Bændablaðið - 05.06.2014, Síða 1
11. tölublað 2014 Fimmtudagur 5. júní Blað nr. 420 20. árg. Upplag 64.000
–Sjá nánar á blaðsíðu 10. Mynd / smh
KS kaupir Sláturhúsið á Hellu
og Kjötbankann í Hafnarfirði
Kaupfélag Skagfirðinga (KS)
hefur keypt 60 prósenta hlut í
Sláturhúsinu á Hellu og einnig
60 prósenta hlut í Kjötbankanum
í Hafnarfirði af Þorgils Torfa
Jónssyni og tengdum aðilum. Fyrir
á Sláturhúsið á Hellu 40 prósenta
hlut í Kjötbankanum. Kaupverð
er ekki gefið upp. Kaupin voru
tilkynnt Samkeppnisstofnun í
gær og eru þau háð samþykki
stofnunarinnar.
KS rekur öfluga afurðastöð á
Sauðárkróki sem slátrar sauðfé,
nautgripum og hrossum auk þess
að eiga helming í Sláturhúsi KVH á
Hvammstanga. Sláturhúsið á Hellu er
vel tækjum búið stórgripasláturhús og
staðsett í öflugu landbúnaðarhéraði.
KS hefur um 35 prósenta hlutdeild
í sauðfjárslátrun og vinnslu á
landinu. Með kaupunum nú verður
hlutfallið orðið svipað í nautakjöti og
stefnir í slíkt hið sama hvað varðar
hrossaslátrun.
Er í sókn í matvælaiðnaði
Ágúst Andrésson, forstöðumaður
Kjötafurðastöðvar KS, segir að
kaupin hafi verið í vinnslu í á annan
mánuð. „Við erum auðvitað bara
í sókn í þessum matvælaiðnaði,
Kaupfélag Skagfirðinga, í landbúnaði
og ætlum okkur stærri hlut í þeim
efnum. Þannig verður þetta til. Við
erum búnir að vera að leita fyrir
okkur um með hvaða hætti við
getum tengt okkar starf betur inn á
höfuðborgarsvæðið. Með þessum
kaupum er bakland okkar líka
sterkara varðandi það kjötmagn
sem við höfum að bjóða, bæði á
innlendum og erlendum markaði.“
„Þetta mun í sjálfu sér ekki breyta
öðru en því að með kaupunum nú
kemur KS með mjög öflugum hætti
inn á Suðurland. Við ætlum að
efla starf okkar þar enn frekar og
nýta þekkingu okkar, reynslu og
sambönd erlendis til að bæta nýtingu
á afurðum. Það er það sem er lagt
til grundvallar. Stefnan er að efla
starfið á Hellu og í Kjötbankanum
enn frekar. Hugsanlega munum við
fara í meiri verkaskiptingu, skilja
úrbeiningu og grófvinnslu eftir úti
í afurðastöðvunum en fullvinnslan
fari í gegnum Kjötbankann. Það á við
um afurðastöðina á Sauðárkróki og
einnig sláturhúsið á Hvammstanga,“
segir Ágúst.
Engar breytingar á högum
starfsfólks
Að sögn Ágústs verða engar
breytingar á högum almenns
starfsfólks fyrirtækjanna. „Ekki hjá
almennu starfsfólki en auðvitað verða
ákveðnar breytingar í yfirstjórn.“
Stefnt er að því að efla verulega
slátrun og úrvinnslu á nautgripa- og
hrossaafurðum og auka enn frekar
þjónustu við bændur á Suðurlandi.
Það mun leiða af sér fjölgun starfa í
nánustu framtíð.
