Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Page 39
DV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 18. APRlL 2007 39
tryggja sér framlengingu þar sem liðið sigraði.
Guðmundur segir tapið hafa virkilega fengið
á sig. „Ég verð nú að játa það að ég hef aldrei
getað horft á þennan leik aftur og mun aldrei
gera það. Við vorum með unninn leik og töp-
uðum boltanum á fáránlegan hátt undir lok
leiksins. Svo fór fram ótrúleg atburðarás þar
sem dómararnir klikkuðu algjörlega. Fram-
kvæmdin á leiknum fór algjörlega úr bönd-
unum. Framstjórnin kærði svo leikinn og en
þetta var algjört leiðindamál. Þetta var rosa-
legt áfall, ég verð að viðurkenna það. Ég var
heillengi að jafna mig og þetta tók mjög á mig.
Ég met þessa lífsreynslu samt mikils. f dag er
ég í rauninni orðinn manískur á þann hátt að
ég get ekki fagnað sigri fyrr en leikir eru alveg
búnir. Ég fagna ekki fyrr en dómarinn er búinn
að flauta. Ég nenni ekki að lenda í því aftur að
slaka á of snemma," segir Guðmundur.
ÆVINTÝRI í ÞÝSKALANDI
Eftir að hafa þjálfað hjá Fram tók Guðmund-
ur við þýska liðinu Bayern Dormagen í Bund-
esligunni. Þar tók við annars konar lífsreynsla
en hann hafði upplifað áður og menntaskóla-
þýskan kom sér að góðum notum. „Þegar ég
horfi til baka var þetta mjög erfiður tími. Ég tal-
aði einhverja menntaskólaþýsku en var send-
ur beint í blaða- og sjónvarpsviðtöl. Aldrei var
hægt að grípa til enskunnar og ég varð að gjöra
svo vel að læra þýskuna mjög fljótt.
Fyrra tímabilið gekk nokkuð vel en við vor-
um í mikilli fallbaráttu. En það var mjög erfitt
að vera að berjast við botninn og ég hef tekið
það loforð af sjálfum mér að taka ekki við liði
í þessari deild sem er að berjast við bominn.
Ég vil hafa mannskapinn sem þarf til þess að
standa sig í þessari deild. Það er enginn skiln-
ingur á því ef þú vinnur ekki. Þú átt bara að
vinna sama hver er í liðinu.
Mér bauðst að taka við Minden eftir að ég
1992-1994. „f svona aðstæðum eins og komu
upp hjá Víkingi er tvennt að gera. Annaðhvort
vorkennir þú sjálfum þér og leggst í kör eða
berst áfram.
í kjölfarið tók ég að mér mjög ögrandi verk-
efni þegar ég hélt í Mosfellsbæinn og tók við
Aftureldingu. Liðið var þá í annarri deild og
ég setti allt í botn. Þar gerðust frábærir hlutir
og eftir á að hyggja var þetta rosalega góð lífs-
reynsla sem ég bý að alla tíð," segir Guðmund-
ur.
FRAM STENDUR MÉR NÆST
Aðspurður hvort eitthvað lið standi honum
nær en annað, segir hann að svo sé. „Ég verð
að játa það að ég ber mjög hlýjar tilfmningar
til Fram. Það var mjög gott að starfa þar og ég
er búinn að vera þar í sex ár alls. Eins þykir mér
vænt um Aftureldingu því þar var gott að vera.
Auðvitað á ég enn mína gömlu félaga úr Vík-
ingi og aldrei hefur borið skugga á þá vináttu.
Hins vegar hefur Víkingur sem félag sett mikið
niður og gerði það í rauninni í eftir að ég fór.
