Bændablaðið - 05.06.2014, Page 10

Bændablaðið - 05.06.2014, Page 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014 Nýir bændur hafa verið ráðnir í Skálholt og hafa þau tekið við búskapnum af Guttormi Bjarnasyni og Signýju Berglindi Guðmundsdóttur. Þau heita Jóna Þormóðsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Þau voru áður með búskap austur í Álftafirði, en hafa ekki verið við bústörf í nokkur ár. Hún er búfræðingur frá Hvanneyri. „Að lokinni messu á uppstigningardag var kaffisamsæti og opið hús fyrir sveitungana þar sem við kvöddum Guttorm og Signýju,“ segir Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup. 18 umsóknir bárust um bústjórastörfin í Skálholti. /MHH Fréttir Nýr bændur teknir við í Skálholti Skálholtsdómkirkja í Bláskógabyggð í Biskupstungum. Ljósmynd / MHH Árni Sverrisson og Heiðbjört Hlín Stefánsdóttir. Reisa hof í Skagafirði Í Skagafirði er unnið að því að reisa hof sem helgað verður hinum heiðnu norrænu goðum, ásunum. Hofið, sem rís í landi Efra-Áss í Hjaltadal, er reist í einkaframkvæmd af fjölskyldunni í Efra-Ási og er ætlað til þess að þau geti komið þar saman til að sækja styrk sinn til ásanna. Hofið rís enda á bæjarhlaðinu, norðan við íbúðarhúsið. Verður það um 70 fermetrar þegar byggingu lýkur, sem vonast er til að verði í sumar. Í Efra-Ási búa þau Árni Sverrisson og Heiðbjört Hlín Stefánsdóttir ásamt yngri dóttur þeirra Hjördísi Helgu og stunda þar kúabúskap. Árni var við vorverk þegar Bændablaðið náði af honum tali og spurði hann út í framkvæmdina og hverju hún sætti. „Við erum heiðin og dætur okkar báðar. Þetta byrjaði sem lítil hugmynd sem stækkaði síðan, að byggja okkur hof úr torfi og grjóti. Við hófum framkvæmdirnar fyrir um tveimur árum síðan og höfum verið að dunda okkur við þetta. Nú er búið að hlaða megnið af veggjunum en stefnan er svo að reyna að klára þetta í sumar. Við höfum notið aðstoðar góðs nágranna okkar, Viðars Sverrissonar, sem hefur hjálpað okkur og séð um hleðsluna að mestu.“ Árni leggur áherslu á að hofbyggingin verði fyrir fjölskylduna og þeirra nánustu, sem og aðra heiðingja, en sé ekki hugsað sem nein ferðamannagildra. Hofið verður helgað ásunum öllum en Árni, Heiðbjört og dætur eiga sér ekki einn sérstakan guð heldur marga og hofið mun rísa þeim öllum til heiðurs. „Við sækjum styrk okkar til þeirra guða sem til þarf í hvert og eitt skipti. Við ætlum okkur að nota hofið til að koma saman, klæðast kannski viðeigandi klæðnaði, eiga góðar stundir og hafa gaman. Ásatrúarfólk á svæðinu getur og notað hofið fyrir athafnir eins og nafnagjafir barna, giftingar og þess háttar. Það verða síðan væntanlega haldin blót í hofinu til heiðurs goðunum.“ Einungis eitt hof annað hefur verið reist á landinu í síðari árum, meyjarhof sem Jón Ólafsson á Kirkjulæk í Fljótshlíð reisti. Það hof hefur verið nýtt í ferðamennsku. Að því er Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði er bygging hofsins í Efra-Ási söguleg. „Það er byggt sérstaklega sem hof þar sem á að ástunda hinn gamla sið, mikið í það lagt og af fólki sem hefur hugsjón og vill virða hefðina. Við höfum alltaf látið okkur dreyma að það væru 36 goðorð, full og forn, hringinn í kringum landið. Þó að það sé kannski langt í að það rætist gæti þetta verið upphafið að því.