Ágúst segir að nú taki við að kynna
sér þá möguleika sem opnist varðandi
markaðssetningu og aukna vinnslu
afurða. „Á Sauðárkróki höfum verið
að sérhæfa okkur og ýta frá okkur
allri sérvinnslu. Sú vinnslu aðstaða er
hins vegar til staðar í Kjötbankanum
og það opnar margar dyr.“
Vöntun hefur verið á nautakjöti
um töluvert langt skeið. Ágúst telur
það ekki vera áhyggjuefni þrátt
fyrir að fyrirtækið sé nú að færa út
kvíarnar á þessum markaði. „Nei, ég
held að þvert á móti séu tækifæri fyrir
hendi. Það er að verða smá aukning í
nautgripaeldi og með tilkomu öflugs
fyrirtækis eins og KS ætti að vera
hægt að sækja enn meira fram og vera
hvatning fyrir bændur til að framleiða
enn meira.“ Ágúst segir jafnframt að
KS hafi verið leiðandi í hækkunum
á kjötverði til bænda og það muni
ekki breytast.
Hvað varðar slátrum á hrossum
segir Ágúst að næst á dagskrá sé að fá
útflutningsleyfi á Rússlandsmarkað
fyrir Sláturhúsið á Hellu. „Við
munum svo nýta sambönd okkar í
Rússlandi og hið nýstofnaða fyrirtæki
okkar, IceCorpo, til markaðssetningar
þar. Sláturhúsið á Hellu hefur ekki
verið stór aðili í hrossaslátrun en
Suðurlandi er hins vegar mikið
hrossasvæði. Það er því augljóst
að það eru mikil sóknarfæri í þeim
efnum. Húsið er vel tækjum búið
og hægt að auka umsetningu þar
umtalsvert.“
Vildi helst selja KS
Þorgils Torfi Jónsson, framkvæmda-
stjóri Sláturhússins á Hellu, segir að í
raun hafi ekki staðið til af hans hálfu
að selja fyrirtækin. „Þeir [KS] sýndu
áhuga og vildu ræða við mig. Ég féllst
á það og af því leiddi þessi niðurstaða.
Ég var ekki á neinum sölubuxum en
af því að það var þessi aðili var ég
tilbúinn að hlusta. Einhvern tíma
hefði komið að því að ég þyrfti að
selja og ef til þess kæmi vildi ég helst
selja Kaupfélagi Skagfirðinga. Mér er
mikið í mun að það sé sterkur aðili
sem tekur við rekstrinum, að hann
sé í góðum höndum og í góðri sátt
við bændasamfélagið, en fáir þekkja
betur til bændasamfélagsins en KS.
Það réði fyrst og síðast afstöðu minni
og niðurstöðu.“
Með samkomulaginu selur Torfi
allan sinn hlut í fyrirtækjunum.
Þau 40 prósent sem eftir standa í
Sláturhúsinu á Hellu eru í eigu á
milli 140 og 150 bænda á starfssvæði
þess. „Ég mun starfa áfram með KS
eins og þeir óska eftir og gera allt
sem í mínu valdi stendur til að þessi
eigendaskipti gangi eins vel fyrir sig
og frekast er kostur. Á einhverjum
tímapunkti mun ég síðan draga mig
í hlé en það er óráðið hvenær það
verður.“ /fr
Sigurður Emil Ævarsson
er mótsstjóri Landsmóts
hestamanna sem fram fer á
Hellu um næstu mánaðamót.
Hann segir að undirbúningur
fyrir mótið gangi mjög vel.
„Ég held að það sé góður hugur
í mönnum fyrir þetta mót og það
er þegar búið að skrá inn frábæra
hesta.“
Búið að ganga frá samningum
um gott veður
– Nú gerði mikið rok á mótinu
2008, en ert þú búinn að ganga
frá samningum um gott veður á
Hellu mótsdagana að þessu sinni?
„Já, ég held að það sé allt
frágengið. Maður hefur verið á bæn
til að biðja um gott veður. Gamlir
karlar í sveitinni á Suðurlandi, sem
kunna að lesa í náttúruna, segja að
það verði gott veður. Það er alveg
hægt að trúa þeim, allavega þar til
annað kemur í ljós,“ segir Sigurður
mótsstjóri. –Sjá nánar bls. 2 og 8
/HKr.
Landsmót hestamanna:
Samið um
gott veður
12 16
26-27