Kannski var brotthvarf mitt táknrænt fýrir þá
hnignun sem fýlgdi. Þar hefur ekki verið unn-
ið að innra starfi og þeir hugðu ekki að því að
halda sambandi við leikmenn sem hafa verið
hjá þeim. Ég tel það meginástæðu þess að lið-
ið hét Víkingur-Fjölnir á tímabili. Slíkt segir að
þetta stórveldi sé ekki lengur til staðar, sem er
sorgleg staðreynd," segir Guðmundur
STEMNINGARKJÚKLINGAR
Guðmundur hugsar til tíma síns hjá Aft-
ureldingu með gleði í hjarta. Mikill uppgang-
ur var í bæjarfélaginu á U'ma hans hjá félag-
inu. „f fyrstu voru bara 5-6 á æfingu og maður
hugsaði með sér í hvað er ég kominn. Síðan
fékk ég í mitt lið nokkra minni spámenn sem
höfðu ekki fengið næg tækifæri hjá sínum lið-
um í bland við gamla jaxla. Þessi blanda náði
rosalega vel saman í annarri deildinni. Ahorf-
endur fóru að streyma á leiki hjá okkur og þar
sem áður mættu kannski 15-20 á leiki voru
skyndilega um 300 manns á hverjum leik. Allt
bæjarfélagið var farið að taka þátt í þessu og
stemningin var frábær. Svo komumst við í átta
liða úrslit á fyrsta ári í 1. deild. Síðan komumst
við í undanúrslit úrslitakeppninnar árið eftir
það, en þá skildu leiðir. Viðskilnaður minn við
Aftureldingu var ágætur. Stjórnendurnir vildu
gera enn betur og höfðu miklar væntingar. Því
leituðu þeir á önnur mið og allt brotthvarf mitt
var í mikilli sátt," segir Guðmundur.
GET EKKI ENN HORFT Á BIKARÚRSLITA-
LEIKINN 1998
Hann tók næst við liði Fram og þjálfaði það
í íjögur tímabil frá árinu 1995-1999. Aftur tók
hann við liði sem var í annarri deild og reif það
upp um deild yfir í toppbaráttu í 1. deild. Fram
hafði þá verið fast í annarri deild í tvö ár. Enn
á ný fékk Guðmundur það hlutskipti að taka
við liði sem átti bágu gengi að fagna. Strax árið
1995 tapaði liðið vart leik og fór auðveldlega
upp um deild. Undir hans stjórn lék meðal
annars hinn eftirminnilegi Rússi Oleg Titov
og Guðmundur hefur miklar mætur á hon-
um. „Titov er einhver allra besti alhliða hand-
boltamaður sem hingað til lands hefur kom-
ið. Hann var frábær vamarmaður og ótrúlegur
sóknarmaður. Það var ákveðin upplifun að
þjálfa hann. En því miður átti hann við erfið
meiðsl að stríða og þurfti að hætta á þriðja ári
um þri'tugt," segir Guðmundur
Fram lék marga milálvæga leiki undir stjóm
Guðmundar en sá allra eftirminnilegasti var
í bikarúrslitaleik árið 1998 þegar Valsmenn
stálu sigrinum á ótrúlegan hátt. Valsmenn áttu
innkast þegar einungis örfáar sekúndur lifðu
leiks og Fram leiddi með einu marki. Á óskilj-
anlegan hátt tókst Valsmönnum að jafna og
Ðogdan Kowaiuyk, landUiðfcþjaiiuri lilendinga. I«f hér í loftið i kjottnr ftigunúns a löndum hans, Pðlvcrtum. Bogd-
an lor a koslum I leiknun og dt noUtur rian«por a lokaminútunum tr sigur var i holn.
DV-myndir Ðrynjar Gauti/Paris
Gull í París
Flautnn gvllur. Guðmundur Guð-
munds&on laQnar signnum með
sinu sðrstaka lagi.
ÞorgUs Ottar lclcur hcr i hönd staU-
bróöur tins I pobka liðinu, Bogdan
Wc-ntm Óitar heldur um bikarinn
traega og ekki tæst bctur séð en að
Bogdan liti gripinn löngunaraugum.
þjálfaði landsliðið í fyrra skiptið. Ég sagði hins
vegar þvert nei, því ég vildi ekki lenda í sömu
aðstöðu aftur. Engu að síður horfi ég til reynsl-
unnar í Þýskalandi á mjög jákvæðan hátt.
Guðmundur var rekinn frá Bayern Dormagen
á annarri leiktíð sinni hjá félaginu og hann
segir þá ráðstöfun hafa verið skiljanlega. „Ég
skildi stjórnendurna alveg. Liðið var í mjög
erfiðri stöðu. Við áttum að vísu seríu þar sem
við unnum Lemgo, Kiel og Nordhorn á útivelli
en þá hafði það félag ekki tapað á heimavelli
í þrjú ár. Á þeim tímapunkti leit allt rosavel út,
svo meiddust lykilleikmenn og hópurinn var
mjög lítill. Eftir það var í raun allt búið og við
áttum lítið í þau lið sem við mættum eftir það.
