Glóðafeykir - 01.06.1955, Blaðsíða 15
GLÓÐAFEYKIR
15
\'orubyrgðir mega heita litlar, þegaj,- tekið er tillit til þess langa
geymslntíma, sem osturinn þarf til að verða markaðshæfur, og
mega það góð tíðindi héita.
Nokkuð hafa bændur keypt af undanrennu til fóðurs, en mætti
vera margfalt meira. Betri og ódýrari fóðurbætir er ekki fáanlegur.
Þyrfti að gera ráðstafanir til að koma meira skriði á þá notkun
undanrennunnar.
Útborgað meðalverð til framleiðenda er kr. 1.42 á lítra. Fulln-
aðarverð varð kr. 2.17 á lítra. Tvennt hefir skeð á árinu til óþurft-
ar: Meðalfitan hefur lækkað um 0.018, úr 3.544 niður í 3.526, og
verðfelling hefir hækkað úr kr. 0.42 á innvegið kg. að meðaltali
í 0.79. Verður að vinna markvisst að því að koma slíkum skatti
fyrir kattarnef.
Hér korna enn nokkrar tölur til skemmtunar og fróðleiks:
Neyslumjólk \ar seld:
A Siglufirði 282.550 lítrar
A Sauðárkróki 144.250 lítrar
Samtals: 426.800 lítrar
Hefir mjólkursala aukizt á Sauðárkróki um 22 þús. 1. en lækkað
á Siglufirði um 9 þús. I. Rjómasala varð 17.422 lítrar; er það um
6 þús. 1. rneira en árið áður Af skyri var framleitt 71 tonn, en 51
tonn 1952. Framleitt var af mjólkurosti 45 tonn á móti 47.5 ’52.
Smjörframleiðla varð 45 tonn en 47.5 árið undan. Mysuostur varð
0.3 tonn. Káseinframleiðslan var 13 tonn, og gengur vel með sölu,
þó \ erðið sé ekki hátt.
Meðal flutningskostnaður á samlagssvæðinu árið 1952 varð 10.73
aur. á kg. mjólkur, en 1953 11.13 aur.
Niðurgreiðsla ríkissjóðs á mjólk og smjör nam 631.322 kr.
Styrkur veittur B. S. S. var kr. 14.482.
Framundan er nú verðfall á landbúnaðarvörum yfirleitt. Er þess
þegar farið að gæta í öllurn landbúnaðarlöndum heims. Hvernig
eigum við, íslenzkir bændur, að bregðast við því verðfalli? Aíeð
meiri framleiðslu og ódýrari framleiðslu?