Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Side 45
DV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 45
Þremur klukkutímum fyrir fyrstu sýn-
inguna af þremur í borginni Guad-
alajara, heimabæ Gaels García Bern-
al, segist Gísli Örn Garðarsson fyrst
og fremst vera fullur eftirvæntingar.
Við setjumst niður í áhorfendasaln-
um, þar sem Gísli fer yfir ljósa- og
hljóðmál með starfsfólki leikhúss-
ins. Hann virkar mjög afslappaður
þótt fram undan sé fyrsta leiksýning-
in í nýju leikhúsi. Stressið og spenn-
an eru að baki þar sem þrjár sýning-
ar á Komúnunni í Mexíkóborg slógu
í gegn fyrir fullum sal. Nú er röð-
in komin að Guadalajara, þar sem
seldist upp á allar sýningarnar á inn-
an við klukkustund. Samtals koma
rúmlega tólf þúsund manns að sjá
Kommúnuna í Mexíkó.
„Gael er náttúrulega súperstjarna
hérna, en hann var ekkert fenginn til
okkar á þeim forsendum að sýning-
in yrði sett upp í Mexíkó, það gerðist
bara efdr á," segir Gísli Örn um mex-
íkóska stórleikarann. „Hann hefur
lítið leikið á sviði og hann langaði
mikið að leika á sviði í heimalandi
sínu. Það var heljarinnar stress í
Mexíkóborg og hann var sjálfur mjög
stressaður, þar sem allur bransinn í
Mexíkó var kominn til að sjá sýning-
una og enginn hafði hugmynd um
viðbrögðin."
íslenskt grín virkar vel
Kommúnan er að mestu á ís-
lensku, sem verður að teljast harla
óvenjulegt, þar sem Mexíkó er
eitt þeirra landa sem talsetur flest
innflutt sjónvarpsefni. Til þess að
áhorfendur sitji ekki glórulausir í
sætum sínum hafa hins vegar verið
settir upp textaskjáir sem þýða hið
framandi tungumál yfir á spænsku.
„Þetta er íslenskkommúna, íslensk-
ur raunveruleiki og sýningin er á
íslensku. Þetta hefur virkað alveg
rosalega vel og það er bara geðveik
stemning. Fólki flnnst æðislegt að
heyra tungumálið og fá innsýn í
hinn íslenska raunveruleika," segir
hann.
Á sýningunni um kvöldið kom
glögglega í ljós hvað Gísli Örn á við,
því oft á tíðum lágu áhorfendur í
hláturskasti á leiksýningunni, jafnvel
þótt hún sé á framandi mngumáli.
En kom aldrei til greina að setja
sýninguna alfarið upp á ensku eða
spænsku? „Nei, ekki á spænsku að
minsta kosti, við lékum einu sinni
Rómeu og Júlíu á þýsku í Þýskalandi,
þannig að við höfum alveg gert svo-
leiðis gloríur áður. Eftir þá reynslu
viljum við helst ekkert vera að end-
urtaka það."
Paparazzar alls staðar
Gísli viðurkennir að það hafi ver-
ið mikill happafengur að fá Gael Gar-
cía til liðs við Vesmrport. Hann seg-
ist þess vegna ekki vera hissa á þeim
gífurlega góðu viðtökum sem leikrit-
ið hefur fengið í landinu. Aðspurð-
ur hverju tilkoma Gaels hafi breytt,
svarar Gísli Öm: „Það sem gerðist
náttúrulega var að allir miðar seld-
ust upp á klukkutíma. Ég efast um að
við hefðum sýnt fyrir fullum sal kvöld
eftir kvöld ef hann hefði ekki verið
með." Gísli segist ekki hafa áttað sig
á því hversu frægur leikari Gael er,
fyrr en hann hélt blaðamannafund
með honum í Mexíkóborg. „Það var
bara algjör geðveiki, ég hef aldrei
lent í öðm eins, það vom um það bil
hundrað fjölmiðlamenn á svæðinu
með óteljandi paparazzi-ljósmynd-
ara. Fundurinn leystist svo upp í
það að Gael þurfti að hlaupa í burm
vegna ágangs fjölmiðla og allir fóm á
eftir honum. Þetta fór einfaldlega úr
böndunum," segir hann og hlær.
Svo frægur er Gael að hann ferð-
ast með lífvörð og ljósmyndarar elta
hann hvert sem hann fer. I tengslum
við uppseminguna á Kommúnunni
er ferðum hans haldið leyndum.
Gísli segir hópinn hafa verið
nokkuð hissa á því hversu svipað
það er að sýna fyrir framan íslenska
áhorfendur og mexíkóska. Munur-
inn felist þó fyrst og fremst í því að
mexíkósku áhorfendumir séu póli-
tískari en þeir íslensku. „Það er mik-
ið talað um Franco, fyrrverandi ein-
ræðisherra á Spáni, í sýningunni og
um það bil tíu prósent fólksins sem
býr hérna em komin af fólki sem
flúði Spán í valdatíð hans. Þetta
snertir því tilfinningar þeirra. Þeg-
ar línur úr Internasjonalnum, bar-
áttusöng kommúnista, eru sungnar í
sýningunni tekur þriðji hver maður í
salnum undir. Fyrir utan það er þetta
ótrúlega svipað og heima, fólk hlær
að sömu bröndurunum. Það hefur
komið okkur gífurlega mikið á óvart,
því við vissum ekkert við hverju við
áttum að búast."
Bjúgun stoppuð í tollinum
Það erfiðasta við að setja upp
leiksýningu hinum megin á hnett-
inum er hversu knappur tími gefst
til þess að ganga ffá tæknimálum og
aðlagast vettvanginum hverju sinni.
