Bændablaðið - 05.06.2014, Page 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014
Fréttir
Fararstjóri: Pavel Manásek
Sumar 17 17. - 24. ágúst
Ljósadýrð í Búdapest
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Ljósadýrð á Dóná í Búdapest, einni fallegustu borg Evrópu er
stórkostleg upplifun. Hápunktur ferðarinnar er krýningarhátíð
heilags Stefáns, dýrðin endar í Passau, sem talin er standa á
einu hinna sjö fegurstu borgarstæða í heimi.
Verð: 186.200 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
e
hf
.
Yfirlýsing Svínaræktarfélagsins og Landssamtaka sláturleyfishafa:
Dýralæknar munu framvegis gelda grísi
að undangenginni svæfingu eða deyfingu
Svínaræktarfélag Íslands og
Landssamtök sláturleyfishafa
sendu frá sér yfirlýsingu 28. maí
síðastliðinn þar sem frá því var
greint að svínabændur ætli að
hætta að gelda sína grísi sjálfir
en láta dýralækni framvegis um
geldingarnar að undangenginni
deyfingu eða svæfingu.
Svínabændur breyta þannig
starfsháttum í samræmi við ný lög
um velferð dýra sem tóku gildi um
síðustu áramót.
Þrír kostir í stöðunni
Málið kemur upp í kjölfar
umfjöllunar Bændablaðsins frá
22. maí síðastliðnum þar sem
bólusetningar, sem nýjan valkostur
við geldingar grísa, var kynntur.
Þar sagði Sigurborg Daðadóttir
yfirdýralæknir eftirfarandi: „Málið
er á því stigi núna að svínabændur
verða að gera upp við sig hvernig
þeir ætli að standa að málum hjá
sér. Ný lög um velferð dýra eru
skýr; nú má enginn gelda dýr nema
dýralæknar og það verður að gera
að undangenginni deyfingu eða
svæfingu ásamt verkjastillingu.
Svínabændur verða að fara að lögum
og geta gert það á þrennan máta; ekki
gelda, fá dýralækni til að gelda með
skurðaðgerð eða nota þessa aðferð
sem við kynntum á fræðslufundinum
[um bólusetningarnar – innskot
blm.].“
Fréttastofa Ríkisútvarpsins tók
málið svo upp og málið komst í
hámæli helgina 24.-25. maí. Eftir
nokkurt þóf í fjölmiðlum dagana á
eftir ákváðu svínabændur að gefa
út yfirlýsinguna um að þeir myndu
hætta sjálfir að gelda grísi. Í viðtali
við Ríkisútvarpið 28. maí síðastliðinn
sagði Hörður Harðarson, formaður
Svínaræktarfélags Íslands, að hann
gerði fastlega ráð fyrir að breytingin
myndi taka gildi strax þann dag.
Innfluttar afurðir
uppfylli svipaðar kröfur
Í yfirlýsingu svínabænda og
sláturleyfishafa er skorað á íslensk
stjórnvöld að tryggja að innfluttar
afurðir uppfylli sambærilegar kröfur
og gerðar eru hér á landi. „Íslenskur
svínabúskapur hefur þá sérstöðu að
lyfjanotkun er með því minnsta sem
þekkist. Þá er ljóst að þegar ný lög
um velferð dýra hafa verið innleidd
að fullu munu íslenskir neytendur
geta treyst því að þær íslensku
svínaafurðir sem rata á þeirra disk
urðu til með þeim hætti sem best
gerist. Það er eðlilegt að gera sömu
kröfu til innfluttra svínaafurða.“
Engar þvingunaraðgerðir á
meðan unnið er að endurbótum
Hjá Matvælastofnun fengust
þær upplýsingar að síðastliðið
haust hafi svínabændur sótt um
undanþágu við kröfu um deyfingu
við geldingar grísa til atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytisins. Á
meðan beiðnin var til meðferðar hjá
ráðuneytinu var Matvælastofnun
beðin um að grípa ekki til aðgerða.
Ráðuneytið hafnaði beiðni
svínabænda og barst Matvælastofnun
bréf þess efnis 18. mars. Í kjölfarið
óskuðu svínabændur eftir nánari
upplýsingum frá Matvælastofnun
um hvernig hægt væri að beita
bólusetningu til að gelda grísi. Af
því tilefni hélt Matvælastofnun opinn
fræðslufund 6. maí síðastliðinn undir
yfirskriftinni „Bólusetning – nýr
valkostur við geldingar grísa“, sem
svínabændum, sláturleyfishöfum,
neytendasamtökum og dýra-
verndarsamtökum var boðið að
sækja. Framkvæmd bólusetningar
í stað geldingar felur í sér
umfangsmiklar breytingar á verklagi
og voru svínabændur upplýstir á
fundinum um að Matvælastofnun
myndi ekki beita þvingunarúrræðum
út árið svo lengi sem að svínabændur
gætu sýnt fram á að verið væri að
innleiða og setja í framkvæmd nýtt
verklag sem uppfyllir ákvæði nýrra
dýravelferðarlaga.
Þessu var fylgt eftir með bréfi
Matvælastofnunar til svínabænda þar
sem þeim er gert að sýna fram á, fyrir
10. júní 2014, hvernig þeir hyggist
standa að innleiðingu nýs verklags
við geldingar grísa, sem uppfyllir
lagakröfur. Jafnframt yrði þessu
fylgt eftir með eftirlitsheimsókn
og að því loknu verður lagt mat á
framgang mála og þörf á aðgerðum.
Markmiðið væri að allir svínabændur
uppfylli þessar kröfur sem fyrst og í
síðasta lagi í lok árs 2014.