Við unnum Kiel, þar sem leikmenn í mínu liði
meiddust, en allir voru rosaánægðir eftir leik-
inn. Svo töpuðum við þremur í röð og ég var
látinn fara," segir Guðmundur hlæjandi.
FYRRI LANDSLIÐSTÍMINN
Eftir veru sína í Þýskalandi bauðst Guð-
mundi að taka við landsliðinu og hann var
ekki lengi að taka boðinu. Undir hans stjórn
lék landsliðið skínandi handknatdeik og náði
meðal annars 4. sætinu í eftirminnilegri EM-
keppni árið 2002. „Við lékum alveg frábærlega
á þessu móti og eftir það byggðust upp gríð-
arlegar væntingar. Eftir mótið var mildð tal-
að um hvað við ættum frábæra leikmenn en
minna talað um þjálfarann," segir Guðmund-
ur og hlær við. „Væntingarnar voru mjög mikl-
ar fýrir HM 2003 og á því móti lendum við í 7.
sæti, efstir allra Norðurlandaþjóða. Auk þess
komumst við inn á ólympíuleikana en það var
markmkiðið fyrir mótið. Eftir að við komum
heim heyrði maður samt á sérfræðingum að
mönnum fannst árangur ekkert sérstakur. Eftir
þetta fórum við á EM 2004 og vorum í tómu
tjóni. Svo lentum í níunda sæti á ólympíuleik-
unum en við vildum enda ofar," segir Guð-
mundur en (sland endaði í 13. sæti á EM 2004.
í kjölfarið hætti hann með landsliðð og hvíldi
sig í nærri ár frá handbolta áður en hann hélt í
Safamýri á ný og tók við Fram árið 2005.
ÆVINTÝRI LÍKAST HJÁ FRAM
Guðmundur þjálfaði Fram árin 2005 og
2006. Fram varð Islandsmeistari árið 2005,
þvert á spár flestra handboltaspekúlanta.
„Þetta tímabil var ævintýri líkast og þetta var í
raun hópur unglinga sem maður var að þjálfa.
Inn á milli voru að vísu menn eins og Sverre
Jakopsson og Björgvin Björgvinsson sem
höfðu verið lengi í bransanum. Þetta var rosa-
lega góð samsetning af ungum og áhugasöm-
um leikmönnum með stöku reynsluboltum
ásamt Petja í markinu. Allir þessir leikmenn
Guðmundur Guömundsson tekur við af Slavko Bambir:
• SUvko Bambir, II h«gr1, Asamt Hafli HalUtyni, tyrrvorandi formanni
handknattMkadoHOar Vikingo. Bamfair vat latnn Vtka pokann alnn i
©awVvWdi eltr aiar magwi gengi VAJnga á kiandomólinu.
• Gufamundur Goömundtwor.. tandclifasmafaur og ieikmaöor moö Vík-
rrgi, var i ga*tvfaidi ráöinn attirmaöur Slavios Ðamhirv ÞJáBaraotaðan
hjá VadnQÍ veröur trumraun Guömundar «tm fajAHaro.
TÓK VIÐ AF BAMBIR Guðmundur fór að þjálfa Víkinga
eftir að Slavko Bambir var látinn taka pokann sinn.
Uppáhiidsnu!ur
Lifrarréttur
handbolta-
mannsins
- «0 Uatti CuömmnÍM GuOmm<ðun\Mi
Mtefft
AFBRAGÐSKOKKUR Guðmundier
margt til lista lagt. 1990 gaf hann
lesendum DV uppskrift að lifrarrétti.
„Mun að sjálfsögðu
gera breytingar“
- segir Guömundur sem mun áfram leika meö Víkingum í handboltanum
.Við ákvÁöuni nö Icysa Slavko B.*un bír undn n lo mnin>d svai
hairn coröi viöhAndkmrtileikwlcild Vfliiiij^ íyrtrynrstand-
anrii kcwinivtlnuibl}. Slakt gengi llösins cr viiaskuld L-öalá-
sta-Aan «u viö tc-Uujn oö hægt sú aö ni muu mciru ut Ctr
sagðl 6slwr IfHvielnuon. inn.'xh.vm. oö hann takl viö jiJAlf-
un hösiná.
