Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2007, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007
Ferðir DV
s Á FERÐINNI
Að hengja bakara fýrir smið
Þetta máltæki er oft notað þegar einhver er borinn röngum
sökum. Það er upprunnið (smábæ í Þýskalandi þar sem eini
smiðurinn í þorpinu var sakfelldur fyrir nauðgun. Þorpsbúum þótti
ótækt að hengja eina smiðinn (þorpinu og þv( voru góð ráð dýr.
Þegar vel var að gáð, kom upp úr kafinu að þorpsbúar bjuggu svo
vel að hafa tvo bakara. [ stað þess að hengja smiðinn ákváðu þeir
að dæma bakarann sekan og hengja hann. Satt eða logið?
Smiðir eru ómissandi
Þessi tengist máiinu þó ekkert.
Syttist í
skíðavertíð
Starfsmenn Hlíðarfjalls segja
herslumun vanta upp á að hægt
verði að opna fyrstu skíðabrekku
vetrarins. I vikunni leit allt út fyrir
að hægt yrði að opna en hláka
varð til þess að því varð að fresta
um óákveðinn tíma. Aðeins vantar
tvo til þrjá kalda daga I röð til að
hægt verði að opna, en snjóbyss-
urnar er ekki hægt að nota nema (
frosti. Þess ber að geta að aukin
flóðlýsing hefur verið sett upp í
skíða- og göngubrautum auk þess
sem unnið er að því hörðum
höndum að setja upp snjógirðing-
ar á svæðinu til að grípa allan þann
snjó sem til fellur. Skíðaglaðir ættu
því að vera við öllu búnir og vakta
veðurspána vel á næstu dögum.
Ódýrttil
Bandaríkjanna
lcelandair hefur (haust sett saman
ódýrar pakkaferðirtil Bandarlkj-
anna. Áfangastaðirnir eru þrír;
Minneapolis, Boston og sjálf
höfuðborgin Washington. Um er að
ræða tilboðsferðir í 4 nætur og
gildir tilboðið á völdum dagsetn-
ingum í nóvember og desember
2007. Gist er á Holiday Inn
Bloomington sem er 3ja stjörnu
hótel við Mall of America. Vart þarf
að tíunda hversu hagstæð
jólainnkaup í Bandaríkjunum geta
verið en verðið fyrir flug og þrjár til
fjórar nætur á hótelum er yfirleitt á
bilinu 50 til 60 þúsund. Nánar á
lcelandair.is
London
fyrir lítið
Þeirsem vilja gera jólainnkaupin í
London, eða jafnvel skella sér á
leik í enska boltanum, eru I
góðum málum. Iceland Express
býður um þessar mundir upp á
flugferðir til þessarar glæsilegu
borgar á ótrúlega hagstæðu
verði. Hvort sem þú vilt fara á
morgun, I næstu viku eða rétt fyrir
jólin er hægt að fá flugfar aðra
leið á um 8 þúsund krónur.
Sjaldgæft er að flugfariö sé dýrara
en 10 þúsund. Þess ber að geta að
erfitt getur reynst að fá innan-
landsflugfar til Egilsstaða eða
Akureyrar á viðlíka verði.
Hálendið
ófært
Fréttir berast nú reglulega af
rjúpnaveiðimönnum í hrakningum
á heiðum landsins. Því er
mikilvægt að brýna fyrir stórhuga
veiðimönnum að kynna sér ástand
fjallvega ítarlega áður en haldið er
út (óvissuna. Á heimasíöu
Vegagerðarinnar, vegagerdin.is, er
hægt að nálgast kort sem sýnir
ástand fjallvega en stór hluti
hálendisins er nú ófær. Jafnvel þó
að menn séu á vel útbúnum bílum
er nauðsynlegt að kynna sér færð
og fylgjast vel með veðurspám
síðustu daga fyrir brottför. Þá er
einnig brýnt að virða vegatálma
og merkingar. Þau eru ekki til
skrauts.
Emitía Magnúsdóttir er annar tveggja fararstjóra sem munu fylgja hópi fólks í Bása í
Þórsmörk um mánaðarmótin:
AÐVENTUFERÐIBASA
„Þetta er tilvalin ferð fyrir fjöl-
skyldufólk sem vill komast í jóla-
skap í byrjun aðventunnar. f ferð-
inni er fólk á öllum aldri og við
leggjum áherslu á að ná fram sönn-
um jólaanda," segir Emilía Magn-
úsdóttir en hún er annar tveggja
fararstjóra í svokallaðri aðventu-
ferð í Bása. „Þó ferðin sé vinsælust
meðal fjölskyldufólks er hún opin
öllum, bæði ungum sem öldum. í
fyrra var fólk á aldrinum tveggja til
sjötíu og fimm ára með í för," segir
Emilía. Þessi ferð er ekki ný af nál-
inni því Ferðafélagið Útivist hef-
ur haft hana á dagskrá sinni und-
anfarin 13 ár. Sumir mæta ár eftir
ár en Emilía segir að alla jafna séu
margir nýliðar með í för.
Heitt kakó og jólaskraut
Á föstudagskvöldið klukkan átta
verður lagt af stað með rútu frá BSÍ
en Emilía segir einstaka upplifun
að keyra inn í Þórsmörk í myrkri.
„Það verður svartamyrkur þegar
við keyrum yfir árnar á leiðinni inn-
ar í dalinn síðla kvölds. Við verðum
komin í skálann um klukkan 11 en
ef heppnin verður með okkur verð-
ur þarna nýfallinn snjór sem hjálp-
ar fólki að komast í rétta gírinn.
Þarna er dásamlegt að vera þegar
nýbúið er að snjóa."
Það sem eftir lifir föstudagsins
mun fólk nota til að koma sér fyr-
ir en laugardagurinn verður síðan
tekinn með trompi. „Venju sam-
kvæmt vöknum við um klukkan 9
um morguninn. Eftir morgunverð
fara allir í gönguferð um nágrenn-
ið en samkvæmt áætíun mun það
taka um íjóra tíma. Á þeim tíma
verður farið í ratleiki og ýmislegt
skemmtilegt brallað; eitthvað fýrir
alla fjölskylduna. Þegar við komum
svo aftur í skálana er komið að því
að skreyta alit hátt og lágt, en þær
skreytingar verða ekki teknar nið-
ur fýrr en í þrettánadaferðinni vin-
sælu," segir Emilía en skálarnir tveir
í Básum rúma 80 manns í gistingu.
„Á meðan er drukkið heitt kakó
og sungin jólalög. Þegar nær dregur
kvöldmat er farið að undirbúa jóla-
hlaðborð, sem er þannig úr garði
gert að allir gestir taka með sér eitt-
hvað að heiman og leggja í hlað-
borðið. Þegar allt er klárt setjast
allir niður og borða dýrindis mat í
jólalegu umhverfi," segir Emilía.
Jólasveinar á kreiki
Meðalþátttaka í ferðinni er um
40 manns en eins og áður kom
fram er pláss fýrir töluvert fleiri.
Emilía segir gott skap og ánægju
undantekningarlaust einkenna
aðventuferðirnar í Bása. „Eft-
ir matinn er kvöldvaka þar sem
söngur og leikir eru í aðalhlut-
verki. Stundum höfum við verið
svo heppin að jólasveinar heyra
til okkar. Þeir standast ekki mátið
þegar þeir verða varir við allt fólk-
ið og ldkja stundum í heimsókn, á
leið sinni til byggða."
Á sunnudeginum verður
tveggja tíma létt ganga um ná-
grennið, enda er náttúran í Þórs-
mörk afar fögur að vetri til. Á
heimleiðinni er svo gjarnan kom-
ið við á áhugaverðum stöðum en
hópurinn verður kominn heim til
Reykjavíkur fyrir kvöldmat.
„Eg hvet fólk til að skrá sig og
koma með okkur. Þarna myndast
frábær jólstemning sem kemur
fólki í rétta skapið fyrir jólin," segir
Emilía að lokum.
Allt stefnir í mikla þátttöku í ár
en ferðin kostar 12.300 krónur fýr-
ir félaga í Ferðafélaginu Útivist en
14.200 fyrir aðra. Innifalið í því eru
rútuferðir, gisting og fararstjórn
en ferðalangar taka sjálfir með sér
mat og drykk. Óhætt er að mæla
með þessari einstöku ferð í Þórs-
mörk en nánari upplýsingar má
nálgast á vef Útivistar; utivist.is.