Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 18. APRlL 2008 Menning DV Pétur Þór Gunnarsson Heldur hér á einu málverkanna sem boðin verða upp á sunnudaginn, verk eftir Louisu Matthiasdóttur. dv mynd:asgeir VIDTAL List án landamæra Hátíðin List án landamæra verður sett í fimmta sinn með opnunarhátíð í Ráðhúsi Reykja- vflcur kl. 17 í dag. Á dagskránni eru tónlistaratriði, upplestur og uppistand. Meðal flytjenda eru Valgeir Guðjónsson sem kem- ur fram með kór Fjölmenntar, Beggi blindi verður með uppi- stand og Páll Óskar Hjálmtýs- son treður upp með Dans- klúbbi Hins hússins. I kjölfarið verður stórglæsileg myndlistar- sýning opnuð í Austursalnum. Um helgina kennir svo margra grasa á dagskrá hátíðarinnar. Á Akureyri verða til að mynda tvær sýningar opnaðar á laug- ardag kl.14 og ein sýning verður opnuð í Landnámssetrinu í Borgarnesi á sama tíma. Dag- skrá hátíðarinnar er að finna á listanlandamaera.blog.is. Neonpartí Bókin Kona fer til læknis eftir hinn hollenska Ray Kluun kemur út í dag, föstudag. Bók- inni er lýst sem magn- + aðri sögu um sársaukafúlla ást enþetta er flmmtug- asta bókin í neon-bóka- flokki Bjarts. í tilefni af tímamót- unum verður haldin sérstök útgáfuhátíð í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi klukk- an 17 með skemmtiatriðum og léttum veitingum. Neon- bókaflokkurinn var stofnaður fyrir tíu árum en á vegum hans koma út skáldsögur sem hafa vakið sérstaka athygli í heima- landi sínu eða úti um heiminn. RAY KLUUN KONA FERTIL LÆKNIS '/utd WPátehi Hann var bendlaður við fölsun um þúsund málverka. Hann var ákærður fyrir rúm- lega hundrað þeirra en var sýknaður. Sumir segja að sýknudóminn megi eingöngu rekja til klúðurs hjá ákæruvaldinu. í millitíðinni brann galleríið hans í dularfullum eldsvoða sem skildi hann eftir gjaldþrota. Maðurinn er Pétur Þór Gunnarsson og er mættur aftur í myndlistarbransann eftir tíu ára útlegð. „Ég óttast ekki að það verði tómt hús á uppboðinu," segir Pétur Þór Gunnarsson, myndlistarmaður og málverkasali. Flestír tengja Pét- ur við Gallerí Borg sem hann áttí ásamt eiginkonu sinni og rak í um sex ár á tíunda áratugnum. Hann opnaði gallerí undir sama nafni í Skipholti 35 í nóvember síðastliðn- um og heldur sitt fyrsta uppboð eft- ir endurkomuna á Hilton-Nordica hóteli á sunnudaginn. En Pétur er ekki eingöngu þekkt- ur fyrir reksturinn á Gallerí Borg heldur einnig fyrir að vera ann- ar sakborninga í stóra málverka- fölsunarmálinu svokallaða sem var á allra vörum í mörg ár. Það er eitt stærsta og umtalaðasta dóms- mál Islandssögunnar. Þar var Pét- ur, ásamt Jónasi Freydal Þorsteins- syni, ákærður fyrir að hafa falsað eða látið falsa hundrað og þrjú mál- verk eignuð íslenskum myndlistar- mönnum og einum dönskum list- málara. Á meðal umræddra málara voru kanónur á borð við Kjarval, Svavar Guðnason, Ásgrím Jónsson og Nínu Tryggvadóttur. Meint brot áttu að hafa átt sér stað á árunum 1992 til 1999. Átta ára þrautaganga „f mars 1997 kemur málið fyrst upp," segir Pétur alvarlegur í bragði. „Það er að segja, fyrstu verkin voru kærð inn þá. Síðan hlóð þetta utan á sig og stóð nánast sleitulaust í átta ár. Það er náttúrlega ótrúlegt að ekki hafi verið hægt að klára málið fyrr. Við reyndum að halda áfram en eins og þú kannski manst var þetta í fjölmiðlum nánast á hverjum ein- asta degi í mörg ár og varla rætt um annað í þjóðfélaginu." Síðasta uppboðið sem Pétur og kona hans, Erna Flygenring, héldu var síðla árs 1998, eða fyrir bráðum tíu árum. Þrátt fyrir að málið hefði þá verið í gangi í rúmt ár var þetta eitt albesta uppboð sem þau höfðu haldið. Salan var gríðarlega góð og ætlunin var bara að halda áfram. En snemma árs 1999 var kveikt í gall- eríinu. „Ég fékk nú aldrei neina nið- urstöðu í því máli, hver voru upptök eldsins eða neitt slíkt. En ég frétti af því að mólótov-kokkteil hafi ver- ið kastað inn um gluggann. Þetta hljómar náttúrlega eins og eitthvað sem gerist í vanþróuðu ríkjunum." Pétur og Erna urðu gjaldþrota í kjölfar brunans og að sögn Pét- urs var rekstri bæði Gallerís Borg- ar og antíkverslunar sem þau ráku í sama húsi því eiginlega sjálfhætt. „Við vorum tryggð en við fengum nánast ekkert út úr því. Við vorum náttúrlega með umboðssölu og all- ir þeir sem áttu myndir hjá okkur fengu þær bættar. Við vorum tryggð hjá VÍS og þeir stóðu sig alveg frá- bærlega og gerðu upp við alla. En að fara að byggja upp reksturinn aftur hefði kostað allt of mikið og því var þessu sjálfhætt." Utskriftarsýning LHI Útskriftarsýning Listaháskóla fslands verður opnuð á Kjarvalsstöðum á morgun klukkan 14 en hún stendur til 1. maí. Sýnd verða verk sextíu og þriggja útskriftarnemenda úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild skólans. Leiðsögn um sýninguna í umsjón nemenda skólans verður á sunnudaginn klukkan 15. MENNING ferðafrelsi iHúsbílgr fró Weinsberg ornu www.ferdaval.is FGRÐAVAL Lund i við Vesturlan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.