“ /fr Býflugnaræktendafélag Íslands (Bý) hefur sótt um leyfi til landbúnaðarráðuneytisins til að flytja inn allt að 120 býflugnapakka til Íslands; og allt að 30 býflugnadrottningar aukalega. Með þessum innflutningi á sér stað nýtt upphaf í sögu félagsins, því 30 af þessum búum verða eingöngu notuð til að framleiða afleggjara og þannig stuðla að sjálfbærni býflugnabúskapar á Íslandi, án utanaðkomandi innflutnings. Í hverri einingu af þessum 120 búum er ein drottning og um það bil 1,5 kg vinnuflugur (þernur). Að sögn Egils Rafns Sigurgeirssonar, formanns Býs, verða þessar býflugur keyptar frá Álandi og með þeim mun fylgja heilbrigðisvottorð frá finnskum heilbrigðisyfirvöldum um heilbrigði flugnanna. „Flugurnar koma af svæði sem ekki er sýkt af varroa-maurnum, loftsekkjamaur – né öðrum þekktum sjúkdómsvöldum hjá býflugum. Álandseyjar eru eina þekkta landið, utan Íslands, sem er laust við báðar þessar maurategundir.“ Góðir framtíðarmöguleikar býflugnaræktar á Íslandi „Um er að ræða áframhaldandi tilraunir til býflugnaræktar á Íslandi. Tilraunir benda til að býflugnarækt eigi góða framtíðarmöguleika á Íslandi. Síðastliðin ár hafa sýnt að lifun búa af vetri hafa gengið allt betur hjá býflugum sem keypt hafa verið frá Álandseyjum sem betur virðast þola íslenska veðráttu enda veðurskilyrði áþekk á þessum stöðum. Einnig hafa tilraunir okkar með vetrun skilað betri árangri á undanförnum árum. Nú eru 80 virkir býflugnabændur í landinu og vetruðu þeir 125 bú á síðastliðnum vetri eftir skelfilegt sumar. Um 20 manns hafa nýverið sótt námskeið í býrækt sem Bý heldur, þannig að á þessu ári eru félagar í Bý orðnir um 100 talsins.“ Um helmingur ræktenda er konur „Nú hefst nýr kafli í býrækt á Íslandi. Bý flytur nú inn 30 bú sem eingöngu verða notuð til að framleiða afleggjara og gera býræktendum kleift að stefna að því að verða sjálfum sér nægir um býflugur í framtíðinni með fjölgun búa. Verkefnið hefur fengið styrk frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins og munu tveir reyndustu býræktendur á Íslandi – sem hvor um sig er með meira en 20 ára reynslu af býrækt – sinna verkefninu. Sá mikli áhugi sem vaknað hefur hér á landi fyrir býrækt er eflaust með einsdæmum sem sjá má á fjölda þeirra sem sótt hafa námskeið undanfarin fjögur ár. Eins og oft áður slá Íslendingar met og það er ánægjulegt að 48 prósent býræktenda hér á landi eru konur – og hvað best ég veit er hvergi hærra hlutfall þeirra í hinum vestræna heimi.“ Býflugurnar verða fluttar til landsins með flugi seinni partinn í júní, í tveimur áföngum. /smh Býflugnaræktendur stefna að sjálfbærni í ræktun sinni: Ósýktur stofn býflugna á Íslandi Myndir / smh Búið að opna dýragarðinn Slakka í Laugarási fyrir sumargestum: Ljósmyndasýning um sögu Slakka opnuð á næstunni Helgi Sveinbjörnsson hefur opnað dýragarðinn Slakka í Laugarási fyrir sumargestum og er nú opið alla daga vikunnar frá 11 til 18. Þar er margt forvitnilegt að sjá eins og hvolpa, ketti, hænur af mörgum tegundum, páfagauka og margt fleira. Er þar eitthvað að finna fyrir alla aldurshópa auk þess sem þarna má bregða sér í mínígolf og hægt er að setjast niður og fá sér hressingu á eftir. Ekki vita kannski allir að Helgi er ljósmyndari og var um árabil kvikmyndatökumaður hjá Sjónvarpinu. Það lá því beint við að kappinn væri með myndavélina á lofti annað slagið á meðan unnið var að uppbyggingu Slakka. Saga fyrirtækisins er því til í miklu safni mynda. Segir Helgi að til standi að leyfa gestum Slakka að njóta hluta þessara mynda á næstunni, en hann vinnur nú að undirbúningi veglegrar ljósmyndasýningar á staðnum. /HKr. Helgi Sveinbjörnsson. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.