„haö cr rttt aö stjf'min hafðl
AamUunl \*& mls ok lór þcss á kil
\~A inUi aö é* taki >*iö hjáitun li&s-
im, Oe 6j: /ik\7tö aft sLi ti!.“ fcagði
Guönunriur i samtaH viö DV í
gasrkvoUll
„|«aö ir ljö*t uft H ttk kiö Vík-
incsiiöinu i njöf. irfiftuin tímirc.
F.K vona liins vvj'jr aö éc RCti Reii
böim;
varaform.ViUr tundknattlcikv
dclldar VTXlnp, í samtAli viö DV
felnt 1 gærkvðklL Júgoslavtnn
Slavku Uambír, vcrc jiblíaö htíur
Víkirca I vrlur. Irl nf stnríum hJ6
fílagwtí I prrkvöldi. Aö hofiiu
tamiiöi viö k'ikuHiiui 4kvuö tíiím
kanriknatlklkMkikLu' að fara jx-vi
á lrit viö lionumanirinn snjalla í
Vfkihfrllftlnu. Guönmnri Guft-
gagn. Or ít ntun aft vjAHsógftu
hakia áfrara tó U-iks roeö Víkincs
liölnu,** sagíu Goftnrandur cnn-
Ircmur.
- M»«a ra«n clga vnn á mikkan
brvytingian á Vik)nc*liAlnu (
ruestu lúkju jr.’’
Jm utun aö Ájáifsct.’ftu wcra
Ircjtingar cn j>aö ir ckkl havt aö
pra kraftawTk Á nokknnn dft«-
um.**
Víkingar muna vart eftir
anrtarri olns byrjun
Ákvtcftun stjörnar twnrikraat-
kiksdciiriar Mkinuv 1 ijíwkvtJidi
ktranir f Rjclfar aíar klíKtar lyTj-
unar Yikinga á ytirstandanril ív
Unrisuióti- Liftiö hefur aödns hlot
40 S vtig i U f>TSlu loikjunum. Vík
Ingar rr.um vart cftlr jnfnlclcgri
b>Tjun sinna roanna á íslandsracti.
0« vist mi tc’ja áö &i#or VUdngs
gcgn ÍK ura hclguui haJl cndankiu
ráftlö aö Vlkinpir ákváöu uft
skipta um þjálfnra.
•SK
áttu skilið að verða Islandsmeistarar. Ég vona
bara að Fram haldi áfram sínu góða starfi, því
þeir gætu vel náð titlum á næstu árum ef vel
er haldið á spilunum," segir Guðmundur. Árið
eftir íslandsmeistaratitilinn gekk ekki jafn vel.
Liðið endaði í þriðja sæti í deild og komst í bik-
arúrslit. Eftir tímabilið ákvað Guðmundur svo
að hætta í Safamýrinni.
UPPLIFÐI DRAUMINN
Guðmundur lék um árabil með Víkingum
í svokölluðu gullaldarliði félagsins sem vann
fjölda titla. Hann lék aldrei erlendis sem má að
miklu leyti skýra með því að á þeim tíma, fyrir
fall járntjaldsins, mátti einungis einn erlendur
leikmaður leika með liðum í Evrópu. „Yfirleitt
voru liðin að leita að skyttu" segir Guðmund-
ur hlæjandi en hann er fremur lágvaxinn fýrir
handboltamann og lék í horninu alla sína tíð.
„Auðvitað var enginn að leita að hornamanni
og því kom aldrei til greina að leika erlendis.
Auk þess var ég í góðri vinnu hérna heima og
viljinn var ekki til staðar hjá mér," segir Guð-
mundur.
Hvernig leikmaður varstu? „Ég var ofboðs-
lega fylginn mér og æfði mjög samviskusam-
lega. Lagði mig hrikalega fram á æfingum,
var ósérhlífinn og þoldi ekki að tapa. Kannski
var maður pínu „sick" hvað það varðar. Ég fór
mjög langt á hugarfarinu en hafði auk þess
ákveðna eiginleika. Var mjög fljótur og sterk-
ur fyrir stærð. Auk þess skildi ég leikinn vel
og spilaði góða vörn. Svo var ég bara baráttu-
hundur sem náði ákveðinni færni í handbolta
með því að æfa hrikalega.
