Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2007, Page 56
Helgarblað PV
Tónlistarakademía DV segir:
Hlustaðu á þessa!
Sticky situation - Bloodgroup
Allt fyrir ástina - Páll Óskar
Benny Crespo's Gang - Benny Crespo's Gang
Foxbite - Mr.Silla & Mongoose
Sawdust -The Killers
Dansvelsla
áOrgan
Smáskífafrá
SiggaLauf
Tónlistarmaðurinn Siggi Lauf sendirfrá
sér smáskífuna I Frelsarans nafni á
morgun, laugardag.Titillag hennar
náði töluverðum vinsældum fyrr á
árinu og fékk töluverða spilun á
útvarpsstöðvum. (tilefni af útgáfunni
ætlar Siggi Lauf að vera með tónleika á
Dillon um kvöldið en smáskífan verður
gefin út í 500 eintökum og meðal
annars seld þar. Á skífunni er að finna
lögin Vog þar sem Rúni Júl spilar á
bassa ogTryggvi Hubner á sólógítar. Þá
heitir þriðja og síöasta lagið Brother. I
tilefni af útgáfunni hefur Siggi einnig
opnað heimasíðu og má finna nánari
, ,nnk'.cinn>r 4 henni, www.siggilauf.is.
Þrjár heitustu poppsveitir landsins, Motion Boys, Sprengjuhöllinn og Jeff Who, ætla
að sameina krafta sína á NASA i kvöld, föstudag. Strákarnir eru allir í góðu stuði fyrir
tónleikana og lofa mikilli stemningu fram eftir nóttu.
JeffWhoÆtlarað
spila mestmegnis
nýtt efni en þó í
bland við gamalt.
4t
Stanslaust stuð í sjö tíma!
Aðstandendur vefsíðunnar og
útvarpsþáttarins Breakbeat.is standa
fyrir dansveislu á Organ í kvöld.
Plötusnúðurinn og tónlistarmaðurinn
Thijs de Vlieger ætlar að stiga á svið en
hann er einn af þremur meðlimum
drum&bass-grúppunnar Noisia. Sveitin
sem erfrá Hollandi hefur rutt sértil
rúms undanfarin fjögur ár og er með
þeim allra vinsælustu (þessum
tónlistargeira. Miðasala fer fram við
dyrnar og kostar 1.000 krónur inn fyrir
klukkan 01.00 en 1.500 krónur eftir
það. Breakbeat.is-plötusnúðarnir Kalli
og Gunni Ewok sjá um upphitun en
ráðlegt er að mæta tímanlega þar sem
færri gætu komist að en vilja.
Tíuplöturá
toppnum
Rapparinn Jay-Z hefur nú komið
tíundu plötu sinni (fyrsta sæti á
vinsældalistum (Bandaríkjunum með
' wmmmn— nýútkominni
breiðsklfu sinni,
American
Gangster. Með
þessu afreki hefur
hannjafnað goðið
Elvis Presley sem
einnig hefur
komið tíu plötum
á toppinn og sitja
þeirfélagarþvll
öðru sæti yfir flestar plötur á toppnum.
Það eru hins vegar Bltlarnir sem tróna I
toppsæti listans en þeir hafa náð alls
nltján plötum á toppinn. Síöan 1998
hafa allar átta sólóplötur Jay-Z náð
toppnum auk platna sem hann vann
með Linkin Park og R.Kelly.
„Reykj avík Grapevine hefur staðið fyrir á annað
hundrað tónleikum undanfarin ár og tónleikarnir
í kvöld eru eins konar prufukeyrsla fyrir mig til að
sjáhvort hljómsveitir af þessari kynslóð nái að fylla
svona stóran stað á eðlilegu tónleikaverði," segir
Jón Trausti Sigurðarson, markaðsstjóri Grapevine
og umboðsmaður í hjástörfum. „Ég varð eiginlega
bara umboðsmaður Sprengjuhallarinnar eftir
að ég, Birgir ísleifur í Motion Boys og nokkrir af
strákunum í Sprengjuhöllinni hittumst í hinum
virðulega viskíklúbbi okkar, Vatni lífsins, en ég er
einmitt gjaldkeri klúbbsins. Ég held að þetta hafi
gerst á fyrsta eða öðrum fundi klúbbsins þegar
smökkun var lokið og farið var að svífa á svartari
hliðina á mannskapnum - en þó á sófistikateraðan
hátt. Eftir samræðurnar þetta kvöldið var ég
orðinn umboðsmaður Sprengjuhallarinnar sem
er í sjálfu sér mjög fínt því ég er búinn að þekkja
flesta þessa stráka í langan tíma og ég og Goggi
erum til dæmis úr sömu sveitinni."
Jón Trausti segir miðasöluna hafa gengið von-
um framar. „Vanalega er miðasala að detta í gang
samdægurs þegar íslenskar hljómsveitir eiga í
hlut en fyrir helgi var miðasla strax farin furðu-
vel af stað."
