Bændablaðið - 05.06.2014, Page 14

Bændablaðið - 05.06.2014, Page 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014 Eitt meginmarkmiðið í nýrri matvælalöggjöf er að unnt sé að rekja feril matvæla eitt skref áfram og eitt skref afturábak. Rekjanleiki nautakjöts byggir á að skráningar gripa séu áreiðanlegar og réttar. Fyrsti hlekkur matvælakeðjunnar er hjá bændum og því er mikilvægt að bændur standi rétt að merkingum og skráningum gripa sinna. Í gildi eru reglur um einstaklingsmerkingar búfjár sem kveða á um að skrá skuli nautgripi eigi síðar en 20 dögum frá burði, skrá skuli flutning gripa frá einum stað til annars og að skrá skuli afdrif gripa. Skráning allra þessara upplýsinga er á ábyrgð bænda. Skráninga- og skýrsluhaldskerfið HUPPA tekur við öllum þessum upplýsingum um nautgripi og er það kerfi öllum bændum aðgengilegt. Þeir sem e.t.v. hafa ekki aðgang að HUPPU er bent á að hafa samband við Bændasamtök Íslands með ósk um aðgang. Annar hlekkur matvæla- keðjunnar er hjá sláturleyfishöfum og er því brýnt að sláturleyfishafar fari vandlega yfir merkingar þeirra gripa sem þeir taka til slátrunar í því skyni að sannreyna rekjanleika sláturgripa. Til þess þurfa starfsmenn sláturhúsa að kanna hvort viðkomandi gripur hafi verið skráður í HUPPU, hvort gripur sé rétt skráður hjá innleggjanda/framleiðanda og eftir atvikum hvort flutningur grips hafi verið skráður frá fæðingarbúi að búi innleggjanda/ framleiðanda. Komi gripur í sláturhús sem ekki hefur verið skráður, gripur skráður á annað bú en hann var sóttur frá eða gripur ómerktur, er sláturhúsi óheimilt að láta afurðir slíkra gripa fara á markað. Í slíkum tilvikum skulu starfsmenn sláturhúsa gera eftirlitsdýralækni viðvart og taka viðkomandi grip út úr hefðbundinni framleiðslulínu hússins. Matvælastofnun getur heimilað að afurðir af slíkum grip fari á markað geti búfjáreigandi sýnt fram á uppruna hans. Stofnunin gerir þó ávallt kröfu til þess að ófullnægjandi skráningum sé komið í fullnægjandi horf áður en slíkar afurðir eru settar á markað. Undanfarna mánuði hefur Matvælastofnun kannað virkni og áreiðanleika skráninga bænda á nautgripum sínum annars vegar og hins vegar skráningar sláturgagna frá sláturleyfishöfum eftir slátrun nautgripa. Ástæða þótti til að skoða með rafrænu eftirliti nánar almenna virkni skráninga þar sem sjá mátti í gripalistum bænda nokkurn fjölda nauta á lífi sem orðin væru eldri en 45 mánaða gömul. Við þá skoðun kom í ljós að nokkuð er um að mjög gamlar kvígur finnist einnig í gripalistum bænda. Við skoðun á virkni og áreiðanleika gripaskráninga bænda hefur verið farið yfir skráningar í hjarðbók sem færðar eru í gagnagrunninn HUPPU. Við skoðun á sláturgögnum hafa verið skoðaðar þær villur sem fram hafa komið í sláturgögnum frá sláturhúsum. Vegna þessa hefur Matvælastofnun frá byrjun apríl 2014 sent um 90 bændum bréf þar sem viðtakendur hafa verið hvattir til að koma skráningum gripa sinna í rétt horf. Flestir hafa brugðist vel við og lagfært skráningar sínar og því ekki tilefni til frekari afskipta stofnunarinnar. Reynsla okkar er sú að margir þessara bænda höfðu ekki áttað sig á að þeir þyrftu að staðfesta slátrun gripa sinna en þess í stað talið að eftir að gripir væru farnir úr þeirra höndum þyrftu þeir ekki að annast frekari skráningar þeirra vegna. Svo er þó ekki heldur þarf hver framleiðandi að opna HUPPU og staðfesta slátrun hvers grips. Þetta skýrir að nokkru leyti fjölda gamalla nauta sem fundust í gripalistum. Í þeim tilfellum þegar sjá má óeðlilega gamlar kvígur í gripalistum bænda getur sama skýring átt við, hafi kvígu verið slátrað ungri. Ástæðan getur þó eins verið sú að burðarskráningar séu ekki eins og vera skyldi. Af þeim 90 býlum sem Matvælastofnun hefur hvatt til að lagfæra skráningar sínar hefur stofnunin þó þurft að leggja flutningsbann á nokkurn fjölda býla þar sem ekki var orðið við ítrekuðum tilmælum um úrbætur. Alls eru búin sem fengið hafa flutningsbann/ sláturbann af þessum ástæðum tuttugu. Matvælastofnun mun í framhaldi þessa almennt leggja aukna áherslu á eftirlit með réttri skráningu gripa við skoðun búa með nautgripi. Þrátt fyrir að gera hafi þurft athugasemdir við þann fjölda sem hér greinir sýnir þó samanburður á skráningum bænda á liðnum árum að skráningar hafa batnað umtalsvert á síðustu misserum og er það vel. Það sýnir að langflestir bændur vilja hafa skráningar gripa sinna í góðu lagi. Sverrir Þ. Sverrisson Flutningur