Peningamál - 01.12.2005, Side 9
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
4
9
kjarasamninga í nóvember og hins vegar af því að áætlað er að vöxtur
framleiðni vinnuafls verði heldur minni.
Að óbreyttum stýrivöxtum og gengi krónunnar er áfram útlit
fyrir að verðbólga verði yfir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans
allan spátímann. Horfur eru á að verðbólga verði rúmlega 3% eftir
eitt ár, samanborið við 3,7% í síðustu spá, sé miðað við spá til sama
árs fjórðungs. Til tveggja ára er spáð rúmlega 3½% verðbólgu, en í
sept ember var spáð 3,8% verðbólgu, miðað við sama ársfjórðung.
Verð bólgumarkmiðið næst samkvæmt spánni ekki fyrr en á árinu
2008 að óbreyttri peningastefnu.
Grunnspáin byggist á þeirri forsendu að stýrivextir og gengi
krón unnar haldist óbreytt frá spádegi. Miðað við verðbólguhorfur sem
grunnspáin felur í sér verður að telja forsenduna um óbreytta stýrivexti
harla óraunsæja. Hið sama má segja um forsenduna um óbreytt gengi
krónunnar í ljósi þess hve hátt raungengið er orðið og viðskiptahall-
inn mikill. Í spánni er fjöldi forsendna sem töluverð óvissa ríkir um, í
sumum tilfellum meiri óvissa en oftast áður.
Af þessum sökum leggur Seðlabankinn áherslu á að meta óvissu-
þætti spárinnar, þ.e.a.s. líkur á að verðbólguþróun víki frá grunn-
spánni. Óvissuþættirnir eru í meginatriðum hinir sömu og í septem-
Mynd I-1
Verðbólguspá Seðlabankans – grunnspá
Spátímabil: 4. ársfj. 2005 - 4. ársfj. 2007
Heimild: Seðlabanki Íslands.
50% óvissubil
75% óvissubil
90% óvissubil
Verðbólgumarkmið
Vísitala neysluverðs
%
0
1
2
3
4
5
6
7
8
2003 2004 2005 2006 2007
Breyting frá fyrri Ársfjórðungsbreyting Breyting frá sama
ársfjórðungi á ársgrundvelli ársfjórðungi árið áður
Liðin verðbólga (%)
2004:1 0,3 1,3 2,1
2004:2 1,7 7,0 3,3
2004:3 0,5 1,9 3,6
2004:4 1,3 5,2 3,8
2005:1 0,9 3,7 4,4
2005:2 0,5 2,0 3,2
2005:3 1,4 5,7 4,2
Verðbólguspá (%)
2005:4 1,1 4,7 4,0
2006:1 0,3 1,4 3,4
2006:2 0,8 3,1 3,7
2006:3 0,8 3,3 3,1
2006:4 1,1 4,4 3,0
2007:1 0,9 3,8 3,7
2007:2 1,0 4,2 3,9
2007:3 0,5 2,1 3,6
2007:4 0,8 3,3 3,4
Breyting Breyting
milli ára yfir árið
Liðin verðbólga (%)
2003 2,1 2,4
2004 3,2 4,0
Verðbólguspá (%)
2005 4,0 3,8
2006 3,3 3,4
2007 3,6 3,2
Tafla I-2 Uppfærð verðbólguspá Seðlabanka Íslands – grunnspá
Breyting vísitölu neysluverðs á milli tímabila