Bændablaðið - 05.06.2014, Page 22

Bændablaðið - 05.06.2014, Page 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014 Sagt var frá því í Bændablaðinu í apríl síðastliðnum að hvalveiðar Íslendinga hefðu valdið því að íslenskt lambakjöt var ekki auglýst í Whole Foods- verslununum í Bandaríkjunum á síðasta ári. Sökum þess gengu áætlanir um söluaukningu frá árinu 2012 ekki eftir. Beita þurfti talsverðum fortölum til að fá Whole Foods til að halda áfram að selja íslenskt lambakjöt vegna veiðanna. Þá hefur kanadíska matvælafyrirtækið High Liner Foods ákveðið að hætta viðskiptum með íslenskan fisk við HB Granda vegna tengsla fyrirtækisins við Kristján Loftsson, eiganda Hvals hf., en Kristján er stór hluthafi í HB Granda og stjórnarformaður fyrirtækisins. Sigursteinn Másson, talsmaður Alþjóða dýravelferðarsjóðsins (International Fund for Animal Welfare, IFAW), segir hvalveiðar við Ísland nú þegar skapa mikil vanda mál í viðskiptum og sam- skiptum Íslendinga við önnur ríki. „Þetta er bara mjög vont, vont fyrir ímynd Íslands, fyrir íslenska matvælaframleiðslu og útflutning á íslenskum matvælum til Bandaríkjanna, svo dæmi séu tekin. Þetta skapar gríðarleg vandræði. Í verslanakeðjunni Whole Foods í Bandaríkjunum hafa menn ekki verið tilbúnir að auglýsa íslenskt lambakjöt vegna þess að Ísland er, vegna hvalveiðanna, orðið að einhvers konar skammaryrði í matvælageiranum þar úti.“ Blaðamaður Bændablaðsins hitti Sigurstein á dögunum og ræddi við hann um hvalveiðar Íslendinga og starfsemi IFAW, Alþjóða dýravelferðarsjóðsins, sem var settur á fót árið 1969 og er með starfsemi í yfir fjörutíu löndum. Sjóðurinn er rekinn á styrkjum frá stuðningsmönnum vítt og breitt um heiminn og þiggur hann ekki fjármuni frá fyrirtækjum eða opinberum aðilum. Upphaf að hvalaskoðun Sigursteinn segir að starfsemi sjóðsins hér á landi megi rekja til ársins 1990. „Sjóðurinn lét sig fyrst varða dýravelferðarmál á Íslandi árið 1990 þegar við stóðum að fyrstu hagkvæmnisathugun sem fram fór hér á landi varðandi hvalaskoðun. Sú athugun fór fram á Höfn í Hornafirði. Það má segja að það sé upphafið á því sem síðar hefur orðið í hvalaskoðun hér á landi.“ - Var sú athugun gerð til að benda á valkost varðandi nýtingu á hval, í stað veiða? „Sjóðurinn hefur alltaf viljað nálgast viðfangsefni þannig að við bendum á jákvæða valkosti, í stað þess að koma inn í samfélög með fingur á lofti og segja mönnum hvað þeir eigi að gera eða ekki að gera. Varðandi hvalaskoðunina kom það í ljós, fyrst í Hornafirði og síðan þegar menn fóru að fikra sig áfram með þetta í Eyjafirði, Keflavík, Húsavík og víðar, að þetta væri hin skynsama og ábatasama nýting á hvalastofninum. Við getum verið sammála um að það sé hin rétta leið, svo framarlega sem hvalaskoðun er stunduð á skynsaman og ábyrgan hátt og með velferð dýranna í fyrirrúmi. Ef rétt er staðið að hvalaskoðun er þetta langsjálfbærasta nýtingin á þessari náttúruauðlind sem hægt er að hugsa sér.“ Benda á aðra kosti Sigursteinn segir að barátta gegn hvalveiðum hafi verið megin starfsemi sjóðsins hér á landi síðustu ár. Þá hafi sjóðurinn sömuleiðis unnið með aðilum í ferðaþjónustu tengdri selum og refum. „Við höfum átt í samskiptum við selasetrið á Hvammstanga, sem er að gera mjög merkilega hluti. Þar eru að koma um 60.000 manns á hverju sumri, sem er gríðarlega góð nýting á auðlindinni sem selurinn er í ferðamennsku. Sömuleiðis höfum við verið í samstarfi við Melrakkasetrið á Súðavík um refinn á Hornströndum. Við viljum sem sagt nálgast okkar viðfangsefni án þess að fara með offorsi eða látum gegn þeim sem kunna að vera okkur ósammála, hafa hagsmuni eða telja sig hafa hagsmuni af veiðum á þessum skepnum. Stundum er þetta byggt á misskilningi, til dæmis í hvalveiðunum. Þar eru menn bara að tapa peningum og viðskiptin hafa gengið illa. Það væri því æskilegt að menn sæju ljósið og nýttu sína reynslu fremur í hvalaskoðun en þessar veiðar.