Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2007, Blaðsíða 37
PV Helgarblaö
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 37
Eann 17. ágúst 1997 var
^^^Aron Pálmi Ágústs-
son dæmdur til tíu
U ára refsivistar á Ung-
lingaheimilum Texas-
ríkis. Hann var dæmdur
fyrir kynferðisbrot. Sjö af
þessum tíu árum eyddi Aron
í fangelsi, hinum þremur eyddi
hann í stofufangelsi. Eftir að Áron
endurheimti frelsið aftur kom
hann rakleiðis til íslands. Ilér er
hann fæddur, hér eru ræturnar.
Berglind Hásler hitti Aron Pálma
Ágústsson á dögunum. Tilefnið; að
forvitnast um hvernig Aroni gengur
að aðlagast aftur samfélagi manna
eftir tíu ára fjarveru og forvitnast um
nýútkomna bók hans, Enginn má sjá
mig gráta, sem hann skrifaði ásamt
Jóni Trausta Reynissyni.
Þakklátur fyrir góðar móttökur
„Fólk heftir tekið ótrúlega vel
á móti mér. Ég veit ekki hvar ég
væri ef ég hefði ekki þennan góðan
stuðning," segir Aron Pálmi, fullur
þakklætis. Nú eru um það bil tíu
vikur liðnar síðan hann steig aftur á
íslenska grundu, nokkuð sem hann
hafði hlakkað mikið til á meðan hann
var á bak við lás og slá í Texasríki.
Síðan Aron kom hefur drjúgur
tími farið í ýmsa pappírsvinnu.
Það þarf að útvega landvistarleyfi,
atvinnuleyfi, húsnæði og fleira og
fleira. „Ég hef verið á flakki á milli
fjölskyldumeðlima síðan ég kom.
Nú er ég hjá móðursystur minni
í Hafnarfirði og hef verið þar í
mánuð." Aron segir að á heimili
frænku hans sé aðeins einn sem
talar góða íslensku. „Það kemur sér
mjögvel. Það hjálparmérvið að læra
íslenskuna," segir Aron sem stefnir
á íslensku í háskólanum. „Ég hef
þegar tekið eitt íslenskunámskeið
svo ég er að læra þetta svona
smám saman." Aron stundaði
nám í unglingafangelsunum sem
getur vart talist til hefðbundinnar
skólagöngu. Eftir að Aron var komin
í stofufangelsi fékk hann tækifæri
til að ganga í hefðbundinn skóla.
„Mér fannst ótrúlega gaman að vera
í skóla og ég hlakka mikið til að fara
í háskólann hér heima," segir Aron
fullur eftirvæntingar en hann stefnir
á atferlissálfræði þegar hann hefur
náð betri tökum á íslenskunni.
Fórámis viðmargt
Aron var fjórtán ára gamall þegar
hann var aðskilinn frá fjölskyldu
sinni, hann er nú tuttugu og fjögurra
ára. Unglingsárin eru mótunartími
í lífi hvers einstaklings og því er
óhætt að fullyrða að Aron hefur
farið á mis við ansi margt. „Það
var svo margt sem var tekið frá
mér. Ég hafði til dæmis alltaf litið á
kynlíf sem nauðgun, einhver sem
þröngvar sér upp á mig. Svo er
mikið af hversdagslegum hlutum
sem aðrir taka sem sjálfsögðum. Ég
hef aldrei áður byrjað líf mitt alveg
frá grunni og það er auðvitað ekki
létt verk." Aron Pálmi byrjaði að
vinna fyrir um það bil mánuði, á
sambýli í Kópavogi. „Ég hefði getað
fengið betur launaða vinnu eins og
til dæmis byggingarvinnu. Ég veit
samt að ég gæti ekki þrifist í slíku
starfi. Mér finnst gott að leggja mitt
að mörkum. Ég er að vinna með
fólki sem getur ekki hjálpað sér sjálft
og ég fer glaður heim í lok dags ef
ég hef náð að stytta þeim stundir
eða hjálpað þeim á einhvern hátt
yfir daginn." Aðspurður viðurkennir
Aron að það hjálpi honum mikið að
vinna því það dreifi huga hans frá
erfiðum minningum. Sumir dagar
eru honum þó erfiðari en aðrir. „Ég
er að vinna með frábæru fólki sem
hefur skilning á því sem ég hef þurft
að ganga í gegnum. Það er virkilega
gott þá daga sem ég er illa fyrir
kallaður."
