Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 18. APR(L 2008 Helgarblaö DV Ofurlaun bankamanna sæta gagnrýni sem aldrei fyrr og vekja himinháir starfslokasamningar sérstaka furðu almennings. Framganga Glitnis með greiðslum til starfsmanna, ýmist fyrir að hefja störf hjá fyrirtækinu eða hætta, hefur þar farið einna hæst. Nú er hins vegar farið að hrikta í stoðum bankanna og hafa helstu ráðamenn þjóðarinnar gefið út að íslensku viðskiptabankarnir fái þá aðstoð sem þeir þurfi frá ríkisstjórninni. Hinn al- menni launþegi þarf þannig að borga fyrir björgunaraðgerðir til handa þeim ríku. Lárus Welding gæti farið ( 1500siglingarum Miðjarðarhafið fyrir þá upphæð sem hann fékk fyrir að hefja störf hjá Glitni. Ef hann byði þeim Bjarna og Frank með í ferðirnar yrðu þær þó aðeins 500. Frank O. Reite gæti keypt 20 þriggja herbergja íbúðir ( Reykjavík fyrir andvirði starfslokasamningsins við Glitni. Hann starfaði þar í þrjú ár. eins ERLA HLYNSDOTTIR bladamadur skrifar: erla(&>dv.is „Á undanförnum árum hafa stjórn- endurbankannalitið á fjármálastofn- anir út frá sjónarmiðum Andrésar Andar. í bönkunum er allt vaðandi í peningum og það skiptir ekki máli þó tekin sé stöku aukahnefafylli. Það sér ekki högg á vatni. Þetta minnir á sögu úr Andrésarblaði þar sem Jóa- kim Aðalönd lætur jarðýtur ýta pen- ingastöflunum til hliðar til hinna og þessara," segir Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt í viðskiptafræði við Háskóla íslands og framkvæmdastjóri Félags fjárfesta. Ofurlaun bankamanna sæta gagnrýni sem aldrei fyrr og vekja himinháir starfslokasamningar sér- staka furðu almennings. Framganga Glitnis með greiðslum til starfs manna, ýmist fyrir að hefja störf eða hætta, hefur þar farið einna hæst. Bjarni enn á launum hjá Glitni Nú síðast var það Norð- maðurinn Frank O. Reite, sem starfaði í framkvæmda- stjórn Glitnis í þrjú ár, sem fékk starfslokasamning upp á 510 milljónir ís- lenskra króna. I norskum fjölmiðlum hefur verið haft eftir Frank að honum þyki þetta svimandi há upphæð. En hann tekur henni engu að síður. Öllu stærri var starfsloka- samningur Glitnis við Bjarna Ármannsson sem lét þar af störf- um forstjóra fyrir réttu ári. Hann fékk 900 milljónir í sinn hlut. Sam- kvæmt samningnum hélt Bjarni launum og árangurstengdum greiðslum í eitt ár írá starfs- lokum og eru því enn tólf dagar eftir af launadög- um hans hjá Glitni. Einnig keypti bankinn af hónum hlutafé á yf- irverði. Þó sú upphæð sem Lár- usi Welding var greidd til að taka við forstjóra- stjólnum væri aðeins um þriðjungur þess sem Bjarni fékk vakti hún ekki síður spurn- ingar um hvort bank- arnir væru komnir úr sambandi við íslensk- an veruleika. Hinn al- nenni launamaður getur engan veginn samsamað sig — þessum útrás- arvík- ingum. Mörgum finnst þeir hafa stað- ið sig vel og eiga hverja milljónina skilið en öðr- um finnst nóg komið. Almenningur borgar undir auðmenn Erfiðleikar á alþjóð- legum fjármálamörk- uðum hafa sann- arlega látið vita af sér hér á landi. Skuldatrygging- arálag íslensku bankanna hefur farið upp úr öllu og fjármála- spekingar deila áhyggjum sínum af íslensku efnahags- lífi. Sumir wJ segja það að- TF xt-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.