Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 18. APRlL 2008 Fréttir DV ÞETTA HELST ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST í VIKUNNI HRÆDDUR OG Á FLÓTTA Lögreglan handtók Przem- yslaw Plank í vikunni að beiðni pólsku lögreglunn- ar. Plank, sem er einn- ig þekktur undir heitinu Plankton, er grunaður um aðild að hrottafengnu morði í Póllandi. Slawomir Sikoro lýsti því í DV í byrjun vikunnar að hann væri logandi hræddur við Plank og hefði verið á flótta undan honum vikum saman. Sikoro myrti tvo pólska glæpamenn sem ofsóttu fjölskyldu hans árið 1994 og var dæmdur til langrar fangelsisvistar. Hann var síð- ar náðaður af pólska forsetanum og fluttist til fslands. Eftir að Plank kom til landsins óttaðist Sikoro um öryggi sitt vegna tengsla Planks við sömu mafíu og glæpamennirnir sem hann myrti tilheyrðu. BLÓÐUGUR SEGIST SAKLAUS ÞÖWUWNdSimHhín^SAiaíniSfNUVBDOMAHAÍW BLOÐUGUR SEGISTHÉ SAKLAUS AFMORI VöttrlnnGtolMMi. Mkfr*mMklrytl ilnu vlödím»r. I»»r BIMhnnU » lakl IwinM * hOndunum A honum. hM vmr mortvmmld. *■. ■ , Þórarinn Gíslason % hefur verið í I' ;■ gæsluvarðhaldi síðan í október IL.i231S^ grunaður um morðið á Borgþóri Gústafssyni. Sjálfur segist Þórarinn vera saklaus en lögregla telur sig hafa sterkan rökstuddan grun um að Þórarinn hafi barið Borgþór til bana með slökkvitæki. „Að okkar mati koma engir aðrir til greina," sagði Sigurbjörn Víðir Eggertsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni I . á höfuðborgarsvæðinu. Þórarinn lýsti sig saklausan við fyrirtöku í málinu í ! Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag. Borgþór fannst illa leikinn í íbúð sinni 7. október síðastliðinn. Þá hafði hann verið barinn með slökkvitæki og lést sama kvöld. Duft úr tækinu og blóð úr Borgþóri fundust í fbúð Þórarins. NETKLÁM UPP í SKULDIRNAR Átján ára námsmær bauð upp á nektar- dans á netinu gegn greiðslu. Hún sagði í viðtali við DV að hún hefði brugðið á þetta ráð eftir að hún steypti sér í skuldir með mikilli notkun kreditkorts sem hún hafði fengið. „Mað- ur er ekkert varaður við hvað það er auðvelt að steypa sér í skuldir," sagði stúlkan í við- . tali við DV á þriðjudag, ósátt við bankann sinn og hversu áfjáðir bankamir væm í að lána ungu fólki sem ekki hefur mikla reynslu af fjármálum. Lögreglan segir starfsemi stúlkunnar ólöglega, þar sem hún bjóði upp á klám sem sé ólöglegt, og hafði samband við hana í gegnum heimasíðu hennar eftir að DV fjallaði um málið. fhlAN ÁRA StUtKAtílTARtAUSNA A ISKÓLASTÚMAI • Bankjrnir liins iingu fölki án rgynslii “..Mistökin mln voruaOfá mírVisaíkQn" L 1 fSSiE£saagaerag!?.rwf.»i.tM^JWW ÁTÖK í FRJÁLSLYNDA FLOKKNUM PLATINUM- 5 tryggingar ÍPLAT— ÍSLENSKIR KARLMENN FEIMNIR EN KURTEISIR Jón Magnússon, þing- maður Frjálslynda flokks- ins, tók þátt í að semja gagnrýnar spurningar um störf og starfsmannaráðn- ingar þingflokks Frjálslynda flokksins sem hann situr á þingi fyrir. Spurningarnar lagði Valdi- mar Jóhannesson fram en DV hefur gögn undir höndum sem sýna að Jón kom að samningu þeirra og þykir þetta ein birt- ingarmynd átaka í Frjálslynda flokknum. „Mér finnst þetta einkennilegt af Jóni, svo ég segi nú ekki meira." sagði Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksfor- maður Frjálslynda flokksins, í viðtali við DV en deilur í flokkn- um