Peningamál - 01.12.2005, Blaðsíða 13
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
4
13
4%. Framboð flugferða til landsins á lágum fargjöldum hef ur aukist
und anfarin ár og vegur það væntanlega á móti áhrifum gengisins á
ferða mannastrauminn, auk þess sem innlendir seljendur ferðaþjónustu
hafa væntanlega tekið á sig tap vegna gengisbreytinga eða notað
geng isvarnir. Vari hátt raungengi um langt skeið mun það hins vegar
að líkindum hafa meiri áhrif. Hugsanlega munu þau því verða töluverð
á næsta ári.
Heldur minni vöxtur útflutnings í ár en gert var ráð fyrir í
september en horfur á næstu tveimur árum svipaðar
Í ljósi samdráttar vöruútflutnings fyrstu níu mánuði ársins er líklegt að
útflutningur aukist heldur minna í ár en spáð var í september. Spáð er
3½% vexti útflutnings, sem er tæplega 1 prósentu minni vöxt ur en
spáð var í september. Vöxturinn skýrist eingöngu af auknum þjón ustu-
útflutningi, sem jókst um 6½% að raungildi á fyrri helmingi ársins.
Útflutt þjónusta jókst mjög á öðrum fjórðungi ársins og eins og í sept-
ember er gert ráð fyrir áframhaldandi örum vexti. Spáin um þennan
mikla vöxt er þó mjög óviss.
Á næsta ári eru horfur á að hærra raungengi muni draga held ur
úr vexti útflutnings. Auk þess er nú reiknað með að álframleiðsla auk-
ist aðeins minna á því ári en meira árið eftir. Því er gert ráð fyrir að
út flutningur á næsta ári aukist ívið minna en áður var talið, eða um
tæp lega 6%. Vöxturinn árið 2007 verður hins vegar heldur meiri, eða
um 15½%. Auk fyrrnefndrar seinkunar er nú gert ráð fyrir heldur meiri
fram leiðslu áls á árinu 2007 en það vegur þyngra en áhrif raungengis
á annan útflutning.
Breyting frá síðustu
Núverandi spá1 spá (prósentur)2
2005 2006 2007 2005 2006 2007
Útflutningur vöru og þjónustu 3,6 5,8 15,4 -0,8 -0,4 0,9
Útflutningsframleiðsla sjávarafurða -2,0 3,0 2,0 -2,0 - -
Verð sjávarafurða í erlendri mynt 9,0 6,0 3,0 1,0 1,0 -
Verð útfluttrar vöru og þjónustu í erlendri mynt 7,1 3,3 0,2 -0,8 -1,2 -0,1
Verð innfluttrar neysluvöru í erlendri mynt 2,5 2,3 2,0 - - -
Viðskiptakjör vöru og þjónustu 0,3 3,9 0,7 -1,0 2,3 0,2
Erlendir skammtímavextir 2,6 3,1 3,5 0,1 0,3 0,6
1. Breyting frá fyrra ári í % nema fyrir vexti. 2. Breyting frá Peningamálum 2005/3.
Heimild: Seðlabanki Íslands.
Tafla II-1 Útflutningur og helstu forsendur um þróun ytri skilyrða
150
200
250
300
350
15
20
25
30
35
20052004200320022001200019991998
Tekjur af erlendum ferðamönnum (hægri ás)
Fjöldi erlendra ferðamanna (vinstri ás)
Heimildir: Ferðamálaráð, Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Fjöldi í þús. Tekjur í ma.kr.
Mynd II-6
Fjöldi erlendra ferðamanna og tekjur af þeim
janúar-september 1998-2005