Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 18. APRfL 2008
Umræða DV
HVAÐ BAR HÆST f VIKUNNI?
REI-vandræðagangur
„1 borgarmálunum finnst mér
bera hæst vandræðaganginn innan
Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn
sem virðist keyra um þverbak, með
Kjartan Magnússon á fullu í útrásinni
og Gísla Martein á bremsunni. Það
hefur hrikt í stoðum þessa meirihluta
frá byrjun. REI-skýrslan var þverpólitísk
niðurstaða um hvert skyldi stefna, en
Sjálfstæðisflokkurinn virðist stefna í
aðra átt og ég hef aldrei séð annan eins
rassskell eins og borgarmeirihlutinn fékk í
leiðara Morgunblaðsins í gær. Þetta er svo
vandræðalegur meirihluti í alla staði og
það er allt á sömu bókina lært. Mér virðist
enginn ganga í takt og ég sé ekki hvernig
borgarfulltrúarnir ætla að snúa sér út úr
þessu. Mér sýnist allt stefna í að REI-málið
sé að taka sig upp á nýjan leik. Svo var ég
kjörin formaður Kvenréttindafélags fslands
í fyrradag, eftir að hafa verið þar sjö ár í
sjálfboðastarfi."
Margrét Sverrisdóttir varaborgarfulltrúi.
Kvenleg sýn
„Ég er með svolítið kvenlega sýn á vik-
una. Þá nefni ég fyrst nektardansinn hjá
hestamönnunum. Mér finnst mjög sérstakt
að menn skuli enn vera að láta bendla
sig við svona vitleysu árið 2008. Margrét
Sverrisdóttir var kosin formaður ICvenrétt-
indafélagsins og verður gaman að sjá hana
beita sér, bæði í svona málum og varðandi
launamuninn. Síðan finnst mér mjög öflug
og fin umræðan um óhollu auglýsingarn-
ar sem beint er til bama fyrir barnatímana
í sjónvarpinu. Það er löngu tímabært að
taka á því. Svo finnst mér voðalega gaman
að sjá að sundlaug er að verða til á Hofsósi.
Það er náttúrlega geysilega fallegt þarna og
mér finnst afar gaman ef fólk ædar að skilja
eitthvað svona gott eftír í heimabyggðinni.
Þetta er ofboðslega skemmtílegt fordæmi
fyrir aðra sem eiga fjármagn til að gera
svona hlutí. Síðan er búin að vera mjög öflug
umræða um fordóma og fréttaflutning gagn-
vart útíendingum. Ég hlakka tíl að mæta á
ráðsteftxu um þessi mál í Salnum á morgun
[í dag] með yfirskriftínni Hinn gmnaði er út-
lendingur. Það er löngu tímabært að blaða-
menn setjist niður og ræði þessi mál.""
Guðrún Ógmundsdóttir, verkefnisstjóri og
fyrrverandi þingkona
Hittir Ingibjörgu Sólrúnu
„Ég er að vinna svo mildð við
þáttagerðina að ég er svolítíð út úr
umræðunni. Jú, bíddu, óvænt gleði yfir
frábæru Eurovision-myndbandi. Ég er
mjög ánægður með krakkana að þau skulu
hafa tekið svona skemmtilegan vinkil á
þetta. Ekkert í öllum heiminum hefði geta
komið mér jafnmildð á óvart. Ég hef annars
engan áhuga á Eurovison. Mér finnst þetta
leiðinleg tónlist. Það var því vissulega ijós
punktur í tílvemnni hvað myndbandið er
framúrskarandi. En svo er hugurinn mikið
við það að ég er að fara að hitta Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur á morgun [föstudag]
og taka við hana viðtal. Ég er búinn að
vera að bræða það með mér hvemig
maður talar við svona fyrirmenni. Ég fæ
fimmtán mínútur. Ég er að hugsa um að
gefa pólitíkinni frí. Og þó, ætíi það sé ekki
best að halda því opnu. Við höfum alveg
leyft okkur að ræða um alvörugefin mál þó
þetta sé svona spjallþáttur. Tókum tíl dæmis
viðtal við Arnþrúði Karlsdóttur í vikunni
um lögreglumál, það var mjög alvarlegt en á
sama tíma skemmtilegt."
Þorsteinn Guðmundsson, leikari og
þáttarstjórnandi Svalbarða á Skjá- Einum.
Sérstök skilaboð Seðlabankans
„Mér finnst þessi sérstöku skilaboð sem
Seðlabanki Islands sendi frá sér um að
fasteignaverð væri að lækka verulega hafa
borið hæst í vikunni. Mér finnst bankinn
fara mjög glannalega ffarn í þessu máli.
Það er mjög vont að tala fasteignamarkað-
inn niður með þessum hætti, sérstaklega
á óvissutímum eins og nú í efnahagsmál-
um. Ábyrgar stofnanir ættu ekki að hegða
sér með þessum hætti. Það er ekki hlutverk
Seðlabankans að tala eignaverð niður og
bankinn hefur ekki einu sinni fært rök fýrir
þessari lækkun. Þetta eru afleit skilaboð.
Það er markmið stjórnvalda og ríkisstjórn-
arinnar að tryggja það að fasteignamark-
aðurinn virki.
Að mínu mati hefur þetta borið hæst
ásamt REI-málinu, sem maður áttar sig
ekki alveg á hvernig snýr."
Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður
Samfylkingarinnar
- Þæginleg lögun
- Vatnsúði
. - llmgjafi ^ ^
.a - Þín eigin tónlist
- Hágæða hljóðkerfi
mm
Nýjir bekkir
Nýjar sturtur
Nýjar vörnr
Fjarðargötu 17
220 Hafnarftrði
S. 555-7272
Nýjar og glæsilegar
Idosturtur, rúmgóðar
og þæginlegar.
ProTan
Sun Solutiom