Málfregnir - 01.12.1990, Page 25
IV. Lokaorð
Að lokum skulu dregin fram helstu at-
riðin sem íslensk málnefnd leggur
áherslu á í þessari umsögn.
1. Sett verði lög um mannanafnaskrá og
mannanafnanefnd þegar á þessu þingi
þó að ekki takist að koma saman
nýrri heildarlöggjöf um mannanöfn.
íslensk málnefnd tilnefni mann og
varamann í nefndina.
2. í nýjum lögum um mannanöfn verði
leitast við að tryggja öllum jafnan rétt
gagnvart kenninöfnum.
3. Föðurnafnasiðurinn íslenski verði
verndaður með lögum þannig að öll-
um verði skylt að kenna sig við föður
eða móður.
4. Gerð verði skrá yfir ættarnöfn í notk-
un (skv. þjóðskrá) áður en löggjafinn
tekur endanlega ákvörðun um afdrif
ættarnafna.
Reykjavík 23. nóvember 1990
Bókun
Á fundi stjórnar íslenskrar málnefndar 22. nóvember 1990, þar sem umsögn um
frumvarp til laga um mannanöfn var rædd, sbr. fundargerð 9/1990, sjá einnig fund-
argerð 8/1990, lét Pórhallur Vilmundarson bóka að hann væri samþykkur ákvæði í
9. gr. frumvarpsins: „Óheimilt er að taka upp nýtt ættarnafn hér á landi“ þar sem
hann teldi það ákvæði tryggja best framtíð hins þjóðlega íslenska nafngiftarsiðar.
25