Stanslausar martraðir
Eftir að hafa verið undir smásjá
yfirvalda í tíu ár hlýtur að vera erf-
itt fýrir Aron að takast á við hvers-
Það að hafa setið
21 dag í
einangrun hefur
líklegasettmarká
líf Aronstil
frambúðar. Hann í
er enn myrkfælinn
og kvíðir því að
fara að sofa vegna
martraða sem
sækja á hann.
„Já, ég hefverið að hitta stelpu. Það er búið að
vera mjög gott og gaman en ekkert samband
erþó án erfiðleika. Það virðist bara vera hluti af
lífinu. Hún hefur sýnt mér mikinn stuðning og
það er gott að tala við hana. Hún hefur fulla trú á
þessu sambandi sem er auðvitað frábært því það
er ekki auðvelt að vera með mér í sambandi."
dagsleikann. „Jú. Ég vakna stundum
á morgnana og leita eftir GPS-tæk-
inu sem ég þurfti að ganga með er
ég var í stofufangelsi. Það sem kom
fyrir mig í fangelsinu er nokkuð sem
á eftir að fylgja mér alla ævi. Ég mun
aldrei geta gleymt því sem kom fyr-
ir mig. Ég mun heldur aldrei gleyma
fólkinu sem leyfði þessu að gerast.
Þetta hefur áhrif á mitt líf, á allt sem
ég tek mér fyrir hendur. Ég kvíði því
að fara að sofa á kvöldin því þá taka
við stanslausar martraðir. Ég verð að
sofa með ljósin kveikt og sjónvarpið
í gangi. Ég er tuttugu og fjögurra ára
og ég er enn myrkfælinn!" Eftir að
hafa setið í tuttugu og einn dag í ein-
angrun - lái honum hver sem vill.
„Ég hugsa líka stanslaust til þeirra
drengja sem þurfa enn að búa við
þann hræðilega aðbúnað sem boðið
er upp á á bandarískum Unglinga-
heimilum. Ég verð ekki frjáls fyrr en
tekið verður á þessum málum."
Aron segist ekki hafa hitt sál-
fræðing eftir að hann kom hingað til
lands. „Ég hitti sálfræðing áður en
ég kom hingað. Ég hef hingað til sóst
eftir þeirri þjónustu þegar ég þarf
á henni að halda. Sumir dagar eru
auðveldir, aðrir eru mjög erfiðir. Ég
þarf á einhverjum að halda sem get-
ur hlustað á mig og kann að tala til
baka. Aðgangur að sálfræðingum er
ekki svo léttur. Annars hef ég kynnst
svo góðu fólki hér á landi, fólki sem
leggur allt annað frá sér og kemur
til mín þegar ég þarf á stuðningi að
halda."
Ætlar ekki að missa vonina
Þó svo að Aron sé kominn hingað
til lands og hann viti að hér ætti hann
að vera nokkuð öruggur er hann
enn haldinn miklum kvíða. „Þegar
ég geng í myrkri eykst hjartsláttur-
inn og ég tek að ganga óvenjulega
hratt. Ég svitna og fyllist ofsakvíða."
Það kom fram í DV fyrir nokkrum
vikum að ráðist hafi verið á Aron
Pálma fyrir utan Glaumbar. Hvernig
brást Aron við því? „Þeir voru fullir
og þetta beindist ekkert að mér per-
sónulega. Ég var bara á heimleið
með frænda mínum og sá að þessir
menn voru eitthvað að dangla í ann-
an mann. Ég skipti mér af því og þá
beindu þeir reiði sinni að mér. Fólk
er alltaf að slást, þetta var bara eitt af
þeim skiptum. Ég hef lent í töluvert
verri aðstæðum en þetta, hundrað
á móti þremur." Aron gerir lítið úr
þessu atviki. Hann er greinilega já-
kvæður í garð íslands og vill heldur
einblína á allt það góða sem hent
hann hefur síðan hann kom. Aron
tárast þegar hann talar um allt það
góða fólk sem hann hefur hitt hér á
landi. „Það er svo mikið af fólki sem
hefur veitt mér stuðning hér á landi.
