Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Qupperneq 60

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Qupperneq 60
60 FÖSTUDAGUR 18. APRlL 2008 Tíska DV TAKKATASKA Svona getur endurvinnsla verið sniðug. Það er alltaf gaman þegar hönnuðir taka sig til, nota hversdagslega hluti sem hafa allajafna allt annað notagildi og finna þeim nýtt hlutverk. Það er nokkuð Ijóst að sá sem svona tösku ber mun alls staðar vekja athygli. Það er hönnuðurinn Joao Sabino sem á heið- urinn af töskunni. Frekari upplýsingar: joaosabino.blogspot.com. ■j— VINTAGE- BRÚÐARKJÓLAR Þær sem ætla að gifta sig á næstunni en eru enn í leitinni að hinum fullkomna kjól ættu að kíkja inn á hina frábæru heimasíðu thevintage- weddingdresscompany.com. Einsog nafnið gefur til kynna er þarna að finna frábært úrval af einstökum „vintage"-brúðarkjólum og auka- hlutum allt frá Viktoríutímabilinu til áttunda áratugarins. Það er tískustíl- istinn Charlie Bear sem er konan á bak við sfðuna en hún sérhæfir sig í einstökum „vintage"-fatnaði sem er alls ekki auðfundinn. Þessi síða er því frábær fyrir þær sem vilja vera svolítið öðruvísi á brúðkaupsdaginn og klæðast kjól með sál og sögu. Kate Hudson er meðal þeirra sem klæddust vintage-kjól sem Charlie Bear fann fyrir hana í sínu brúð- kaupi. NÆLDU ÍEINA Nælumar koma sjóðandi heitar inn á ný með sumrinu. Einföld flík gemr orðið svo sérstök og skemmtileg með fallegri nælu. Bæði er flott að setja nælu í svartar kápur og jakka sem þú ert komin með leið á og til að gera töff boli og peysur ennþá flottari. Farðu og rótaðu aðeins í skartgripaskrínininu hjá ömmu og þú munt örugglega rekast á ein- hverjar fallegar gersemar þar. Eins er gaman að kíkja í Kolaportið því þar er bókað mál að þú finnur einhverj- ar einstakar gersemar til að næla í þig. Carrie Bradshaw er ein af þeim sem ítrekað sjást skreyta sig með nælum af öllum stærðum og gerð- Birna Sif Magnúsdóttir, hárgreiðslunemi og förðunarfræðingur, starfar með skólanum í Steinunni á Laugavegi. í dag mun hún keppa í hárgreiðslu á ísmótinu í Laugardalshöll en hennar helsti metnaður áður en hún fer út á lífið liggur að sjálfsögðu í því að hárið og förðunin séu í lagi. l)lpa: North Face-dúnúlpa Buxur: Cheap Monday Skór: Topshop Sólgleraugu: Gjöf frá vinkonu minni. „Ég er eiginlega bara alltaf í dúnúlpunni minni, það er rosa- lega mikið umræðuefni hjá vinkonum mínum hvenær ég ætli að fara úr úlpunni. 1 allan vetur hef ég nánast búið í úlp- unni minni. Það liggur við að ég fari í henni á djammið. Nú fer samt að koma að því að ég taki fram sumarjakkana." Buxur: Cheap Monday Skór: Topshop Hettupeysa: Urban Outfitters Bolur: H&M Trefill: Steinunn „Ég er yfirleitt alltaf bara í gallabuxum og stuttermabol. I ein- hverju ff ekar venjulegu en samt kúl. Þetta er mjög mismun- andi eftir dögum, sumir dagarnir eru afslappaðri hjá mér í fatavali en aðrir." A&, Skór: Zara Sokkabuxur: Oroblue Kjóll: Urban Outfitters Belti: Gamalt belti frá ömmu Pels: Amma vinkonu minnar ótti þennan pels en hann passaði ekki á vin- konu mína svo ég fékk hann. „Það fer alveg eftir þvi hvað ég hef mikinn tíma til að hafa mig til í hverju ég fer á djammið en yfirleitt enda ég í öllu svörtu. Ég á alveg rosalega mikið af skarti en er einhvern veginn voöalega ódugleg við að nota það. Yfirleitt er ég bara með sömu eymalokkana og krossinn minn urn hálsinn. Það ent aðallega förðunin og hárið sem skipta mig máli." Innidressið BtLXUr: H&M Bolur: H&M Kanfnusokkar: Rammagerðin Peysa: Þrjátíu ára peysa af móðurafa mfnum „Það elska allir þessa peysu hans afa en einhvem veginn endaði hún hjá mér og ég er alltaf í henni og kanínusokkum þegar ég er heima. Þegar ég kem heim t'ir skólanum er ég ekki lengi að klæða mig úr þröngu gallabuxunum og fara í joggingbuxumar."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.