Málfregnir - 01.12.1990, Síða 5

Málfregnir - 01.12.1990, Síða 5
KRISTJÁN ÁRNASON * Islensk málrækt á því herrans ári 1990 Eríndi flutt í Háskólanum á Akureyri 10. nóvember 1990 Rökin fyrir málræktarstarfinu Á þessum síðustu tímum, sem bera að því er virðist æ meiri keim af alþjóða- hyggju, er mikil ástæða til þess að velta fyrir sér málpólitískum spurningum. Baldur Jónsson ræðir um forsendur ís- lenskrar málverndar í grein sem nefnist „íslensk málvöndun" og birtist í síðasta hefti Málfregna (4. árg., 1. tbl.). Hann minnir á að löngum sé svo talið að sjálfstæðisbarátta smáþjóðar sé ævar- andi og að það fari ekki á milli mála að íslendingar vilji „halda áfram að vera sérstök og sjálfstæð þjóð í sínu eigin landi“ (bls. 8), og síðan segir hann á sama stað: „Þessi eindregni þjóðarvilji er það bjarg sem íslensk málvöndun- arstefna hvílir á.“ Hann bendir réttilega á að málefni íslenskrar tungu eru hápóli- tískt mál, enda hafi stjórnmálaflokkarnir allir skilgreint stefnu sína í þessum efn- um, og allir á eina lund. í stefnuskrám flokkanna er notað orðalag eins og að „varðveita" eða „standa vörð um ís- lenska tungu“. Þessi grein Baldurs er nær óbreytt erindi sem hann flutti fyrir átján árum, árið 1972. Nú er árið 1990, og megum við e.t.v. velta því fyrir okkur hvort einhverjar breytingar hafi orðið á þeim forsendum sem Baldur lýsir. Ekki er að sjá að stjórnmálamenn hafi misst áhugann á málefnum íslenskrar tungu. Skemmst er að minnast mál- ræktarátaks menntamálaráðuneytisins 1989 sem lauk með skýrslu, dagsettri 30. nóvember fyrir tæpu ári. í inngangi að skýrslunni er greint frá ástæðunum fyrir því að ráðuneytið gekkst fyrir átakinu. Þar segir að margir hafi nú vaxandi áhyggjur af íslenskri tungu, og talin eru upp ein sex aðaláhyggjuefni (bls. 7): a. Þjóðfélagshættir, sem tungan er svo mjög bundin, hafa breyst og ungt fólk í nútíma- borgarsamfélagi virðist eiga í erfiðleikum með að tileinka sér hefðbundinn íslenskan orðaforða, orðtök, málshætti, talshætti o.fl. b. Æ fleiri sækja menntun til annarra þjóðfé- laga og tileinka sér starfsreynslu á erlend- um málum og orðaforða þar að lútandi. c. Fjölmiðlun eykst að umfangi og hún verð- ur sífellt alþjóðlegri, og erlendar stöðvar skjóta rótum. d. Mjög einhæfur og sterkur straumur berst frá enskri tungu og menningu. e. Móðurmálskennsla virðist ekki skila jafn- góðum árangri og vænta mætti. f. Starfshættir og viðhorf þeirra sem mest hafa beitt sér í málræktarstarfi virðast ekki eiga greiða leið að ungu fólki. Hér virðist kveða við svipaðan tón og áður, að ýmsu leyti að minnsta kosti. Breytingarnar valda áhyggjum; óttast er að enskan verði of sterk. Fleiri og fleiri sækja menntun til annarra landa o.s.frv. Málræktarstarfsemin er og verður íhalds- söm. Hún leitast við að varðveita íslenska tungu og halda henni lausri við erlenda orðstofna, er með öðrum orðum sama hreintungustefnan og hún hefur löngum verið. Eða hafa forsendur eitthvað breyst? 5

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.