Málfregnir - 01.12.1990, Síða 29
Ritfregnir
eftir Ara Pál Kristinsson og Baldur Jónsson
Raftæknioröasafn. 3. Vinnsla, flutning-
ur og dreifing raforku. Orðanefnd RVFÍ
tók saman og bjó til prentunar. Menn-
ingarsjóður. Reykjavík 1990. 242 + 10
bls.
Hér er um að ræða þriðja bindi Raf-
tækniorðasafns sem orðanefnd raf-
magnsverkfræðinga hefur tekið saman.
Hið fyrsta kom út 1988 og tók til þráð-
lausra fjarskipta. Sagt var frá því í Mál-
fregnum 3, bls. 28-29. Annað bindið
kom út í fyrra og hafði að geyma orð
sem lúta að ritsíma og talsíma. Greint
var frá útkomu þess í Málfregnum 6, bls.
29-30. Þá er komið að þriðja bindinu.
Að því var unnið frá 1984 til útgáfuárs,
ásamt öðrum verkefnum orðanefndar-
innar. Útgáfa hinna þriggja binda
Raftækniorðasafns á þremur árum ber
vitni um lofsverða elju orðanefndar
rafmagnsverkf ræðinga.
í þessu bindi er að finna íðorð sem
nota má þegar rætt er um vinnslu, flutn-
ing og dreifingu raforku. Aftan á bókar-
kápu segir: „Bókin fjallar um mannvirki
og búnað til raforkuvinnslu, rekstur afl-
stöðva, skipulagningu, eiginleika,
rekstraröryggi og stýringu raforkukerfa,
aðveitu- og dreifistöðvar, helstu hluta
þeirra, gæði raforku, bilanir, yfirspennur
og aðlögun einangrunar, rafsegultruflan-
ir og almenn grundvallarheiti viðfangs-
efnisins.“
Fyrir framan orðasafnið er endur-
prentuð úr 1. og 2. bindi grein um
Raftækniorðasafnið eftir Berg Jónsson
rafmagnseftirlitsstjóra, formann orða-
nefndarinnar. Honum farast m.a. svo
orð: „Enginn má láta sig íslensk íðyrði
litlu skipta. Það ætti að vera metnaður
hverrar þjóðar að geta tjáð sig um öll
málefni á eigin tungu“ (bls. VII). Undir
orð Bergs skal tekið hér og verður ekki
sagt að Bergur og samnefndarmenn hans
láti sitt eftir liggja í þessum efnum.
Einn orðanefndarmanna, Gísli Júlíus-
son, ritar inngangsorð að 3. bindi (bls.
IX-X). Þar er getið sérstaklega um
nokkur íðorð, þ. á m. nýyrðið tiltœkt,
kv., (sbr. fátœkt), fyrir enska orðið
availability. Um orðaforðann í safninu
segir Gísli: „Mjög mörg orð eru úr því,
sem kallast gæti daglegt mál þeirra, sem
fást við þessa tækni, en önnur eru sjald-
gæf og sum nýyrði.“ Þess er og getið að
Orðanefnd RVFÍ líti á nýmynduð orð
sem tillögur en voni að þau hljóti náð
fyrir augum notenda.
Eins og í fyrri bindum er stofn ritsins
hluti af orðasafni Alþjóðlegu raftækni-
nefndarinnar, IEC (International Elec-
trotechnical Commission), og hugtökum
er raðað eftir númerakerfi hennar. í
þessu bindi eru ljósprentaðir fimm kaflar
úr alþjóðlega orðasafninu. Þeir bera
númerin 601-605. Hinn fyrsti þeirra,
kafli 601, fjallar um almenn heiti við
vinnslu, flutning og dreifingu raforku; sá
næsti, kafli 602, um heiti eininga og hug-
taka í raforkuvinnslu; kafli 603 um
skipulagningu og stjórnun; kafli 604 um
rekstur; og loks fjallar kafli 605 um að-
veitu- og dreifistöðvar. Hverjum kafla er
skipt í þrjá til sex flokka.
Hvert hugtak er skilgreint á ensku,
29