Bændablaðið - 05.06.2014, Side 1

Bændablaðið - 05.06.2014, Side 1
11. tölublað 2014 Fimmtudagur 5. júní Blað nr. 420 20. árg. Upplag 64.000 –Sjá nánar á blaðsíðu 10. Mynd / smh KS kaupir Sláturhúsið á Hellu og Kjötbankann í Hafnarfirði Kaupfélag Skagfirðinga (KS) hefur keypt 60 prósenta hlut í Sláturhúsinu á Hellu og einnig 60 prósenta hlut í Kjötbankanum í Hafnarfirði af Þorgils Torfa Jónssyni og tengdum aðilum. Fyrir á Sláturhúsið á Hellu 40 prósenta hlut í Kjötbankanum. Kaupverð er ekki gefið upp. Kaupin voru tilkynnt Samkeppnisstofnun í gær og eru þau háð samþykki stofnunarinnar. KS rekur öfluga afurðastöð á Sauðárkróki sem slátrar sauðfé, nautgripum og hrossum auk þess að eiga helming í Sláturhúsi KVH á Hvammstanga. Sláturhúsið á Hellu er vel tækjum búið stórgripasláturhús og staðsett í öflugu landbúnaðarhéraði. KS hefur um 35 prósenta hlutdeild í sauðfjárslátrun og vinnslu á landinu. Með kaupunum nú verður hlutfallið orðið svipað í nautakjöti og stefnir í slíkt hið sama hvað varðar hrossaslátrun. Er í sókn í matvælaiðnaði Ágúst Andrésson, forstöðumaður Kjötafurðastöðvar KS, segir að kaupin hafi verið í vinnslu í á annan mánuð. „Við erum auðvitað bara í sókn í þessum matvælaiðnaði, Kaupfélag Skagfirðinga, í landbúnaði og ætlum okkur stærri hlut í þeim efnum. Þannig verður þetta til. Við erum búnir að vera að leita fyrir okkur um með hvaða hætti við getum tengt okkar starf betur inn á höfuðborgarsvæðið. Með þessum kaupum er bakland okkar líka sterkara varðandi það kjötmagn sem við höfum að bjóða, bæði á innlendum og erlendum markaði.“ „Þetta mun í sjálfu sér ekki breyta öðru en því að með kaupunum nú kemur KS með mjög öflugum hætti inn á Suðurland. Við ætlum að efla starf okkar þar enn frekar og nýta þekkingu okkar, reynslu og sambönd erlendis til að bæta nýtingu á afurðum. Það er það sem er lagt til grundvallar. Stefnan er að efla starfið á Hellu og í Kjötbankanum enn frekar. Hugsanlega munum við fara í meiri verkaskiptingu, skilja úrbeiningu og grófvinnslu eftir úti í afurðastöðvunum en fullvinnslan fari í gegnum Kjötbankann. Það á við um afurðastöðina á Sauðárkróki og einnig sláturhúsið á Hvammstanga,“ segir Ágúst. Engar breytingar á högum starfsfólks Að sögn Ágústs verða engar breytingar á högum almenns starfsfólks fyrirtækjanna. „Ekki hjá almennu starfsfólki en auðvitað verða ákveðnar breytingar í yfirstjórn.“ Stefnt er að því að efla verulega slátrun og úrvinnslu á nautgripa- og hrossaafurðum og auka enn frekar þjónustu við bændur á Suðurlandi. Það mun leiða af sér fjölgun starfa í nánustu framtíð. Ágúst segir að nú taki við að kynna sér þá möguleika sem opnist varðandi markaðssetningu og aukna vinnslu afurða. „Á Sauðárkróki höfum verið að sérhæfa okkur og ýta frá okkur allri sérvinnslu. Sú vinnslu aðstaða er hins vegar til staðar í Kjötbankanum og það opnar margar dyr.“ Vöntun hefur verið á nautakjöti um töluvert langt skeið. Ágúst telur það ekki vera áhyggjuefni þrátt fyrir að fyrirtækið sé nú að færa út kvíarnar á þessum markaði. „Nei, ég held að þvert á móti séu tækifæri fyrir hendi. Það er að verða smá aukning í nautgripaeldi og með tilkomu öflugs fyrirtækis eins og KS ætti að vera hægt að sækja enn meira fram og vera hvatning fyrir bændur til að framleiða enn meira.“ Ágúst segir jafnframt að KS hafi verið leiðandi í hækkunum á kjötverði til bænda og það muni ekki breytast. Hvað varðar slátrum á hrossum segir Ágúst að næst á dagskrá sé að fá útflutningsleyfi á Rússlandsmarkað fyrir Sláturhúsið á Hellu. „Við munum svo nýta sambönd okkar í Rússlandi og hið nýstofnaða fyrirtæki okkar, IceCorpo, til markaðssetningar þar. Sláturhúsið á Hellu hefur ekki verið stór aðili í hrossaslátrun en Suðurlandi er hins vegar mikið hrossasvæði. Það er því augljóst að það eru mikil sóknarfæri í þeim efnum. Húsið er vel tækjum búið og hægt að auka umsetningu þar umtalsvert.“ Vildi helst selja KS Þorgils Torfi Jónsson, framkvæmda- stjóri Sláturhússins á Hellu, segir að í raun hafi ekki staðið til af hans hálfu að selja fyrirtækin. „Þeir [KS] sýndu áhuga og vildu ræða við mig. Ég féllst á það og af því leiddi þessi niðurstaða. Ég var ekki á neinum sölubuxum en af því að það var þessi aðili var ég tilbúinn að hlusta. Einhvern tíma hefði komið að því að ég þyrfti að selja og ef til þess kæmi vildi ég helst selja Kaupfélagi Skagfirðinga. Mér er mikið í mun að það sé sterkur aðili sem tekur við rekstrinum, að hann sé í góðum höndum og í góðri sátt við bændasamfélagið, en fáir þekkja betur til bændasamfélagsins en KS. Það réði fyrst og síðast afstöðu minni og niðurstöðu.“ Með samkomulaginu selur Torfi allan sinn hlut í fyrirtækjunum. Þau 40 prósent sem eftir standa í Sláturhúsinu á Hellu eru í eigu á milli 140 og 150 bænda á starfssvæði þess. „Ég mun starfa áfram með KS eins og þeir óska eftir og gera allt sem í mínu valdi stendur til að þessi eigendaskipti gangi eins vel fyrir sig og frekast er kostur. Á einhverjum tímapunkti mun ég síðan draga mig í hlé en það er óráðið hvenær það verður.“ /fr Sigurður Emil Ævarsson er mótsstjóri Landsmóts hestamanna sem fram fer á Hellu um næstu mánaðamót. Hann segir að undirbúningur fyrir mótið gangi mjög vel. „Ég held að það sé góður hugur í mönnum fyrir þetta mót og það er þegar búið að skrá inn frábæra hesta.“ Búið að ganga frá samningum um gott veður – Nú gerði mikið rok á mótinu 2008, en ert þú búinn að ganga frá samningum um gott veður á Hellu mótsdagana að þessu sinni? „Já, ég held að það sé allt frágengið. Maður hefur verið á bæn til að biðja um gott veður. Gamlir karlar í sveitinni á Suðurlandi, sem kunna að lesa í náttúruna, segja að það verði gott veður. Það er alveg hægt að trúa þeim, allavega þar til annað kemur í ljós,“ segir Sigurður mótsstjóri. –Sjá nánar bls. 2 og 8 /HKr. Landsmót hestamanna: Samið um gott veður 12 16 26-27

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.