Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Blaðsíða 25
DV Menning
FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 25
Danssmiðja Dansflokksins
Danssmiðja íslenska dansflokksins fer fram um helgina. Hún er með
öðruvísi sniði nú en venjulega þar sem sýnd verða tvö ný dansverk,
Tímarúm og Special Treatment, til styrktar ABC barnahjálp. Sýningar fara
fram í gömlu Heimilistækjabyggingunni í Sætúni 8. Miðaverðið rennur
óskert til að kosta skólagöngu barns í Pakistan ásamt skólamáltiðum í
heilan mánuð. Nánari upplýsingará id.is.
Sýningarlok í Artóteki
Nú fer hver að verða síðastur til að skoða sýningu Auðar
Vésteinsdóttur myndlistarmanns í Artóteki Borgarbókasafns
Reykjavíkur á 1. hæð Grófarhúss viðTryggvagötu. Sýning-
unni lýkur á sunnudag en á henni má berja augum collagev-
erk og textílverk ofin með hör, ull og hrosshári.
Einar Kara
son a Ritþinei
Rithöfundurinn Einar Kára-
son situr fyrir svörum á Ritþingi
í Gerðubergi á laugardaginn
frá kl. 13.30 til 16. Stjórnandi
er Halldór Guðmundsson og
spyrlar eru rithöfundarnir Sjón
og Gerður Kristný. Á Ritþing-
inu verða flutt tónlistaratriði
og lesið upp úr verkum Einars.
Fram koma Karl Guðmundsson
leikari, KK og Tómas R. Einars-
son og hljómsveit. Ritþing hafa
verið haldin í Gerðubergi frá
árinu 1999 og er ætlað að veita
persónulega innsýn í líf og feril
íslenskra rithöfunda.
Óperan leitar
að söngvurum
íslenska óperan leitar um
þessar mundir að söngvurum í
Kór íslensku óperunnar. Kórinn
tekur þátt í mörgum af upp-
færslum íslensku óperunnar og
gegnir oft veigamiklu hlutverki í
sýningum. Nú er ráðgert að val-
ið verði í kórinn til lengri tíma
en ekki í einstök verkefni eins
og verið hefur. Áheymarpróf
fara ffam í íslensku óperunni
dagana 21. til 23. aprfl og stend-
ur skráning í prófin nú yfir. Ætl-
ast er til að umsækjendur syngi
eina aríu eða eitt lag og þykir
æskilegt að þeir hafi stundað
söngnám, hafi reynslu af kór-
söng og einhverja leikreynslu.
Sex mánuðir skilorðsbundnir
Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn-
aði Pétur af öllum ákærum nema
þremur. Þær fólust í því að hann
hefði átt að vita að þrjú verkanna
sem hann seldi væru fölsuð, án þess
að finna hann sekan um að falsa
þau sjálfur. Fékk Pétur sex mánaða
skilorðsbundinn dóm fyrir. Annar
lögmanna hans, Sigríður Rut Júlí-
usdóttir, mælti með því að hann
áfrýjaði ekki þar sem um níutíu og
sex prósenta sigur var um að ræða.
„En ég vildi áfrýja í trausti þess að
þetta yrði núllað, ég yrði hreinsaður
algjörlega. Það gerðist svo í Hæsta-
rétti árið 2004“
Allt í allt var Pétur bendlaður
við að hafa falsað eða látið falsa um
þúsund verk. Að lokum var hann
hins vegar einungis ákærður fyrir
hundrað og þrjú þeirra. Pétur segir
að hann og lögfræðingurinn hans
hafi reiknað út að miðað við verðin
á verkunum sem ákært var fyrir væri
verðmæti allra þúsund verkanna að
vera um 800 til 900 milljónir króna.
Hann bendir á að verk á uppboði
séu aldrei borguð svart.
„Fólk á uppboði er ekki með ein-
hverja fimm þúsund kalla í vasan-
um," segir Pétur. „Það millifærir á
galleríið þegar það mætir að sækja
myndirnar daginn eftir. Það er því
ekki til í dæminu að það séu svartir
peningar inni í þessum uppboðum.
Hvar eru þá allir þessir peningar? Af
hverju varð ég gjaldþrota, af hverju
var konan mín gerð gjaldþrota, af
hvetju var húsið okkar selt á upp-
boði? Ef maður hefði grætt alla
þessa peninga á að falsa og mála
málverk væri maður ekkert hérna.