“ Skipta sér ekki af landbúnaði Sigursteinn segir að þrátt fyrir þetta fari því fjarri að IFAW sé alfarið á móti nýtingu dýraafurða. Engar athugasemdir séu gerðar við sjálfbærar nýtingu, veiðar, eldi og slátrun, svo framarlega sem velferð dýranna sé virt. Þá hafi sjóðurinn ekkert á móti hefðbundnum landbúnaði. „Við tökum ekki afstöðu gegn landbúnaði eða hvernig landbúnaður er stundaður. Við erum vitanlega dýravelferðarsamtök og berjumst því gegn því að farið sé illa með dýr, hvort sem það eru húsdýr, gæludýr eða villt dýr. Við sérhæfum okkur hins vegar í því að vinna fyrir villt dýr. Við höfum hins vegar aldrei skipt okkur af landbúnaði og það stendur ekki til.“ 200.000 ferðamenn skoða hvali árlega -Snúum okkur aftur að hvalveiðunum. Gefum okkur að það væri almenn eftirspurn eftir hvalkjöti í heiminum og veiðarnar hagkvæmar í efnahagslegu tilliti. Hvaða afstöðu myndi sjóðurinn þá taka varðandi hvalveiðar? „Við berjumst alveg sérstaklega gegn veiðum sem við teljum tilgangslausar. Ef staðan væri sú að í heiminum væri sérstök eftirspurn eftir hvalkjöti, það væri talið nauðsynlegt að veiða hval, til dæmis út frá fæðuöryggissjónarmiðum og færð fyrir því góð rök myndum við áreiðanlega skoða málið. Það er hins vegar bara ekki svo. Það eru engin rök fyrir því að veiða hvali. Allar hugmyndir um að veiðar á hval stuðli að einhvers konar jafnvægi í hafinu eru út í hött og hlegið að þeim af öllum vísindamönnum úti í heimi. Engar af þeim röksemdum sem settar hafa verið fram um hvers vegna þurfi að veiða þessi dýr hafa staðist skoðun. Fullyrðingar um að þetta væru milljarða útflutningsverðmæti hafa reynst orðin tóm og svo framvegis. Heimurinn hefur á síðustu þrjátíu til fjörutíu árum tekið sig saman um að vernda þessa tegund dýra. Það eru þrjú ríki í heiminum sem stunda veiðar í viðskiptaskyni á hval, í andstöðu við mikinn meirihluta ríkja heims og í andstöðu við alþjóðlegar samþykktir. Íslendingar þurfa verulega að hugsa sinn gang í þessum efnum. Það liggur fyrir hver besta nýtingin á hval í hafinu í kringum Ísland er. Það er að ríflega 200.000 ferðamenn fari árlega í hvalaskoðunarferðir. Allt í allt erum við að tala um gjaldeyrisinnstreymi í kringum fjóra milljarða króna í gegnum þessa starfsemi.“ Líkt og æðarfuglinn Að stunda hvalveiðar er því eins og að saga undan sér greinina sem setið er á, að mati Sigursteins. „Bændur þekkja þetta vel varðandi æðarfuglinn. Það er mjög eðlilegt að bera þetta tvennt saman. Æðarfugl er í veiðanlegu magni á Ísland. Af hverju eru menn þá ekki að veiða æðarfugl? Jú, vegna þess að menn hafa komist að þeirri niðurstöðu að það séu svo miklu meiri nytjar af honum lifandi. Þannig er það líka með hvalinn.“ Ekki persónuleg skoðun -Sjóðurinn gerir sem sagt ekki upp á milli dýrategunda, þó þið einbeitið ykkur að villtum dýrum? Starfið snýst sem sagt ekki um að búið sé að skilgreina hval sem gáfaðar og fallegar skepnur sem megi ekki veiða vegna þess, eða hvað? „Nei, það er ekki á þeirri forsendu sem við vinnum að vernd hvala. Það er ekki vegna þess að þeir séu svo skynsamir og skýrir, þetta er ekki persónulegt. Mannkynið er nú mjög nálægt því að ná niðurstöðu um að friða þessa dýrategund. Ástæðan fyrir því er auðvitað sú að á síðustu 150 til 200 árum var gengið svo nærri hvalastofnum að þeir eru mjög langt frá því að jafna sig. Margir stofnar munu jafnvel ekki gera það. Dæmi um slíkt er til dæmis sléttbakurinn í Norður- Atlantshafi en stofn hans er svo illa farinn að það eru í mesta lagi 300 til 400 einstaklingar í honum. Það er vart nóg til að koma í veg fyrir útdauða þess stofns. Þetta er hin raunverulega staða sem við stöndum frammi fyrir.