Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Qupperneq 58

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Qupperneq 58
58 FÖSTUDAGUR 18. APR(L 2008 HelgarblaB PV TÖLVUR&ÆKNI U m sj ó n : Pá 11 Svansson N etfa n g : paUi@dv.is Wll FIT Á LEIÐINNI / Nintendo-menn senda frá sér Wii fit-græjuna á næstunni. En um er að ræða sérstakan búnað sem tengist Wii-tölvunni og gerir eigendum kleift að nota leikjatölvuna í hinar ýmsu líkamsæfingar, sem eiga víst að vera nokkuð erfiðar. Græjan mun kosta 90 dali i Bandarikj- / unum eða um 6.700 íslenskar krónur. Líklegt er þó að græjan kosti mun meira þegar hún kemur hingað tii lands. Fit kemur í maí og verður gaman að sjá hvort nú verði loks hægt að ' - losna við aukakílóin með leikjatölvunni. Raunveruleikurinn The Sims hefur náð miklum vinsældum. Á dögunum seldist 100 milljónasta eintakið af leiknum á heimsvísu, sem gerir leikinn að vinsælasta PC-leikfrá upphafi. f leiknum stjórna menn lífi fólks með öllu tilheyrandi og hefur hann núna verið seldur í yfir 60 löndum á 22 tungumálum. Þriðji Sims-leikurinn er væntanlegur á næsta ári, en til þess að fagna þessum merka áfanga settu Electronic Arts, framleiðendur leiksins, sérstök hátíðarföt á heimasíðu sína sem leikmenn geta niðurhalað og klætt persónur sínar í. BLEKSPRAUTU- TATTÚERKÚL Flestir kannast við að hafa sett á sig tattú í barnæsku, svona tattú sem fylgdi með tyggjói og var hægt að þvo af með góðu móti. Nú er hægt að nota bleksprautuprentarann á heimilinu til að búa til eigin tattú, aðeins þarf að prenta á sérstakan tattúpappír sem nú er kominn á markað og leggja síðan yfir útprentið límpappír sem skilur eftir límkennda himnu á tattúinu og leggja síðan pappírinn við húðina og strjúka yfir með blautum svampi eða tusku til að yfirfæra það á líkamann. Mælt er með að nota sérstakt blek fyrir tattúgerðina, blek sem er að mestu leyti vatn og ekki talið óheilnæmt fyrir húðina. FARTOLVAN GERÐ UPPTÆK Rússnesk ríkisstofnun sem varð til við samruna fjölmiðla- og fjarskiptastofn- ana á síðasta ári hefur gefið út þá tilskipun að öll tæki sem geti komist inná þráðlaus net eða myndi þráðlausa aðgangspunkta verði að skrá sérstak- lega hjá stofnuninni og fá leyfi til að nota þau, annars verði heimilt að gera þau upptæk. Þetta kom fram hjá rússnesku fréttastofunni Fontanka sem tók viðtal við yfirmann stofnunar- innar í vikunni. Þetta er líklegast versta hugmynd skrifræðisins i gervallri mannkynssögunni því undir tilskipunina heyra gagnabeinar, lófatölvur, fartölvur með þráðlausum kortum, 3G-farsímar og fjöldamörg önnurtæki. SLÁ ÖLL METIBOKINNI? Grand Theft Auto 4 kemur út í lok mánaðarins. Sjaldan hefur verið beðið eftir einum leik með jafnmikilli eftirvæntingu. Markaðssérfræðingar spá því að leikurinn muni slá öll sölumet og jafnvel verða einhver arðbærasta skemmtivara allra tíma. Leikurinn fékk fullt hús stiga í breskri gagnrýni sem birt var á dögunum. Markaðssérfræðingar eru sammála um að Grand Theft Auto 4 muni lenda með látum þegar hann kemur út í lok mánaðarins. Hins vegar eru ekki allir sammála um með hversu miklu látum hann muni lenda. Fagtímaritið Variety hefur spáð því að leikurinn muni bera með sér söluhæstu opn- un skemmtivöru frá upphafi, hvorki meira né minna. Leikurinn kemur út 29. apríl á bæði Xbox 360 og Playstation 3. I tímaritinu Hollywood trade kemur fram að Take - Two Interactive, sem á Rockstar sem framleiðir GTA, hafi á dög- unum talið hversu mörg eintök þeir hafi forselt í búðir og hljóði sú tala upp á rúmar sex millj- ónir, eða um 400 milljónir dollara í gróða. Til þessa hefur aðeins Pirates of the Caribbean: At Worlds End skilað meiru í kassann, en hún hal- aði inn 404 milljónir dollara fyrstu vikuna í sýn- ingum. Þá myndi leikurinn valta yfir fyrra met tölvuleiks, sem var í höndum Halo 3, sem tók inn 300 milljónir dala og seldist í fimm milljón- um eintaka síðasta haust. Til eru markaðsfræð- ingar sem eru á því að leikurinn muni seljast í vel yfir sex milljónum eintaka. Til dæmis hinn mikilsmetni Mike Hickey sem spáir því að leik- urinn muni seljast í 9,5 milljónum eintaka fyrstu vikuna og í 5,8 milljónum í Bandaríkjunum ein- um. Fáir leikir hafa skapað jafnmikla spennu og eftirvæntingu og GTA 4. Leikurinn átti upphaf- lega að koma út í október, síðasta haust, en var frestað þar til núna. Á dögunum birtist dómur um Xbox 360-útgáfu leiksins í bresku leikjablaði og fékk hann þar fullt hús stiga. Meðal annars var sagt um hann að þarna væri á ferðinni eitt- hvert metnaðarfyllsta verkefni sem lagt hefði verið út í í tölvuleikjabransanum. dori@dv.is Útsjónarsemi innan Evrópuborga: HÁHRAÐANET í RÆSIN Sífellt fleiri borgir í Evrópu ihuga nú að nýta þau neðanjarðarmann- virki sem þegar eru til staðar til að uppfylla sífellt meiri kröfur almenn- ings fyrir háhraðatengingar. Frakk- ar hafa farið þar fremst í flokki en þeir hafa gert víðtækar rannsóknir á neðanjarðarmannvirkjum í París og nýtt þau fyrir lagningu slíkra neta. Neðanjarðarlestargöng eru tilvalin fyrir slíkar framkvæmdir en ann- markarnir þeir að slík kerfi ná frek- ar takmarkað út í öll hverfi. Þess vegna hafa sjónir manna beinst í síauknum mæli að gaslögn- um, ræsum, skólp- og frárennslis- lögnum innan borga til að minnka þann kostnað sem uppbygging há- hraðaneta kostar. Borgir innan Evr- ópu eru margar hverjar orðnar töluverðir eftirbátar í þessum efn- um og má nefna sem dæmi að með- alhraði á háhraðanetum Bretlands í fyrrasumar var 4,6MB á sekúndu miðað við 90MB í Japan og 43MB í Suður-Kóreu. íslendingar eru nokk- uð vel í stakk búnir á höfuðborgar- svæðinu en þrjú fyrirtæki bjóða ai- menningi allt að 30MB hraða gegnum Ijósleiðarakerfi Orkuveit- unnar. po///@dv./s ryir é tS Hafa reynst tilvalin fyrir laqningu liáhraðaneta.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.