Málfregnir - 01.12.1990, Side 13

Málfregnir - 01.12.1990, Side 13
málfar eða leggja áherslu á mikilvægi tungunnar í blaðamennsku. En samt er mikil hætta á ferðum að mati málræktarátaksmanna. Dagblöð eru unnin miklu hraðar en fyrr á öldinni, og talið er að hraðinn leiði ósjálfrátt til fátæklegra málfars en ella mætti vænta. Aukin notkun segulbands er talin hafa hættu í för með sér. Meira er um það að menn tali blaðalaust í fjölmiðlana en áður var. Bent er á að fjölmargir frétta- menn hafi fengið menntun sína erlendis og séu því oft illa undir það búnir að tjá hugsun sína og annarra á eðlilegu og kjarngóðu íslensku máli. Misbrestur er talinn vera á því að þýðingar á erlendu efni séu alltaf nógu góðar, og talað er um að auka þurfi talsetningu efnis handa börnum. Rætt er um nauðsyn þess að gefa út leiðbeiningar handa fjölmiðlafólki og minnst á mikilvægi þess að fjölmiðlanám geti farið fram hér á landi og að íslensku- nám sé þáttur í því. Þær ábendingar, sem koma fram í skýrslunni hvað varðar fjölmiðlana, eru af ýmsu tagi og myndu heyra undir ýmsa aðila og ekki alltaf ljóst hverjir það ættu að vera. Ef til vill mætti segja að það væri í verkahring íslenskrar málnefnd- ar að standa fyrir leiðbeiningar- námskeiðum fyrir fjölmiðlafólk þótt væntanlega standi það öðrum nær. Hér væri þörf á skipulagi sem menntamála- ráðuneytið gæti haft forgöngu um að koma á fót. Ekki er óeðlilegt að hugað verði að þessum málum þegar endur- skoðuð verða útvarpslög, en einhver bið virðist ætla að verða á því að það verði gert. Þegar vikið er að útvarpslögunum beinist hugurinn strax að hinni öru tækniþróun í svokallaðri Ijósvakafjöl- miðlun sem á sér stað um þessar mundir. Gervitunglatækni gerir kleift að taka á móti erlendu myndefni beint frá útlönd- um, og smám saman sést fjölga diskun- um sem taka á móti sendingunum beint frá upphafsstöðvum úti í hinum stóra heimi. Einnig eru sagðar fréttir af því að menn ætli að taka sig til og gera samn- inga við erlendar sjónvarpsstöðvar um að taka við sendingum frá þeim og dreifa í gegnum kapalkerfi. Margir hafa áhyggjur af þessari þróun og tala um vígahnetti sem ógna muni tslenskri tungu og menningu, og sannarlega virð- ist það vera umhugsunarefni hvernig fara muni ef hálf þjóðin situr límd við er- lenda dagskrá sem send er hingað án nokkurs eftirlits hvað varðar efni og innihald, og ég tala nú ekki um án þess að þar sjáist bregða fyrir íslensku um- hverfi eða heyrist íslenskt orð. Nú fyrir skömmu spratt umræða um það í fjölmiðlum hvort skyldugt væri að þýða og setja íslenskan texta við mynd- efni sem dreift er um kapalkerfi. Núgild- andi lög og reglugerð er ótvíræð um þetta. Allt sjónvarpsefni ber að þýða nema það sem greinir frá atburðum sem gerast um leið og þeim er sjónvarpað, og útvarp telst öll sending myndefnis (og tals) nema þess sem nær aðeins til „þröngs hóps innan heimilis eða húsa- kynna fyrirtækis eða stofnunar, svo sem sjúkrahúss, gistihúss, skóla eða verk- smiðju“ eins og segir í núgildandi regl- um. Samt lýsti forvígismaður Landssam- bands kapalkerfa yfir því í ríkissjónvarp- inu að það giltu engin lög um þetta og því væri frjálst að senda út um kapalkerfi myndefni frá breska útvarpinu (BBC) óþýtt og ótextað. Ymsir mölduðu í móinn og töldu að ekki væri búið að nema úr gildi þá reglu- gerð sem sett var í desember 1989 á grundvelli laga frá 1985. Það sem for-- maður Landssambands kapalkerfa byggði málflutning sinn á var það að í út- varpslögunum frá 1985 segir að þau skuli endurskoða innan þriggja ára frá setn- ingu þeirra, en þau eru dagsett 27. júlí 1985. En þetta hefur ekki enn verið gert 13

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.