á heimavelli.
Verður að teljast að Portúgalir séu
líklegir tii að komast áfram. Serbar
og Finnar verða að vinna báða sína
leild tíl að eygja von en A-riðilI er
gríðarlega spennandi og verður fylgst
grannt með honum.
Evrópumeistarar Grikkja eru
komnir áfram, þeir lenda ekki neð-
ar en í öðru sæti í C-riðli. Baráttan er
á milli Noregs og Tyrklands um hitt
lausa sætið. f D-riðli eru Þýskaland
og Tékkland komin áfram en í G-riðli
eru Rúmenar komnir áfram. Hollend-
ingar fylgja þeim ef þeir vinna síðustu
tvo leiid sína, svo framarlega að Búlg-
aría misstígi sig.
Sá besti!
Sá flottasti!
Ný bók um
undrabarnið
Cristiano
Ronaldo
Þessa bók
verða allir
knattspyrnu-
fíklarað eigal
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR