Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2007, Side 55
DV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 55 '
UNDIR KLÆÐUNUM
Núna eftir að undirfataverslunin Systur var opnuð
á Laugaveginum hefur kæti færst yfir lýðinn enda ekki
furða þar sem um ótrúlega fallega búð sem og vörur er að
ræða. Með því sem er heitara nú en áður eru korselett og
háar nærbuxur. Ekki er það verra þar sem það hjálpar og
heldur við þar sem magavöðvarnir eru farnir að slakna.
LEGGJABÍNUR
Úllala, hvað það er nauðsynlegt að festa
kaup á nokkrum sokkum sem og sokka-
buxum. Háir sokkar hafa verið áberandi á
tískupöllunum og sama er að segja á
leggjalöngum stjörnum. Það eru háir
sokkar sem við viljum og fáum ekki nóg af.
I Lanvin
Nafn:
„Ýr Þrastardóttir."
Aldun
„23 ára."
Starf:
„Nemi í Listaháskóla fslands."
Stíllinn þinn:
„Hrár„industrialismi""
Allirættu aö?
„Gleðja aðra."
Hvað er ómissandi að eiga?
„Góðan magnara og gott plötusafn"
Hvað keyptir þú þér síðast?
„Nýja skó í Kronkron fýrir veturinn."
Hverju færð þú ekki nóg af?
„Ann Demulemeester."
Næsta tilhlökkun?
„Starfsnám í París í febrúar."
Hvenær fórst þú síðast í ferðalag?
„Ég fór síðast til Parísar í rómantíska
gamanferð."
Hvað langar þig í akkúrat núna?
„Mig langar eiginlega bara í það sama og
alltaf."
Perlur hér heima?
„Seyðisfjörður er fallegastur."
Hvenær fórst þú að sofa í nótt?
„Frekar seint, ég er næturhrafn og á erfitt
með að sofna snemma."
Hvenær hefur þú það best?
„Það er best að sofa út á morgnana."
Afrek vikunnar?
„Ég kláraði heimavinnuna fyrir skólann og
er komin í frí."
Heildarsvipinn vantaði
Miu Miu-sýningin fyrir sumarið og
vorið 2008 vakti nokkra athygli þar
sem hana þótti vanta heildarsvip.
Það voru ýmist fallegir stelpulegir
kjólar í hinum ýmsu litum eða þá
silkikjólar með grafískum myndum
á. Þeir voru ótrúlega fallegir en
stílarnir þóttu mjög ólíkir. Litirnir og
efnin voru falleg og það mátti sjá
slaufur og fíngerða hálskraga.
Hönnuðurinn Stephen Jones er
ótrúlegur karakter og ferillinn
engu síðri. Hann hefur hannað
hatta fyrir hina ýmsu fatahönn-
uði og má þar nefna nöfn eins
og John Galliano, Dior, Basso &
Brooke, Rei Kawakubo fyrir
Comme de Garcons og svo má
lengi telja. Hann hóf nám í
London St. Martins School of Art
árið 1979, en þá var hann löngu
byrjaður að hanna hatta fyrir vini
og vandamenn. Stjörnurnar féllu
fyrir hönnun hans og byrjaði
hann að hanna hatta fyrir
söngvarann BoyGeorge,
Spandau Ballet og hina einu
sönnu Duran Duran. í kringum
1980 var hann orðinn þekktur og
vinsæll og opnaði þá eigin
verslun. Hattar Stephens Jones
eru ótrúlega fallegir og gæddir
þeim töfrum sem hönnuðinum
einum tekst að gæða þá.
Giles Deacon og Stephen Jones
Kátirá tískuvikunni í London.