Samkvæmt upplýsingum
frá Matvælastofnun hefur
Evrópusambandið lýst því yfir
að svínabændum þar verði gefinn
frestur til 2018 til að gelda grísi án
deyfingar eða svæfingar. Það eigi
til dæmis við um Danmörku en í
Svíþjóð hefur svínabændum verið
veittur frestur til 2016. /smh
Lömbin sett út um
leið og hægt er
„Það er fín frjósemi hjá fénu í ár
og það lofar góðu,“ segir Bergvin
Jóhannsson bóndi á Áshóli í
Grýtubakkahreppi, en sauðburður
gekk vel.
„Það er mikill munur að geta sett
ærnar og lömbin út jafnóðum,“ segir
Bergvin, en góður hópur gerði sér að
góðu nýsprottið grasið í túni norðan
við Áshól þegar Bændablaðið átti
leið hjá á dögunum. Bergvin segist
setja lömbin út þetta þriggja daga
gömul og það létti mjög á þegar hægt
er að koma ungviðinu út húsi. Um
430 kindur eru á Áshóli.
Mætti vera hlýrra
Þar er einnig umfangsmikil
kartöflurækt og segir Bergvin að
hann sé um það bil hálfnaður að setja
niður. Landið sé að mestu tilbúið, en
það mætti gjarnan vera hlýrra.
„Það hefur sem betur fer ekki
komið neitt hret í maí, en verið
fremur kalt flesta daga og það er
ekki sérlega hagstætt fyrir okkur
kartöflubændur. Það gerist lítið í
jörðinni þegar veðurfarið er með
þeim hætti,“ segir Bergvin. /MÞÞ
Sauðburður gekk vel á Áshóli í Grýtubakkahreppi. Myndir / MÞÞ
Bændablaðið
Næsta blað kemur út 19. júní
Sigurður Emil Ævarsson
er mótsstjóri Landsmóts
hestamanna. Hann segir að
undirbúningur fyrir mótið gangi
mjög vel og búið sé að ganga frá
samningum um gott veður.
„Ég held að það sé góður
hugur í mönnum fyrir þetta mót
og það er þegar búið að skrá
inn frábæra hesta. Mótið verður
klárlega í gæðum sem aldrei
fyrr. Þarna verður heimsmeistari
kynbótahrossa og fyrrverandi
heimsmeistari líka og feikilegur
hestakostur,“ segir Sigurður.
Hann segir að svipaður fjöldi sé
með þátttökurétt á mótinu á Hellu
og var í Reykjavík. Nú standi yfir
úrtökumót og reiknar hann með að
keppt verði um þátttökurétt alveg
til miðnættis þann 16. júní þegar
fresturinn rennur út.
„Það eru um 500 hestar sem
fara í gegnum gæðakeppnina. Ég
er að búast við rétt yfir hundrað
keppendum í A og B flokki og á
bilinu 80 til 90 í yngri flokkunum.“
Sigurður er enginn nýgræðingur
í mótshaldi af þessu tagi og er
þetta sjötta mótið í röð sem hann
stýrir. „Þetta fer nú að verða hálf
vandræðalegt hvað maður er búinn
að vera lengi í þessu.“
Bylting í upptökum
„Það eru samt alltaf einhverjar
nýjungar í hvert skipti. Það sem
er sérstakt við þetta mót er að
það verður tekið upp á vídeó í
miklum gæðum eins og fyrri mót,
en nú fá allir þátttakendur afhentar
upptökur að móti loknu, þetta
verður mikil bylting.“ Hann segir
að undanfarin mót hafi vissulega
verið tekinn upp enda kvöð um að
slíkt sé gert, en menn hafi þá þurft
að kaupa upptökurnar sérstaklega.
–Er þá ekki heljarmikill
tæknipakki sem fylgir mótshaldinu
á Hellu?
„Það er óhemju tækni í kringum
þetta. Við verðum að standa okkur
vel í upplýsingaveitunni og hafa
þetta allt með nýjustu tækni. Það
kostar þó mikla peninga á því
er enginn vafi. Tæknipakkinn er
dýrari en allt annað á mótinu.“
Segir Sigurður því mikilvægt
að aðsókn verði góð. Hann er
reyndar ekki í neinum vafa um að
svo verði.
„Mótin á Hellu hafa alltaf verið
mjög fjölmenn. Það er óútskýrt af
hverju það kom ekki fleiri en 10
þúsund manns á móti í Reykjavík
sem var frábært í alla staði. Eini
ljóðurinn á því móti var að það
komu of fáir. Þeir sem mættu voru
þó mjög ánægðir með mótshaldið
um umgjörðin var frábær.“
Sigurður segir að verið geti
að mótshald í þéttbýlinu laði
ekki eins marga að þar sem
útilegustemmingin verði ekki eins
mikil. Það hafi samt marga kosti
að halda mótið í Reykjavík. Hann
segir að ekki hafi skort á að menn
riðu út á kvöldin mótsdagana og
sér hafi sýnst vera meira um það
í Reykjavík en á öðrum mótum.
Búið að ganga frá samningum
um gott veður
– Nú gerði mikið rok á mótinu
2008, en ert þú búin að ganga frá
samningum um gott veður á Hellu
mótsdagana að þessu sinni?
„Já, ég held að það sé allt frá
gengið. Maður hefur verið á bæn
til að biðja um gott veður. Gamlir
karlar í sveitinni á Suðurlandi, sem
kunna að lesa í náttúruna, segja að
það verði gott veður. Það er alveg
hægt að trúa þeim, allavega þar til
annað kemur í ljós,“ segir Sigurður
mótsstjóri. /HKr.
Landsmót hestamanna á Gaddstaðaflötum á Hellu:
Búið að ganga frá samn-
ingum um gott veður
– segir Sigurður Ævarsson mótsstjóri, en mjög mikið er lagt í mótshaldið
Sigurður Emil Ævarsson