Maður væri bara úti að lifa lífinu."
Tómt kjaftæði hjá
ríkissaksóknara
Margir vilja meina að ekki hafi
fallið efnislegur dómur í málinu.
Sýknuna megi fyrst og fremst rekja
til klúðurs ákæruvaldsins, meðal
annars með því að fá sérfræðiálit
frá Listasafni íslands sem jafnframt
var kærandi í málinu. „Það er ekki
rétt að það hafi ekki fallið efnisleg-
ur dómur því það gerðist í Héraðs-
dómi. Það er útúrsnúningur sem
Jón H. B. Snorrason ríkissaksókn-
ari og fleiri hjá ríkislögreglustjóra
reyndu að búa til eftir að dómur
féll í Hæstarétti. Þetta er bara tómt
kjaftæði. Auðvitað var búið að fara
efnislega í þetta allt saman. En það
var ekkert reynt, ekki á neinu stigi
máisins, að sanna ákæruna á hend-
ur mér. Reynt að sanna hvort ég hafi
falsað eða látið falsa þessi málverk."
Pétur segist hafa orðið vimi að
ótrúlega ófagmannlegum vinnu-
brögðum hjá lögreglunni og ákæru-
Muggur Myndin erfrá árinu 1919og komfram löngu síðar. Hún er metin áfjórar
milljónir króna og verður á uppboðinu á sunnudaginn.
valdinu. „Það var skelfilegt hvernig
þeir unnu þetta mál. Alveg fárán-
legt frá a til ö. Ef ég nefni bara eitt
gerðu þeir allavega tvær húsleitir
heima hjá mér og í Gallerí Borg en
enga hjá hinum sakborningnum,
Jónasi Freydal, þar sem hann bjó og
var með fyrirtæki úti í Danmörku.
Ég spyr, var þetta fagmennska? Gat
ekki verið að hann væri með fullt af
gögnum eða fölsuðum málverkum?
Þeir reyndu líka að láta gögn hverfa
sem voru okkur til hagsbóta," segir
Pétur.
Breyttu orðalagi skýrslu
Pétur nefnir í því sambandi
skýrslu sem tekin var af þýskum
pappírssérfræðingi en saksókn-
ari lagði íslenska þýðingu hennar
fram fyrir dóminn. Ragnar Aðal-
steinsson, hinn lögmaður Péturs,
hafi hins vegar uppgötvað þegar
hann las frumskýrsluna að það væri
mismunur þarna á milli. „Þýðing-
in, sem lá frammi fyrir dómnum,
var vitlaus," segir Pétur. „Þeir höfðu
vísvitandi breytt orðalaginu. Mað-
ur hélt að svona lagað gerðist bara í
fyrrverandi Sovétríkjunum."
Aðspurður hvað hann telji hafa
valdið því að þetta mál allt saman
fór af stað segist Pétur ekki vera viss.
„En það voru örugglega einhverjir
sem höfðu horn í síðu minni. Það
héldu allir að ég væri orðinn rosa-
lega ríkur af því að reka Gallerí Borg.
Þetta var náttúrlega eina uppboðs-
húsið og eina fyrirtækið sem seldi
verk eftir gömlu meistaranna. Það
var líka mikil heift í málinu," segir
Pétur og nefnir þar sérstaklega Ólaf
Inga Jónsson, núverandi forvörð
hjá Listasaftii íslands. „Mér finnst
hann hafa farið fram með miklu
offorsi. Ég veit mörg dæmi þess að
hann dæmdi myndir falsaðar eftir
Ijósmyndum og án nokkurra rann-
sókna."
Gæti hafa látið blekkjast
Pétur segist alltaf hafa sagt að
það finnst engum leiðinlegra en sér
ef hann hefur selt fölsuð málverk í
galleríinu. „Ég er ekki svo grænn
að halda því fram að það hafi ekki
verið neinar falsaðar myndir í um-
ferð. Auðvitað getur það hafa kom-
ið fyrir að ég hafi látið blekkjast af
einhverjum sem kom með myndir
sem voru ekki í lagi. En mér finnst
hins vegar fáránlegt að halda því
fram að ég hafi málað þau eða látið
gera það. Ég var einn að reka þetta
fyrirtæki á sínum tíma, og reynd-
ar þessi tvö fyrirtæki [antíkversl-
un Gallerí Borgar], og akkúrat þeg-
ar við konan mín kaupum þau og
setjum þetta upp eignumst við þrjú
börn á þremur og hálfu ári. Það
þekkja það allir sem eru með lít-
il börn að þú getur ekkert verið að
mála Kjarval..."
