Peningamál - 01.08.2003, Blaðsíða 56
55 PENINGAMÁL 2003/3
Júlí 2002
Hinn 5. júlí tók gildi ný gengisskráningarvog. Geng-
isskráningarvog er endurskoðuð árlega í ljósi sam-
setningar utanríkisviðskipta árið áður. Taflan hér á
eftir sýnir nýju gengisskráningarvogina og breyting-
ar frá árinu áður.
Hinn 10. júlí óskaði framkvæmdanefnd um einka-
væðingu, fyrir hönd viðskiptaráðherra, eftir tilkynn-
ingum frá áhugasömum fjárfestum um kaup á a.m.k.
25% hlut í Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka
Íslands hf. Leitað var eftir fjárfesti, innlendum eða
erlendum, með það að markmiði að efla bankann og
samkeppni á íslenskum fjármálamarkaði. Tekið var
fram að framangreindur hlutur yrði einungis seldur í
öðrum bankanum ef viðunandi verð fengist og
viðræður leiddu til sölu. Stefnt væri að því að hlutur
í hinum bankanum yrði seldur síðar á árinu.
Hinn 19. júlí var tilkynnt að Íbúðalánasjóður og
Lánasýsla ríkisins hefðu undirritað samning um að
Lánasýslan taki að sér eftirlit með framkvæmd samn-
ings Íbúðalánasjóðs við viðskiptavaka hús- og
húsnæðisbréfa á eftirmarkaði fyrir tímabilið 1. júlí
2002 til 30. júní 2003. Mun formlegt eftirlit Lána-
sýslunnar með framkvæmdinni hefjast mánudaginn
22. júlí.
Ágúst 2002
Hinn 30. ágúst tilkynnti Seðlabanki Íslands um 0,3
prósentna vaxtalækkun. Vaxtalækkunin tók gildi
þann 1. september. Eftir lækkunina voru stýrivextir
bankans 7,6%.
September 2002
Hinn 10. september var tilkynnt að ráðherranefnd um
einkavæðingu hefði ákveðið að ganga til viðræðna
við Samson eignarhaldsfélag ehf. um kaup á umtals-
verðum hlut í Landsbanka Íslands hf. Jafnframt var
ákveðið að hefja frekari undirbúning fyrir sölu á um-
talsverðum hlut í Búnaðarbanka Íslands hf.
Hinn 18. september tilkynnti Seðlabanki Íslands um
0,5 prósentna vaxtalækkun. Vaxtalækkunin tók gildi
þann 21. september. Eftir lækkunina voru stýrivextir
bankans 7,1%.
Hinn 30. september keypti Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis alla hluti Kaupþings banka hf. í Frjálsa
fjárfestingarbankanum hf.
Október 2002
Hinn 15. október tilkynnti Seðlabanki Íslands um 0,3
prósentna vaxtalækkun. Vaxtalækkunin tók gildi
þann 21. október. Eftir lækkunina voru stýrivextir
bankans 6,8%.
Hinn 21. október var tilkynnt að framkvæmdanefnd
um einkavæðingu og Samson eignarhaldsfélag ehf.
hefðu náð samkomulagi um kaup Samson ehf. á
45,8% hlutabréfa í Landsbanka Íslands hf. Eftir þessi
viðskipti verður eignarhlutur ríkisins í Landsbanka
Annáll fjármálamarkaða
Júlí 2002 – júlí 2003
Ný gengisskráningarvog 2002 (%)
Byggt á viðskiptum 2001
Út- Inn- Gengis- Breyting
flutn- flutn- skráning- frá fyrri
Lönd Mynt ingsvog ingsvog arvog vog
Bandaríkin .......... USD 22,76 26,89 24,83 -2,16
Bretland .............. GBP 14,60 10,97 12,78 -1,99
Kanada................ CAD 1,50 0,96 1,23 -0,13
Danmörk............. DKK 7,78 8,54 8,16 -0,52
Noregur............... NOK 6,75 6,82 6,78 0,70
Svíþjóð ............... SEK 1,80 5,16 3,48 -0,96
Sviss ................... CHF 2,74 1,28 2,01 0,36
Evrusvæði........... EUR 38,73 35,43 37,08 5,42
Japan................... JPY 3,34 3,95 3,65 -0,72
Norður-Ameríka............. 24,26 27,86 26,06 -2,29
Evrópa ........................... 72,40 68,19 70,30 3,02
Evrópusambandið .......... 62,91 60,10 61,50 1,95
Japan ............................. 3,34 3,95 3,65 -0,73
Alls................................. 100,00 100,00 100,00 0,00