Peningamál - 01.12.2005, Page 48
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
4
48
Fastir vaxtaákvörðunardagar munu auka gagnsæi
peningastefnunnar
Í því skyni að auka gagnsæi peningastefnunnar hefur bankastjórn
Seðla bankans ákveðið að taka upp fasta vaxtaákvörðunardaga. Á
næsta ári verða sex fyrirfram ákveðnir vaxtaákvörðunardagar. Þrír
þeirra verða jafnframt útgáfudagar Peningamála. Þetta felur í sér að
sex sinnum á næsta ári mun bankastjórnin gera ítarlega grein fyrir
ákvörðun sinni um vexti bankans, hvort heldur ákveðið verður að
breyta þeim eða ekki. Þessi tilhögun mun gefa bankanum færi á að
koma skilaboðum um stefnu sína á framfæri oftar en áður og með
þeim hætti að hafa áhrif á markaðsvæntingar og stuðla að skilvirkari
miðlun peningastefnunnar. Fyrirfram ákveðnir vaxtadagar hindra
þó ekki tíðari vaxtabreytingar ef bankinn telur þær nauðsynlegar.
Út gáfudagar Peningamála og vaxtaákvörðunardagar á næsta ári eru
sýndir í töflu IX-1.
Þótt útgáfudögum Peningamála verði fækkað úr fjórum á ári
niður í þrjá frá og með árinu 2006 telur Seðlabankinn að það muni
ekki draga úr gagnsæi peningastefnunnar, sérstaklega í ljósi þess að
teknir verða upp fastir vaxtaákvörðunardagar um leið og að á vaxta-
ákvörðunardögum öðrum en útgáfudögum Peningamála verður birt
frétt með rökstuðningi að baki vaxtaákvörðunum bankastjórnar. Í
hverju hefti Peningamála verða fullbúnar þjóðhags- og verðbólgu-
spár. Erfitt hefur reynst að haga fjórum útgáfum á ári þannig að árs-
fjórðungsleg haggögn, t.d. þjóðhagsreikningar, nýtist fyllilega. Benda
má á að útgáfuefni Seðlabanka Íslands er mjög viðamikið miðað við
stærð bankans og hefur orðið umfangsmeira með árunum.13 Nú er
t.d. gefin út sérstök skýrsla um fjármálastöðugleika, sem áður var hluti
Peningamála. Mestu máli skiptir að sú greining sem í Peningamálum
er að finna gefi glögga mynd af sjónarmiðum bankans. Nánar er fjall-
að um þær breytingar sem þurfti að gera á sameiginlegri yfirlýsingu
bankans og ríkisstjórnar í rammagrein IX-2.
13. Noregsbanki og Seðlabanki Chíle gefa t.d. út þrjár verðbólguskýrslur á ári og Kanadabanki
tvær skýrslur, auk tveggja stuttra uppfærslna á milli meginútgáfa sinna.
Tafla IX-1 Útgáfudagar Peningamála og vaxtaákvörðunardagar
árið 2006
Dagsetning Vikur frá síðasta
vaxtaákvörðunar Greinargerð vaxtaákvörðunardegi
26. janúar 2006 Fréttatilkynning 8
30. mars 2006 Peningamál 2006/1 9
18. maí 2006 Fréttatilkynning 7
6. júlí 2006 Peningamál 2006/2 8
14. september 2006 Fréttatilkynning 10
2. nóvember 2006 Peningamál 2006/3 7