Ég hafði góðan þjálfara í meistaraflokki í
Bogdan Kowalczyk. Eg yfirvann sumt með því
að æfa meira en aðrir. Bogdan sagði meira að
segja fyrst þegar hann sá mig að aldrei myndi
neitt verða úr mér. En ég býst við því að ég hafi
afsannað það," segir Guðmundur.
Guðmundur lék 230 landsleiki með íslenska
landsliðinu og margir hverjir voru þeir eftir-
minnilegir. Bogdan Kowalczyk bj ó til skemmti-
legt lið á níunda áratugnum sem margir segja
að hafi lagt grunninn að velgengni í íslensk-
um handknattleik. Guðmundur var hluti af
því liði og átti stóran þátt í nokkrum glæstum
sigrum. Sérstaklega er vert að minnast á leik
gegn Rúmenum árið 1986 sem höfðu í tugi ára
verið meðal fremstu þjóða heims. Guðmund-
ur á góðar minningar ffá þessum leik. „Sigur-
inn á Rúmenum árið 1986 er gríðarlega eftir-
minnilegur. Þetta var fyrsta stórkeppnin sem
við gerðum góða hluti á. Að vísu komumst við
inn á ólympíuleikana árið 1984 og enduðum
í 6. sæti sem var mjög fínn árangur. En síðan
kom HM 1896 og þá enduðum við í 6. sætí sem
var mjög góður árangur.
Leikurinn við Rúmena var ótrúlegur í raun.
Við leiddum allan tímann en þeir saumuðu
að okkur í lokin. Svo vorum við einu marki
yfir þegar um 10-15 sekúndur lifðu leiks og ég
skoraði sigurmarkið sem gulltryggði sigurinn.
Ég hafði hlustað á lýsingar sem strákur og ég
hafði ímyndað mér það sem lítill guttí að vera
einhvern tímann í þeirri stöðu að skora sigur-
markið með landsliðinu. Svo var ógleymanlegt
að upplifa það," segir Guðmundur stoltur.
ÞARFT AÐ LENDA (ANDSTREYMI
Víkingur var mikið stórveldi á níunda ára-
tugnum og Guðmundur var hluti af gríðar-
sterku liði. Auk Guðmundar voru leikmenn í
liðinu eins og Páll Björgvinsson, Árni Indriða-
son, Kristján Sigmundsson, Sigurður Gunn-
arsson, Viggó Sigurðsson, Ólafur Jónsson,
Þorbergur Aðalsteinsson, Bjarki Sigurðsson
og Karl Þráinsson, svo einhverjir séu nefnd-
ir. „Þetta voru gríðarlega sterkir karakterar
og þetta var á þeim tíma sem Bogdan breytti
handboltanum á Islandi," segir Guðmundur
en hann þjálfaði Víking á þessum tíma.
„Við fórum að æfa meira og þróa leikkerfi
sem þekktust ekld á þeim tíma. Svo fóru hin
liðin að auka æfingaálagið til þess að eiga roð
við okkur. Síðan gerist það sama þegar Bogdan
tók við landsliðinu, æfingaálagið jókst og ég
myndi segja að hann hafi verið nokkurs konar
faðir íslensks handknattleiks. Svo geta menn
deilt um hans karakter en hann truflaði mig
aldrei. Sjálfur hefði ég hlaupið í gegnum vegg
ef hann hefði beðið mig um það," segir Guð-
mundur.
Guðmundur gerir miklar kröfur til þeirra
leikmanna sem hann þjálfar, þannig er hann
gerður og þannig vill hann hafa það. „f fyrstu
einkenndist þjálfun mín af því að hafa verið
undir stjórn Bogdans. En svo breytíst maður
og þróar sinn stíl. Ég tel að það taki langan tíma
að verða góður þjálfari. Lengri tíma en margan
grunar. Þú þarft að ganga í gegnum með- og
mótbyr. Þetta snýst að miklu leyti um mann-
leg samskipti. Þú þarft að vera klár í að vinna
undir álagi og halda kúlinu öllum stundum.
Umhverfið má ekki trufla þig, hvorki fjölmiðl-
ar né áhorfendur. Ég tel að það taki mjög lang-
an tíma að verða góður þjálfari. I það minnsta
tók það mig mjög langan tíma, kannski er ég
bara svona lengi að læra," segir Guðmundur
og hlær að lokum.
vidar@dv.is