“ Vinna ekki gegn frumbyggjaveiðum „Eftir standa svo auðvitað frumbyggjaveiðarnar og við erum alls ekki að vinna gegn þeim. Þær eru í eðli sínu allt öðruvísi en viðskiptaveiðar. Viðskiptaveiðar snúast um auka sölu og flytja afurðirnar langar leiðir milli landa á meðan frumbyggjaveiðar eru algjörlega til heimabrúks. Með þetta hafa menn verið að rugla hér, sagt að Bandaríkin séu mesta hvalveiðiþjóð í heimi og hafa dregið inn í það slysaveiðar í net. Það er hins vegar ekkert hægt að bera þetta saman við skipulagðar viðskiptaveiðar þar sem verið er að flytja kjötið heimshornanna á milli, þar sem það virðist reyndar ekki vera velkomið.“ Samtök til sem vilja beita sterkari meðölum -Er þá að þínu mati hætt við að það muni valda Íslendingum enn frekara tjóni og vandræðum varðandi útflutning, verði ekki lát á hvalveiðum? „Þetta er nú þegar vandamál. Við sjáum að þetta er farið að valda vandræðum í fiskútflutningi til að mynda. Ég hef heyrt í samtökum úti í Bandaríkjunum sem vilja ganga miklu lengra en við hjá IFAW höfum viljað gera. Alþjóða dýravelferðarsjóðurinn hefur til dæmis aldrei talað fyrir viðskiptaþvingunum á Ísland og mun ekki gera á meðan ég er tengdur sjóðnum. Það er hins vegar fullt af samtökum sem þrýsta á um alvöru efnahags- og viðskiptaþvinganir á hendur okkur vegna þessa. Ég hef sagt við þessa aðila að það sé ekki vænlegt til árangurs, Íslendingar muni berjast harkalega gegn því.“ Einn maður „Það skiptir máli að því sé haldið á loft að Íslendingar sem þjóð eru ekki að veiða hval. Það er fyrst og fremst einn maður sem er að þessu á kostnað þjóðarinnar, á kostnað bænda og útflutnings á íslenskum matvælum. Það er bara Kristján Loftsson sem stendur í hvalveiðum. En eftir því sem þetta dregst á langinn og eftir því sem tilgangsleysi þessara hvalaveiða verður augljósara, öllum heiminum og líka okkur hér, því erfiðara verður að halda uppi vörnum.“ -Færðu á tilfinninguna að afstaða íslensks almennings varðandi hvalveiðar hafi breyst mikið á undanförnum árum? „Já, skoðanakannanir hafa sýnt okkur það. Það kom smá afturkippur í kringum hrunið en svo hefur það verið að verið að færast til baka upp á síðkastið. Við sáum það í Gallup- könnun í október síðastliðnum að í fyrsta skipti studdi minnihluti svarenda veiðar á langreyði. Þetta er að koma, ungt fólk og konur virðast til dæmis vera meira á þeirri skoðun að hvalveiðar þjóni ekki hagsmunum Íslands og að þær séu í nafni okkar sé afleitt fyrir Ísland.“ Þjóðinni til gagns að hætta veiðum – Ertu þá bjartsýnn á að hvalveiðum við Ísland muni linna á næstunni? „Ég er bjartsýnn á að þeir tímar séu að renna upp að fólk átti sig í auknum mæli á því að það þjónar ekki hagsmunum Íslands og Íslendinga að haldið sé áfram að veiða hvali í viðskiptaskyni. Ef menn eru tilbúnir að standa í þessu fyrst og fremst vegna þess að hingað álpaðist vesalings maður, Paul Watson, og gerði þann óskunda að sökkva tveimur bátum í Reykjavíkurhöfn, ef sú mynd ásækir fólk svona stíft, þá er það að vissu leyti skiljanlegt en afskaplega óskynsamlegt. Eins og með önnur áföll verða menn að komast yfir það með einhverjum hætti, bara til að geta haldið áfram með lífið.“ /fr Hvalaskoðun sjálfbær atvinnugrein sem skilar fjórum milljörðum í gjaldeyristekjur árlega: Tilgangslausar hvalveiðar skaða ímynd Íslands – Eins og að saga greinina sem setið er á undan sér, segir Sigursteinn Másson, talsmaður Alþjóða dýravelferðarsjóðsins Sigursteinn Másson, talsmaður Alþjóða dýravelferðarsjóðsins (International Fund for Animal Welfare, IFAW)

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.