Pétur gerir örstutt hlé á mál-
inu sínu en heldur svo áfram. „Ég
málaði ekki einu sinni mínar eigin
myndir heldur lagði penslana al-
gjörlega frá mér. Maður hefur eng-
an tíma í það, hvað þá þegar maður
er að reka fyrirtæki líka."
Fjöldi fólks búinn
að dæma mann
Pétur fór í framhaldi af
sýknunni í skaðabótamál við rík-
ið en kröfunni var hafnað. Und-
anfarin ár hefur hann verið í
veitingahúsabransanum, meðal
annars rekið Kaffi Amor á Akur-
eyri, unnið í Sjallanum og Fjöru-
kránni í Hafnarfirði. Pétur, sem
lærði málaralist í Listaakademí-
unni á Fjóni í Danmörku, hefur
einnig verið að mála og selja eig-
in verk.
Pétur, sem verður fimmtugur
síðar á árinu, segir þetta hafa ver-
ið mjög erfiðan tíma. Hann á fjög-
ur börn með Ernu konu sinni. „Ef
við ættum ekki þessi börn værum
við flutt út í heim. Það eru marg-
ir sem spyrja okkur af hverju við
búum hérna ennþá." Pétur seg-
ir að stuðningur ættingja og vina
á þessum erfiðu tímum hafi verið
ómetanlegur. „Það er fjöldi fólks
sem er búinn að dæma mann. Það
heldur ennþá að ég hafi bara ver-
ið að mála Jón Stefánsson, Kjarval
og fleiri. En ég breyti því ekkert.
Aðalatriðið er að maður veit alveg
fyrir hvað maður stendur, hvað
maður hefur gert og hvað maður
hefur ekki gert. Það er líka ólfldeg-
asta fólk sem hefur stoppað mann
úti á götu og sýnt stuðning. Það er
manni rosalega mikils virði."
Enginn beygur blundar því í
Pétri að það verði tómt hús á upp-
boðinu á sunnudaginn. „Nei, ég
óttast það ekki. Ég reikna með að
það verði þó nokkuð af fólki. Ég er
líka sennilega sá sem lærði mest
á þessu fölsunarmáli og mun ekki
taka nein verk til sölu nema að
eigendasaga liggi fyrir."
Fjögur Kjarvalsverk
Áttatíu og fjögur verk eru til
sölu á uppboðinu á sunnudag-
inn. Þar á meðal eru fjögur verk
sem Pétur segir metin á um fjórar
milljónir króna; eftir Mugg, Kristj-
án Davíðsson, Kjarval og Louisu
Matthíasdóttur. í heildina verða
fjögur Kjarvalsverk á uppboðinu.
Áf öðrum höfundum má nefna
Ásgrím Jónsson, Jón Stefánsson,
Kristínu Stefánsdóttur og Þorvald
Skúlason. Hægt er að skoða verk-
in í Gallerí Borg á föstudag, laug-
ardag og sunnudag á milli klukkan
eitt og fimm.
„Verkin hefðu getað verið mun
fleiri en ég vil ekki að þetta taki of
langan tíma," segir Pétur sem ætí-
aði sér ekki að halda uppboð fyrr
en í haust. En þegar allur þessi
fjöldi góðra verka var kominn í
umboðssölu hjá honum ákvað
Pétur að halda uppboðið núna.
„Uppboðin sem hafa verið haldin
hingað til byrjað yfirleitt um sjö-
leytið og standa til hálf ellefu. Það
er allt of langur tími. Fólk nennir
ekki að sitja svona lengi. Við byrj-
um hálf níu og reiknum með að
vera búin svona um tíuleytið. Einn
og hálfur tími er temmilegt."
kristjanh@dv.is
ALLTAAO SELJAST
Arctic Wear vinnufatnaður.