Glóðafeykir - 01.06.1955, Síða 19

Glóðafeykir - 01.06.1955, Síða 19
GLÓÐAFEYKIR 19 Slátur- og frystiMsið. 15. okt. var að l'ullu lokið við að setja niður allar vélar og leggja leiðslur í hið stóra og gkesilega slátur- og fisktökuhús Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki. Hefir smíði þess og frágangur allur staðið yfir í 3 ár. Þó var hægt að slátra í því og frysta kjöt í fyrra- haust, eins og kunnugt er. Hefir vélaverkstæði Björgvins Friðrikssen í Reykjavík séð um ajla niðursetningu vélanna og smíðað allt, sem snríða þurfti þar til. Björgrtn Friðrikssen var staddur á Sauðárkróki þennan dag og afhenti stjórn og framkvæmdarstjóra allt það mikla verk, er verk- stæði hans hafði tekið að sér að sjá um. Við þetta tækifæri bauð framkvæmdarstjóri bæjarstjórn Sauðár- króks, sýslumanni Skagfirðinga, nokkrum bændum og fleiri að vera viðstaddir afhendingu og lýsingu Björgvins á stærð og afkastagetu vélanna og ýmsu fleira. A eftir var öllum viðstöddum boðið til síð- degisdrykkju í hinum stóra og vistlega matsal starfsfólks frystihúss- ins, og skemmtu menn sér þar við ræðuhöld og samspjall góða stund. Húsið er 3000 ferm. að grunnfleti. Allir vinnusalir og frysti- geymslur eru á einu gólfi. A suðvestur hluta hússins eru tvær hæð- ir. Er á efri hæðinni matsalur, eldhús og snyrtiklefar fyrir starfs- fólkið.

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.