Bændablaðið - 05.06.2014, Síða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014
Rafmagnsverð er hæst hjá
notendum RARIK í dreifbýli. Í
þéttbýli er rafmagnsverð einnig
hæst á orkuveitusvæði RARIK.
Hæsta verð í dreifbýli er 51%
hærra en lægsta verð í þéttbýli.
Í þéttbýli er hæsta verð 16%
hærra en lægsta verð. Lægst er
rafmagnsverðið á Akureyri.
Þetta kemur fram á vef
Byggðastofnunar, sem fékk
Orkustofnun til að reikna úr kostnað
við raforkunotkun og húsahitun
á sömu fasteigninni á nokkrum
þéttbýlisstöðum og á nokkrum
stöðum í dreifbýli á ársgrundvelli.
Viðmiðunareignin er einbýlishús
sem er 161,1 m2 að grunnfleti
og 351 m3. Gjöldin eru reiknuð
út samkvæmt gjaldskrá hinn 1.
apríl 2014. Fram kemur að við
útreikningana sé almenn notkun og
fastagjald tekið saman annars vegar
og húshitunarkostnaður hins vegar.
Rafmagnsverð hjá notendum
RARIK í dreifbýli reyndist
vera 102.537 krónur á ári. Á
orkuveitusvæði sama fyrirtækis í
þéttbýli var kostnaðurinn 78.489
krónur. Kostnaður notenda á
Akureyri er 67.859 krónur, en þar
er verðið sem áður segir lægst á
landinu.
Mikill verðmunur milli dreifbýlis
og þéttbýlis
Þegar kemur að húshitunar-
kostnaðinum er munurinn öllu meiri.
Þar er hæsti kyndingarkostnaðurinn
á orkuveitusvæði RARIK í dreifbýli
og Orkubúi Vestfjarða í dreifbýli kr.
204.817. Í þéttbýli er kostnaðurinn
hæstur á dreifiveitusvæði OV
þar sem rafmagnshitun er við
lýði s.s. Hólmavík kr. 195.092
og dreifiveitusvæði RARIK s.s.
í Grundarfirði, Neskaupstað og
Vopnafirði kr. 192.965. Lægsti
húshitunarkostnaðurinn er á
Sauðárkróki, kr. 83.857. Hæsta verð
í dreifbýli er 144% hærra en lægsta
verð í þéttbýli. Í þéttbýli er hæsta
verð 133% hærra en lægsta verð.
Ef horft er til heildarkostnaðar
er kostnaðurinn hæstur í dreifbýli
á orkuveitusvæði RARIK kr.
307.354. Heildarkostnaður í
þéttbýli er hæstur á dreifiveitusvæði
OV s.s. á Hólmavík kr. 272.329
og dreifiveitusvæði RARIK s.s.
í Grundarfirði, Neskaupstað og
Vopnafirði kr. 271.463. Lægstur
er heildarkostnaðurinn á Akureyri,
kr. 158.774. Hæsta verð í dreifbýli
er því 94% hærra en lægsta verð
í þéttbýli. Í þéttbýli er hæsta verð
72% hærra en lægsta verð.
Hafa ber í huga að á nokkrum
stöðum er veittur afsláttur af
gjaldskrá hitaveitu þar sem ekki er
hægt að tryggja lágmarkshita vatns
til notanda.
/MÞÞ
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Í KUBOTA M108s sameinast tveir eftirsóknarverðir kostir, einfaldleiki og gæði. Vélin er laus við óþarfa
rafmagnsbúnað en hefur þó allt það sem prýða skal alhliða dráttarvél. Það eru fáar dráttarvélar sem
standast KUBOTA vélunum snúning þegar kemur að lipurð og beygjuradíus, enda er beygjuradíus
KUBOTA M108s vélarinnar einungis 4,7 m. KUBOTA M108s skilar aflinu mjög vel og þeir bændur á
Íslandi sem eiga M108s eru allir sammála um það að olíueyðslan sé ótrúlega lág. Allt þetta og meira
til er sönnun þess að það er leit að betri dráttarvélakaupum á Íslandi í dag. - Líttu við og kynntu þér þér
þessar einstöku dráttarvélar
KUBOTA M108s
Ein bestu dráttarvélakaupin í dag
Áreiðanleiki í fyrirrúmi
ár á Íslandi
KUBOTA M108s með samlitum ámoksturstækjum
kostar aðeins frá kr. 8.590.000,- án vsk
4ra strokka KUBOTA mótor
108 hestöfl
Kúplingsfrír vendigír
32 gírar áfram / 32 gírar aftúrábak
Kúplingsfrír milligír
Loftkæling í húsi
Loftpúðafjaðrandi ökumannssæti
Brettakantar útfyrir afturhjól
Ámoksturstæki með 3ja sviði, dempara, hraðtengi, EURO festingum og skóflu 2,05 m.
Vökvaútskjótanlegur dráttarkrókur
3 tvöföld vökvaúr tök (1 með stillanlegu flæði)
Vökvavagnbremsa
Tveggja hraða aflúr tak 540 / 750
Aflúr tak sett inn / tekið af með rofa
Lipur og sparneytin alhliðavél sem
hentar vel í íslenskan landbúnað.
ÞÓR HF | Reykjavík: Krókhálsi 16 | Akureyri: Lónsbakka | Sími: 568-1500 | www.thor.is
Stofnfundur íslenska
landbúnaðarklasans
Dagskrá
Aðdragandi að stofnun klasans
Haraldur Benediktsson,
formaður undirbúningsnefndar
Hvers vegna landbúnaðarklasi?
Tjörvi Bjarnason,
sviðsstjóri hjá Bændasamtökunum
Fjárfestingarþörf í landbúnaði
Jóhanna Lind Elíasdó ir,
ráðgjafi hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Tillaga að samþykktum landbúnaðarklasans
Stjórnarkjör samkvæmt samþykktum
Tillaga að starfs- og árhagsáætlun
Umræður um starfi ð fram undan
Fundarslit
Lé ar veitingar að loknum fundi.
Fundarstjóri:
Jóhanna María Sigmundsdó ir,
alþingismaður
Boðað er til stofnfundar íslenska land-
búnaðarklasans föstudaginn 6. júní
næstkomandi. Fundurinn verður haldinn
á Hótel Sögu frá kl. 15 til 17.
Landbúnaðarklasinn er samstarfs-
ve vangur fyrirtækja og samtaka sem
starfa í landbúnaði eða við úrvinnslu
landbúnaðarafurða eða byggja
á þjónustu við greinina.
Unnið hefur verið að undirbúningi að
stofnun landbúnaðarklasa um nokkurt
skeið. Stofnfundurinn er opinn full-
trúum allra fyrirtækja og samtaka sem
telja sig eiga heima innan klasans.
Undirbúningsnefnd um
stofnun landbúnaðarklasa
Orkustofun reiknaði út raforku- og húshitunarkostnað:
Hæsta verð í dreifbýli er 94% hærra en lægsta verð í þéttbýli
Lægsti húshitunarkostnaðurinn er á
Sauðárkróki, kr. 83.857. Notendur í
dreifbýli á svæði Orkubús Vestfjarða
greiða tæplega 205 þúsund krónur
á ári til húshitunar, eða 144% hærra
verð.