þykja ekki síst snúa að hans störfum. Bæði Kristinn og Jón eru taldir vera að styrkja stöðu sína í flokknum. SIKORA MVHII IVOMtm IMIPÚISKU MAflUMHAB^ DRAP ÞA TILAÐ VERNDA.JW. FJÖLSKYLDUNA • Tók lógin I eigin hendur ' Náðfiöur af fprsetanum IIITTMVLID Það þekkja það margir sem hafa talað fyrir framan Qölda fólks að það getur tekið á taugarnar. Varaþingmaður Sam- fylkingarinnar, Guðný Hrund Karlsdóttir, fékk að kynnast því á miðvikudaginn þegar hún hélt jómfrúræðuna. Hún varð gjörsam- lega kjaftstopp. Kjaftstopp Guðný lét engan bilbug á sér finna í gær og fór aftur í pontu. DV-MYND Sigtryggur EINAR ÞÓR SICURÐSSON bladamadur skrifar einar@dv.is „Þetta var jómfrúræða mín á Alþingi og ég varð alveg kjaftstopp," seg- ir Guðný Hrund Karlsdóttir, vara- þingmaður Samfylkingarinnar. Það er 91. fundur Alþingis og klukkan er 15.45, miðvikudaginn 16. apríl. Guð- ný Hrund er við það að stíga í pontu Alþingis í fyrsta skipti á ævinni. Hún er tiltölulega róleg en stressið er þó til staðar. Það þekkja það eflaust marg- ir sem hafa talað fýrir framan fjölda fólks að það getur tekið á taugarnar. Guðný fékk að finna fyrir því. Byrjaði ágætlega Umræðuefnið á þinginu voru nið- urstöður vorralls Ilafrannsóknastofn- unar. Þingmenn skeggræddu niður- stöðurnar og ætlaði Guðný ekki að láta sitt eftir liggja. „Ég fór þarna upp með nokkra punkta á blaði og vissi svona nokkurn veginn hvað ég ætl- aði að segja," segir Guðný sem byrj- aði ræðuna ágætlega. Hún ávarpaði forseta, talaði í nokkrar sekúndur um niðurstöður Hafrannsóknastofnun- ar, en þá kom fýrsta þögnin. „Stress- ið kom ekkert fyrr en ég var kom- in í pontu," segir Guðný sem reyndi að fela stressið eins vel og mögulegt var. Hún hélt áfrarn að tala næstu 30 sekúndurnar en þá kom þögn núm- er tvö. Fyrsta skipti kjaftstopp „Ég sá það strax að ég hefði betur haft þetta skrifað. Ég taldi mig geta þetta því það voru fáir þingmenn í salnum. Ég hefði aldrei trúað þessu upp á mig," segir hún. Eftir að hafa staðið orðlaus í pontu í rúmlega 30 sekúndur gafst Guðný upp og fór nið- ur. Undrunarsvipurinn á Magnúsi Stefánssyni, sem sat fýrir aftan Guð- nýju, leyndi sér ekki. Magnús sat í stól forseta Alþingis í fjarveru Sturlu Böðvarssonar. Guðný segir að fjölskylda hennar hafi gert létt grín að henni eftir jóm- frúræðuna. „Þetta var í fýrsta skipti sem einhver innan fjölskyldunnar fpontu Guðný reynir að láta til sín taka en þarf frá að hverfa skömmu síðar út af stressi. sér mig kjaftstopp," segir Guðný létt í bragði. Fall er fararheill Aðspurð hvort hún hafi fengið samúð frá öðrum þingmönnum eft- ir að hafa stigið niður úr pontu seg- ir hún að þingmenn hafi sýnt henni skilning. Enfall erfararheill. Guðnýlét engan bilbug á sér finna í gær er hún fór aftur í pontu á Alþingi. Þá var hún með tilbúna ræðu og enga punkta á blaði. Það er skemmst frá því að segja að henni gekkbetur, enda reynslunni ríkari. „Þetta er eitthvað sem kemur fýrir. Ég er vön því að flytja mitt mál skýrt og skorinort," segir Guðný sem er ffá Keflavík og því þingmaður Suð- urkjördæmis. Hún lauk skyldu sinni í bili sem varaþingmaður í gær þar sem kjördæmadagar hefjast í dag. Guðný mun því snúa aftur í starf sitt sem viðskiptastjóri hjá hugbúnaðar- fyrirtækinu Maritech í Kópavogi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.