Bændablaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 40

Bændablaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014 Kraftur og gróska einkenna ferðaþjónustu á Norðurlandi: Áhersla lögð á að beina fólki inn á fáfarnari ferðamannasvæði í sumar Mikill kraftur og gróska hefur einkennt ferðaþjónustu á Norðurlandi á liðnum misserum og hefur ferðafólki sem heimsækir landshlutann fjölgað ár frá ári. Gert er ráð fyrir að nú á komandi sumri muni margir verða á faraldsfæti í landsfjórðungnum og ferðaþjónustufólk hefur að undanförnu verið önnum kafið við að undirbúa komu þessu. Víðfrægar náttúruperlur eru á norðanverðu landinu og hafa þær mikið aðdráttarafl, en fjölbreytnin er einnig mikil þegar kemur að afþreyingu og er hún af ýmsu tagi. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í ferðaþjónustunni í landshlutanum og ekki útlit fyrir annað en áframhaldandi vöxt í greininni. Arnheiður Jóhannsdóttir er framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, en starfssvæði stofunnar er stórt, nær frá Hrútafirði í vestri og austur um til Bakkafjarðar. Nú þriðja sumarið í röð fara markaðsstofur landshlutanna í samvinnu við Ferðamálastofu af stað með verkefnið Ísland er með‘etta og segir Arnheiður að nú í sumar verði áhersla lögð á minna þekkt og umtöluð svæði og reynt verði að beina umferð ferðafólks inn á jaðarsvæði, svæði þar sem jafnan er ekki eins margt um manninn og á hinum betur þekktu. „Við leggjum í ár áherslu á að fá Íslendinga til að sækja inn á svæði sem þeir alla jafna eru ekki að heimsækja. Einnig munum við hvetja þá til að njóta upplifunar, kaupa þjónustu af þeim sem bjóða upp á afþreyingu á sínu heimasvæði sem og sækja veitingastaði og annað sem í boði er á hverjum stað. Þannig skilji þeir meðvitað eftir sig tekjur á svæðunum og leggi þannig sitt af mörkum til að heimamenn geti haldið áfram sinni uppbyggingu. Í kjölfar þess að Íslendingar sæki inn á fáfarnari svæði má búast við að útlendingar fylgi í þeirra fótspor og þannig muni þetta á endanum hafa jákvæð áhrif á alla ferðaþjónustu,“ segir Arnheiður. Gleðilegur árangur af kynningu á jaðarsvæðum Markvisst átak hefur staðið yfir í þeim efnum að beina ferðafólki inn á fleiri svæði en þau allra þekktustu. Sem árangur af því má nefna að ferðalöngum hefur fjölgað á Norðvesturlandi frá því sem var. „Ferðatímabilið á því svæði hefur lengst og nú er ekki óalgengt að erlendir ferðamenn séu þar á ferðinni í október og nóvember sem var mjög fátítt fyrir fáum misserum,“ segir Arnheiður. Meðal þess sem fólk fýsir að sjá í þeim landshluta eru selir en óvíða hér við land er betra að fara í selaskoðunarferðir en á Vatnsnesi. Á svæðinu hefur verið byggð upp ákjósanleg aðstaða til selaskoðunar, boðið er upp á selasiglingu og þeim fjölgar sífellt sem fara í slíkar ferðir. „Þetta er ein af þeim nýjungum sem hefur slegið rækileg í gegn og fellur mjög í kramið hjá ferðalöngum,“ segir hún og bætir við að ferðafólk á svæðinu sæki líka í að skoða ullarverksmiðjuna Kidka á Hvammstanga, en þar gefst fólk kostur á að fylgjast með framleiðsluferlinu. „Ullarverksmiðjan hefur mikið aðdráttarafl og er góð viðbót við þá afþreyingu sem í boði er á svæðinu. Hún fær fólk til að staldra lengur við.“ Hvítserkur hefur að auki sitt að segja, stendur alltaf fyrir sínu eins og Arnheiður orðar það. Vegir víða ekki í góðu ástandi Samgöngumálin má segja að sé ákveðinn flöskuháls, en vegurinn um Vatnsnes er langt í frá góður og kallar á uppbyggingu að sögn framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands. „Það þarf að gera bragarbót þar á, það yrði mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna. Vatnsnes er fjölfarin ferðamannaslóð, en vegurinn um nesið erfiður,“ segir hún. Aukin umferð kalli á betri veg, auk þess sem nauðsynlegt sé að útbúa útskot fyrir ferðalanga til að staldra við, stíga út úr bílum sínum og taka myndir af því sem fyrir ber. Sama er uppi á teningnum þegar kemur að Reykjaströndinni, út frá Sauðárkróki. Vegurinn að Grettislaug sem æ fleiri hafa áhuga á að heimsækja er ekki góður og þolir illa aukna umferð. „Umferðin þar um á bara eftir að aukast en því miður er nokkrir vegir í fjórðungnum þessu marki brenndir. Það er mjög brýnt að átak verði gert í vegagerð og ekki síður snjómokstri á þeim svæðum þannig að aðgengi að ýmsum náttúruperlum verði auðveldað,“ segir Arnheiður. Vegurinn yfir Kjöl er líka gott dæmi, hann er langt í frá nægilega góður til að taka við þeirri miklu umferð sem um hann fer að sumarlagi. Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu Norðurlands, segir að mikill hugur sé í ferðaþjónustufólki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.