„Við höfum bara tvo daga til að setja
allt upp og auðvitað er það töluvert
öðmvísi að leika fyrir framan tvö
þúsund og þrjú hundruð manns þeg-
ar við erum vön að leika fyrir framan
flögur hundmð manns heima. Þetta
Eltur af paparözzum í Mexíkó Kommúnan var
sýnd í heimabæ Gaels Garcia Bernal á dögunum.
Það kom Vesturportsfélögum mjög á óvart hversu
frægur leikarinn er í Mexíkó. Hér eru Gael og Elena
Anaya (hlutverkum sínum f Komúnunni.
« im
#«is;
(
# i-
er þess vegna alveg heljarinnar kikk
fýrir leikarana. Ég vil alls ekki sjá að
sýningin sé sjúskuð, hún verður að
vera fagmannleg og hnökralaus og
laus við skítareddingar á síðustu
stundu," segir hann.
Væntanlega hefur eitthvað ófyr-
irséð sett strik í reikninginn í Mex-
íkó? „Jesús minn, ó jú," segir hann og
ranghvolfir augunum eins og hann
sé að rifja upp stressandi augnablik.
„í Mexíkóborg lenmm við í því að allt
propsið, leikmyndin og allir búning-
ar fóru með flugi frá íslandi. Einhver
hafði svo pakkað íslenskum bjúgum
með með því þau em notuð í sýn-
ingunni. Við komuna til Mexíkó var
bara allur pakkinn setmr í frost af
því að það fannst matur í leikmynd-
inni og það má nú alls ekki. Þetta var
á mánudegi og fyrsta sýningin var á
föstudegi. Leikmyndin átti að koma
út úr tollinum á þriðjudegi, en hún
kom ekki þann dag, ekki heldur á
miðvikudegi né á fimmrndegi. Við
vorum farin að ókyrrast verulega,"
segir hann.
Loksins þegar heimild fékkst til
að sækja leikmyndina úr tollinum
kom upp annað vandamál. Leik-
myndin varð fyrir valinu á tílviljun-
arkenndri tollskoðun, svo allt var
rifið upp á nýjan leik og grandskoð-
að. Á meðan beið Vesmrportshóp-
urinn í leikhúsinu, aðeins nokkmm
klukkutímum fyrir fyrsm sýningu og
án alls. „Loksins náðu þeir að klára
þetta og leikmyndin kom í leikhúsið
í lögreglufylgd klukkan hálf sjö um
kvöldið, nákvæmlega tveimur tím-
um fyrir sýningu. Við lögðumst hins
vegar öll á eitt og gerðum sýning-
GAEL ER NÁTTÚRULEGA SÚPER-
STJARNA HÉRNA, EN HANN VAR EKK-
ERT FENGINN TIL OKKAR Á ÞEIM FOR-
SENDUM AÐ SÝNINGIN YRÐISETT UPP
f MEXÍKÓ, ÞAÐ GERÐIST BARA EFTIR Á."
una klára á nýjum heimsmetstíma,
klukkutíma og korteri."
Frábær stemning í salnum
Stemningin í salnum á fyrsm sýn-
ingunni í Guadalajara var frábær,
leikararnir stóðu sig með eindæm-
um vel og uppskáru mikið lófaklapp
í lok sýningar. Blaðamaður ræddi
við nokkra gesti leiksýningarinnar
að henni lokinni. Allir sammælmst
um að sýningin hefði verið hin besta
skemmtun. Þá sagði einn gesta að
sér hefði fundist stórskemmtilegt að
heyra fslenskuna og að lesa spænska
textann með. Það hafi þó reynst erfitt
á tímabili því eitthvað klikkaði texta-
vélin þó um miðbik sýningarinnar.
Sjálfur segir Gísli að það megi nán-
ast stóla á að eitthvað slíkt vanda-
mál komi upp á á sýningunum. Eldri
hjón sem blaðamaður ræddi við,
vom hins vegar ekki eins upprifin af
sýningunni og sögðu hana helst til
dónalega.
Uppselt á Vesturport í Kóreu
Þaðer mikið fram undan hjá Vest-
urporti, Kommúnan verður tekin til
sýninga í London í febrúar á næsta
ári, en sýningarnar í Mexíkó verða
að öllu óbreytm síðusm sýningar
Gaels García Bernal með hópnum.
„Við emm að fara að sýna tvær sýn-
ingar í Kóreu í næsta mánuði og það
er þegar uppselt á þær. Svo emm við
að fara til Ástralíu, Bandaríkjanna og
frlands svo fátt eitt sé nefnt. Þá emm
við að taka bíómynd upp á íslandi
núna sem við gerðum bara hlé á tii
þess að fara til Mexíkó."
Það er mikið lúxuslíf og forrétt-
indi að mati Gísla að geta ferðast
um heiminn með þessum hópi og
sett upp sýningar sem hann hef-
ur virkilega mikinn áhuga á sjálfur.
„Það er hrikalega góð tilfinning að
koma hálfa leiðina yfir hnöttinn og
vera að skemmta tólf þúsund áhorf-
endum í botn með íslenska leik-
sýningu og þegar við erum komin
alla leið hingað er ekki yfir miklu að
kvarta."
Aðspurður hvort Vesturport sé
á toppnum nú um stundir, svarar
hann: „Það fer eftir því hvernig það
er skilgreint. Við höfum aldrei sýnt
fyrir framan svona áhorfendafjölda
en toppurinn er ekki endilega met-.
inn í því. Ég held fyrst og fremst að.
við séum bara á helvíti góðri braut
og okkur líður ekki eins og þetta sé -
að verða búið. Þetta heldur bara
áfram."
valgeir.ragnamon@gmail.com
V,