Með sérsaumað bindi frá Belgíu
„Það má eiginlega segja að þetta séu svona
vinabönd sem ætla að spila þarna saman. Motion
Boys og Sprengjuhöllin eru búnar að vera í miklu
samneyti undanfarið og við búnir að vera vinir
lengi. Okkur fannst bara skemmtileg hugmynd að
búa til eitt svona stórt kvöld þar sem fólk mætir
bara í lakkskónum og hreyfir alla liði í trylltu stuði,"
segir Birgir ísleifur, söngvari hljómsveitarinnar
Motion Boys.
„Þetta eru allt svona poppbönd með sín sér-
kenni og þetta er tilvalið tækifæri fyrir fólk að
Sprengjuhöllin Sendi nýlega frá sér plötu og er
eiturhress á tónleikum. mynd:Hörðursveinsson
koma og velja sér sína uppáhaldshljómsveit af
þessum þremur. Við erum bara allir mjög vel
stemmdir fyrir þetta og þarna munu heyrast ball-
öður og brjálæði. Fólk getur dansað og grátið.
Auk þess verð ég með sérpantað bindi beint frá
Belgíu. Það er alveg rándýrt og sérhannað til að
koma vel út á sviði sko. Þegar ljósið skín á næfur-
þunnt efnið í bindinu endurkastar það ljósinu og
bindið verður í öllum litum," segir Birgir.
Ný lög í bland við gamalt efni
„Jón Trausti held ég að hafi upphaflega fengið
þessa hugmynd með það í huga að halda svona
nýaldarsveitaballapopptónleika og fá þær popp-
hljómsveitir sem gera popp sem er í gangi í dag
til að spila saman. Þetta var bara svona basic
popppæling," segir Bjarni Lárus Hall, söngvari
JeffWho.
Birgir Isleifur í Motion Boys Segir kvöldið I kvöld
tilvalið tækifæri fyrir fólk að velja sér sína
uppáhaldshljómsveit.
„Ég fíla hinar sveitirnar mjög vel og þetta
eru skemmtilegir strákar og skemmtileg bönd.
Annars hefðum við örugglega ekkert gert þetta
því við höfum alveg margt annað að gera því við
erum að taka upp og svona þessa dagana. Við
erum að taka upp nýtt efni núna og erum bara
að reyna að klára það. Það er bara búið að vera
svolítið mikið að gera miðað við það sem við
ætluðum okkur en við erum að klára einhver
fimm lög og svo meira eftir áramót. Það verða
svona mestmegnis spiluð ný lög í kvöld og svo
nokkur gömul líka."
Miðasala á tónleikana fer ftam inn á midi.
is og er miðaverð einungis fimmtán hundruð
krónur. Einnig verður selt inn við innganginn á
meðan húsrúm leyfir frá klukkan 22.30 í kvöld
og hefjast tónleikarnir um 23.30.
krista@dv.is
Eins og flestum landsmönnum ætti að vera orðið kunnugt
sendi Páll Óskar frá sér sína fyrstu dansplötu í átta ár á
dögunum. Platan ber heitið Allt fyrir ástina og inniheldur
sjóðheita dans- og partísmelli að hætti Palla. Á morgun,
laugardag, ætlar hann að halda tvenna tónleika á NASA til að
fagna útgáfunni.
„Klukkan fjögur verður krakkaball í boði Vífilfells. Þar eru
allir krakkar og unglingar velkomnir og er ókeypis aðgangur.
Fullorðnir eru bara velkomnir í fylgd með börnunum. Krakk-
arnir fá kók, blöðrur og glow-sticks og ég prófaði þetta á Sjall-
anum á Akureyri um síðustu helgi og þetta heppnaðist bara
alveg rosalega vel," segir Palli.
„Við lækkum aðeins í hljóðkerfinu fyrir barnaballið en á
tónleikunum um kvöldið verður sko hækkað í græjunum,"
bætir hann við.
Tónleikarnir um kvöldið hefjast klukkan ellefu og ætíar
Palli að spila stanslaust án þess að taka sér hlé til klukkan sex
um morguninn. „Pásur eru bara fyrir aumingja og letingja sem
nenna ekki að vinna. Þetta er fyrst og fremst „one man show"
en ég fylgi plötunni eftir með plötusnúðagiggi og þegar leikar
standa sem hæst, sem verður líklegast um eittleytið, byrja ég
að syngja. Ég kem til með að taka rjómann af nýju lögunum
og eitthvað gamalt líka. Ég er með dansara með mér og það
verður brjálað partístuð. Konfetti rignir yfir áhorfendur og ég
get lofað því að tónleikagestir fara skríðandi heim," segir Páll
Oskar að lokum.
Forsala miða fer fram á NASA milli klukkan eitt og fjögur í
dag og við innganginn annað kvöld. Miðaverð er einungis eitt
þúsund og fimm hundruð krónur og er áhugasömum bent á
myspace-síðuna myspace.com/palloskar. krista@dv.is
SENDI FRÁ SER PLOTUNA ALLT FYRIR ÁSTINA Á
DOGUNUM OG ÆTLAR AÐ FYLGJA HENNI EFTIR MEÐ TVENNUM
TÓNLEIKUM Á MORGUN, LAUGARDAG, Á NASA.