nautgripa stöðvaður vegna ófullnægjandi skráninga ...frá heilbrigði til hollustu Dráttarvél brann til kaldra kola á bænum Syðri-Knarrartungu í Staðarsveit á Snæfellsnesi síðastliðið mánudagskvöld. Sem betur fer urðu engin meiðsli á fólki eða skepnum en vélin er ónýt, sem er afar bagalegt fyrir bændur nú á þessum annatíma. Guðný H. Jakobsdóttir bóndi í Syðri-Knarrartungu segir að kviknað hafi í vélinni þegar maður hennar, Guðjón Jóhannesson var við vinnu á henni úti á túni. „Vélin drap bara á sér og það kom ljós reykur upp um pústið. Guðjón fór út og opnaði húddið en sá ekki í fljótu bragði hvað væri að. Hann var viss um að hann þyrfti nú einhverja aðstoð við þetta enda verkfæralaus. Hann rölti því upp á hól þarna í nágrenninu til að ná símasambandi en þegar hann snýr sér við til að labba til baka eftir símtalið sér hann hvar blossar upp eldur í vélinni.“ Ekki ráðið við neitt Guðný segir ekki ljóst hvað það var sem olli því að kviknaði í vélinni. „Það er nú svo sem ekki vitað hvað gerðist en Guðjón og kallarnir í sveitinni voru að leiða líkur að því að hugsanlega hefði farið olíurör og spýst á á heita vélina. Líklega hefur þetta byrjað í túrbínunni og kraumað eitthvað þar en síðan varð vélin bara alelda á örskotsstundu. Guðjón hringdi á næstu bæi eftir slökkvitækjum og aðstoð en það varð bara ekkert við ráðið.“ Styttist í heyskap Mikill annatími er í vorverkum nú um stundir og styttist óðum í slátt. Vélin, sem var af gerðinni Claas, er aðalvélin á bænum og því vont að hún sé ónothæf. „Það eru auðvitað allir nágrannar boðnir og búnir að aðstoða og við getum alveg gefið kúm og annað slíkt. Við verðum hins vegar að leysa dráttarvélamál á bænum á næstu dögum, hver sem sú lausn verður. Hvort það verður eitthvað til bráðabirgða eða hvað. Vélin var í kaskó svo við eigum nú von á að fá hana bætta en svoleiðis tekur alltaf tíma. Við höfðum strax samband við Vélfang og þar er verið að leita að einhverjum lausnum fyrir okkur“, segir Guðný. Stutt er orðið í slátt í Syðri-Knarrartungu og telur Guðný að ekki séu nema tíu dagar til hálfur mánuður í að heyskapur hefjist. Eru þakklát forsjánni „Við erum fyrst og fremst þakklát forsjánni fyrir að þetta gerðist bara þegar vélin var stödd úti á túni. Hefði þetta gerst inni á fóðurgangi þegar verið væri að gefa þá veit enginn hvernig það hefði farið. Úr því að þetta gerðist á annað borð var gott að þetta gerðist bara þarna þó þetta sé svekkjandi og setji strik í reikninginn. Þetta er bara vél og hana má bæta,“ bætir Guðný við. /fr Syðri-Knarrartunga í Staðarsveit: Dráttarvél brann til kaldra kola Vélin varð alelda á örskotsstundu. Myndir / Ólína Gunnlaugsdóttir Eins og sjá má er ekki mikið eftir af vélinni, sem hreinlega brann til kaldra kola. MAST leggur á gjald fyrir dýraeftirlit Matvælastofnun hefur sett fram tímabundið gjald vegna eftirlits með sauðfé og hrossum. Mun þetta gjald gilda þar til áhættuflokkun hefur verið tekin upp, sem áætlað er að verði um næstu áramót. Áhættuflokkunin mun hafa í för með sér flokkun á þeim aðilum sem halda dýr og þeir sem teljast af ýmsum áhættum í hærri áhættuflokki munu þá fá áætlaða á sig fleiri tíma í eftirlit. Um er að ræða eftirlit sem fram til síðustu áramóta var á hendi búf járef t i r l i t smanna sveitarfélaganna. Ekki hefur verið rukkað fyrir þær eftirlitsheimsóknir sem farið hafa fram frá síðustu áramótum en nú mega bændur sem hafa fengið heimsóknir eiga von á rukkun fyrir þær á næstunni. Á meðan áhættuflokkun er ekki lokið hafa héraðsdýralæknar skipulagt eftirlit á grundvelli þriggja þátta og hefur eftirlitinu verið hagað í samræmi við þá skipulagningu frá áramótum. Í fyrsta lagi er lögð áhersla á að fara á bæi sem athugasemdir hafa verið gerðar við í fyrra eftirliti eða ábendingar hafa borist um, í öðru lagi bæi sem ekki hafa skilað inn haustskýrslu og í þriðja lagi bæi sem valdir eru með slembiúrtaki. Fast gjald eftir fjölda Gjaldið byggir á tímagjaldi skv. 8. gr. reglugerðar nr. 567/2012 um gjaldskrá fyrir eftirlit og aðra gjaldskylda starfsemi Matvælastofnunar. Gjaldið er í samræmi við aðra gjaldskrá vegna eftirlits með dýrum, svo sem vegna nautgripa, og svína. Við útreikning á gjaldinu er stuðst við tiltekna verkþætti sem tengjast eftirlitinu, meðal annars undirbúning, aksturstíma, eftirlit á staðnum, frágang og skýrslugerð. Til viðbótar við neðangreint gjald bætist við fast akstursgjald. /fr

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.