Mér þykir líka mjög gaman að hitta
nýtt fólk og heyra nýjar sögur, nýjar
hugmyndir." Ertu bjartsýnn? „Já, ég
verð að vera það. Bjarsýnin er mitt
bensín. Ef ég missi vonina munu
margir þjást, börn, hugmyndir, fólk.
Þá verða fleiri eins og ég sem geta
ekki horft á sjálfan sig í speglinum,
ég get ekki haft það á minni sam-
visku."
Baráttusaga
Ævisaga Arons Pálma, Enginn
má sjá mig gráta, kom út í vikunni.
Hana skrifaði Aron sjálfur ásamt
Jóni Trausta Reynissyni. „Við unn-
um bókina í gegnum tölvu. Ég skrif-
aði niður endurminningar mínar
sem Jón Trausti svo tók við og setti
saman. Jón Trausti svaraði svo send-
ingum frá mér með milljón spurn-
ingum. Þannig fikruðum við okkur
áfram. Ég hefði aldrei getað skrifað
þessa bók án hans. Þetta er ekki ævi-
saga. Þetta er frásögn mín af dvöl í
unglingafangelsi. Með sögunni vil
ég vekja athygli á þeim hræðilegu
atburðum sem eiga sér stað þar á
„Ég hugsa líka stanslaust tilþeirra drengja sem þurfa enn að búa við
þann hræðilega aðbúnað sem boðið er upp á á bandarískum Unglinga-
heimilum. Ég verð ekki frjáls fyrr en tekið verður á þessum málum."
mm
Enginn ma sja nng grata Houston, Texas, 17. ágúst 1997
Nokkrar mínútur eru síðan dómarinn sagði að ég væri dæmd-
ur til tíu ára refsivistar á Unglingaheimilum Texasríkis. Ég skil'
ekki hvað eraðgerast. Égheffarið ídómsalinn áður og alltaffarið
heim aftur strax á eftir. Eg hélt að þetta yrði eins ogþá. Þegar ég leit
á systur mína vissi ég að þetta yrði öðruvísi. Hún hoifði á mig eins
og ég væri dáinn. Síðan drógu verðir mig inn í hvítt herbergi og
einn þeirra varð eftir með mér. Það er ekkert hérna inni nema tveir
hvítir bekkir, ég og vörðurinn. Hann lætur migfá appelsínugulan
samfesting og segir mér aðfara í hann í staðinn jyrir sparifötin
mín. Ég veit ekki hvað er á seyði og bíð bara eftir að pabbi komi og ,
segi: „Komdu, Aron, við erum aðfara." En ég má ekkifara.
Loksins opnast dyrnar að herberginu og mamma kemur inn!
Eitthvað hlýtur að hafa gerst þannig að éggeti farið heim! En það
er ekki allt eins og það á að vera. Mamma er rauðeygð og þreytu-
leg. „Elskan mín, við heimsækjum þigþegarþú ertkominn á ungl-
ingaheimilið>" segir hún og það bergmálar annaðhvort í herberg-
inu eða höfðinu á mér. Áðuren ég veitafsegir vörðurinn mömmu
að fara. Hún tekurfötin mín og ég horfi á eftir henni ganga út.
Ég sit áfram í herberginu í langan tíma og hugsa um síðustu
daga. Ég rifja upp vatnsblöðrustríðið sem ég og vinir mínir fór-
um í ogfeluleikina ogfótboltann. Ég rifja líka upp síðustu dagana
heima þegarfjölskyldan gat ekki talað saman án þess að rífast út
afdómsmálinu.
Dyrnar opnast aftur og ég hrekk við. Verðinum er sagt að fara
með mig. Hann tekur mig með sérfram á gang og bendir mér á að
fara inn í annað herbergi. Þar eru fleiri krakkar á mínum aldri í
appelsínugulum göllum. Við tölum saman en éggleymi samtölun-
um strax, þvíþað er eins og hugurinn sé allt annars staðar.
