Glóðafeykir - 01.06.1955, Blaðsíða 6
6
GLÓÐAFEYKIR
Innstœður viðskiptamanna í reikningum, innlánsdeild og stofn-
sjóði nema kr. 7.240 þús., og hafa hækkað um liðlega :/2 milljón
á árinu. Eins og félagsmönnum á að vera kunnugt, þá greiðir félagið
langt um hærri vexti í innlánsdeild en fáanlegir eru í bönkum eða
sparisjóðum.
Útd við vár hagur félagsins góður, innstæður félagsins hjá ýmsum
stofnunum var kr. 1.845 þús. — þar af hjá Sambandinu kr. 1.425 þús.
Vörubirgðir verzlunar og iðnfyrirtækja námu eftir af skrift 1.8
millj. króna; voru þær ríflega afskrifaðar, eða samtals um kr. 890
þús. Allar fasteignir og lóðir félagsins, ásamt M. S. og frystihús-
um, eru bókfærðar um áramót á kr. 6.111 þús. Eru fasteignir og
aðrar eignir félagsins á efnahagsreikningi mjög forsvaranlega afskrif-
aðar. Að meðtalinni afskrift á vörubirgðum er efnaliagsreikningur-
inn í heild afskrifaður urn 1.4 millj. króna. Miðað tdð allar að-
stæður verður fjárhagur félagsins að teljast traustur.
Aðalframkvœmdir félagsins s. 1. ár voru áframhald byggingar
frysti- og sláturhússins, og var þessu verki það langt komið, að
hægt var að slátra þar og frysta s. 1. Iiaust. Þessi bygging var bók-
færð um áramótin á 4.2 millj. króna, en hafði þá nokkuð verið
afskrifuð. Unnið er nú að því að fullgera þetta hús, og verður það
væntanlega á þessu ári. Samanlagðar vinnulaunagreiðslur félagsins
s. 1. ár námu 2.7 millj. króna. Eins og ykkur er kunnugt, hefir
félagið'orðið að leggja í stórkostlegar framkvæmdir undanfarin ái';
nemur fjárfestingin s. 1. 7 ár yfir 8 millj. króna. Tímarnir hafa
verið erfiðir til framkvæmda — 2 stórfelldar gengisfellingar hafa
orðið á þessu tímabili og geysilegar verðhækkanir erlendis vegna
styrjaldar og kauphækkanir liérlendis. Samfara þessu hefir lánsfjár-
kreppa innanlands stöðugt farið lrarnandi og lánsfjárvextir hækk-
aðir. Það hefir því verið á ýmsan hátt erfitt um vik. En þessar
framkvæmdir voru allar nauðsynlegar, og næstum útilokað fyrir
félagið að starfa, hefði ekki verið í þær ráðist og þeim komið upp,
enda einróma álit aðalfunda í þessum efnum. En þrátt fyrri þessar
miklu fjárfestingar stendur félagið fjárhagslega föstum fótum, og
ég veit að það kemur til með að gera það áfram, standi félagsmenn
saman um sín félagsmál í samstarfi og samvinnu. Sé þess gætt, get-
um við óhræddir mætt erfiðleikum komandi tíma.
En þótt mikið sé búið að gera á skömmum tíma, og raunveru-
lega of mikið — miðað við eðlilega þróun fjárfestingarmála —, er
óþrjótandi og knýjandi verkefni framundan. Verzlunarhús féhigs-
ins eru í því ástandi, og hafa verið það lengi, að óumflýjanlegt er