Glóðafeykir - 01.06.1955, Síða 34

Glóðafeykir - 01.06.1955, Síða 34
34 GLÓÐAFEYKIR heimafyrir. Að sjálfsögðu myndi leggjast kostnaður á vöruna við flutning hennar frá Sauðárkróki til Varmahlíðar, en lrann myndi verða hverfandi lítill hjá því, sem það kostar nú bændur að flytja nauðsynjar sínar þessa leið, þar sem heilir bílfaimar yrðu fluttir, og um þennan kostnað yrði ekki að ræða á þeim vörum, sem K. S. flytur úr fjarlægum landshluta á bílum, og mun það vera all- mikið magn af vörum. Með því að koma upp útibúi í Varmahlíð, myndi K. S. inna af hendi dýrmæta þjónustu við okkur, sem framhéraðið byggjum, og ég vil segja þjónustu, sem sjálfsagt er að láta okkur í té hið fyrsta og strax og fært þykir. Frá upphafi samvinnunnar í landinu hefir það verið megin- hlutverk kaupfélaganna í landinu að sinna því tvíþætta verkefni, að taka á móti framleiðslu félagsmanna sinna og koma henni í það verð, sem bezt er fáanlegt á hverjum tíma, svo og að útvega viðskiptamönnum þær vörur, sem þeir þurfa að kaupa úr kaup- stað, fyrir sannvirði. Á miklu ríður fyrir afkomu manna, að þessi störf séu vel af höndum leyst og þess gætt í hvívetna, að hagsýni og fyrirhyggja sé í fyrirrúmi. A hinu veltur og mikið, að dreifing vörunnar sé með þeim hætti, að hún verði hvort tveggja í senn, sem kostnaðarminnst og hagfelldust sem verða má. Með útibúi Iv. S. í Varmahlíð yrði miklu betur séð fyrir þeirri hlið verzlunarmála okkar en nú er, hvað okkur Skagfirðinga hér fremra í héraðinu snertir. Framhéraðsbúi.

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.