Áður en langt um líður koma verðirnir til okkar með hlekki
og keðjur í einni röð niður stiga og inn í fangaflutningabíl fyrir
utan. Ég þarfsvo mikið að gráta að égerað springa. Það eina sem
stoppar mig er ráðlegging sem vörðurinn gaf mér áður en hann
fór með mig inn í herbergið til hinna krakkanna. „Ekki láta neinn
sjáþiggráta."
hverjum degi. Atburðum sem yf-
irvöld vita af, en kjósa að gera ekki
neitt í.“ Aron Pálmi segist enn vera
reiður en eins og kemur fram í lok
bókarinnar ætlar Aron að gera hvað
hann getur til að beina reiði sinni í
réttan farveg. Hann er í baráttuhug.
„Ég vil sofna á kvöldin við þá hugsun
að ég hafi hjálpað einhverjum, að ég
hafi breytt einhverju. Þetta hljómar
kannski klisjukennt en þetta er það
sem ég vil gera. Mig langar að breyt-
ast. Gandhi sagði, vertu breytingin
sem þig langar að sjá í heiminum.
Það er það sem ég vil gera. Ég vil
vera þessi breyting. Ég vil geta horfst
í augu við sjálfan mig í speglinum."
Stuðningur fjölskyldunnar
Fjölskylda Arons Pálma studdi
drengilega við bakið á honum þessi
u'u ár, bæði tilfinningalega og fjár-
hagslega. Aron segist vera mjög
tengdur móður sinni. „Ég ber allt
undir mömmu. Ef mér líður illa er
hún sú fyrsta sem ég hringi í." Móð-
ir Arons og öll fjölskyldan er búsett
í Bandaríkjunum. Saknar þú þeirra.
„Já, mjög mikið og eru símreikning-
arnir eftir því," segir Aron og hlær.
„Mamma var sú fyrsta til að lesa yfir
bókina þegar handritið var tilbúið.
Hún sagðist hafa byrjað að lesa hana
klukkan sex um morguninn og ekki
hafa lagt hana frá sér fyrr en að lestri
loknum - fyrir utan óhjákvæmilegar
pásur þar sem hún brotnaði saman."
Er nauðgunum og ofbeldinu lýst í
svona miklum smáatriðum? „Ég vildi
ii - — — ..i r—iTrir
lýsa þessari reynslu á eins opinskáan
hátt og hægt var. Það var nokkuð sem
ég varð að gera. Það þurfti að end-
urskrifa ýmislegt þar sem sumt þótti
óþarflega nákvæmt. En það er ekkert
þarna að óþörfu."
Andspænis kerfinu
Þrátt fyrir að hafa verið hér í
stuttan tíma er Aron kominn með
ástkonu. „Já, ég hef verið að hitta
stelpu. Það er búið að vera mjög gott
og gaman en ekkert samband er þó
án erfiðleika. Það virðist bara vera
hluti af h'finu. Hún hefur sýnt mér
mikinn stuðning og það er gott að tala
við hana. Hún hefur fulla trú á þessu
sambandi sem er auðvitað frábært
því það er ekki auðvelt að vera með
mér í sambandi. En við erum ákveðin
í því að taka saman einn dag í einu og
sjá hvert það leiðir okkur."
Þrátt fyrir allar þær ömurlegu
endurminningar sem Aron Pálmi
þarf að lifa með virðist hann
merkilega heilsteyptur karakter.
Hann er staðráðinn í því að gefast
ekki upp og ætlar að breyta vöm í
sókn. „Ég verð ekki í rónni fyrr en ég
hef farið aftur út til Bandaríkjanna og
staðið andspænis kerfinu. Ég mun
gera allt sem í mínu valdi stendur.
Islenska ríkisstjórnin er að mínum
dómi í kjöraðstöðu til þess fjármagna
nefnd sem tekur á þessu máli. Þetta
er mannréttindamál sem verður að
taka á. Ekki bara í Texas, heldur um
öll Bandarfldn og allan heim."
Kynnum vinsælasta vaxið í dag
Sársaukaminna SÚKKULAÐIVAX
Bjóðum bæði upp á Brasilískt vax og Hollywood vax
15 % kynningarafsláttur af fyrstu komu til 1 Des.
Minnum á nýja og endurbætta heimasíöu á www.snyrtihornid.is
K-
SNYRTIHDRNIÐ
Miövangi 41 I Hafnarfiröi I Sími: 552 1200