Glóðafeykir - 01.06.1955, Blaðsíða 3
GLOÐAFEYKIR
Félagstíðindi Samvmnufélagamia í Skagafirði
1. árgangur
1. hefti
Júní 1955
Ávarp frá framkvæiadastjónim félaganna.
Kaupfélögin þrjú og Búnaðarsainbandið í Skagafirði hafa komið
sér saman um að gefa út smárit sem verði félagstíðindi þeirra, en
flytji auk þess smágreinar um samvinnumál, samgöngur, raforku,
ræktun, byggingu og framleiðslu til lands og sjávar. —
Við sem veitum þessum félögum forstöðu, höfum oft og glöggt
fundið þörfina á því að geta látið félagana fylgjast betur með á sviði
þeirra margháttuðu viðfangsefna er félögin vinna að.
Við erum þess fullvissir að slíkt rit mundi auka skilning og vel-
vilja á þeirri þjónustu, sem félögin vilja veita fólkinu, hvert á sínu
sviði.
Það hefur verið fremur lítið um fræðslustarfsemi meðal sam-
vinnumanna hér í Skagafirði, en þess er full þörf, einkum nú, þar
sem samvinnan er stöðugt að taka fleiri og fleiri mál mannlegra
þarfa til úrlausnar.
Vel gæti farið á því að stofna fræðslunefnd, sem skipuð væri ein-
um fulltrúa frá hverju félagi, og hefðu þeir samstarf um útgáfu
ritsins, ásamt annarri fræðslustarfsemi á félagssvæðunum. Hefir
nú verið gengið frá þessari skipun málsins.
Nafnið á ritinu er valið með þá ósk í huga, að það mætti slá
neistum í hug og hjarta allra góðra Skagfirðinga, til samstilltra
átaka á framfaramálum héraðsins, sem bæði eru mörg og stór.
Salómon Einarsson, kaupfélagsstj., Haganesvík.
Kristján Hallsson, kaupfélagsstj., Hofsós.
Kristján Karlsson, skólastj., form. Búnaðarsamb. Skagf.
Sveinn Guðmundsson, kaupfélagsstj., Sauðárkróki.